Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST2004
Fréttir 0V
Leitin
að Sri
4. júlí
Sföast er vitað um ferðir
Sri að morgni sunnudags-
ins4. júl(.
S.júlí
Hvarf hennar er tilkynnt
strax um kvöldið.
Rannsókn lögrcglunnar
hefst. Fljótlega vaknar
grunui um refsivert
athæfi. Hákon Eydal
handtekinn.
7. júlí
Hákon Eydal dæmdur f
gæsluvarðhald.
28. júlí
i . Hákon játar að
hafa banað
Hk Sri Rahma-
■ wati með
barefli f
fbúð sinni
■ sunnudaginn
i 4. julí.
k
3. ágúst
Rannsóknir við Kjalarnes
benda til þess að Hákon
hafi loglð. Hann bendir
lögreglunni á réttan stað;
hraunsprungu utan við
Hafnarfjörð. Lfk Sri flnnst.
Lík Sri Rahmawati, þriggja barna móður frá Indónesíu, fannst á þriðjudaginn.
Hákon Eydal benti lögreglunni á staðinn en áður hafði hann logið því að hafa
varpað líkinu í sjóinn við Kjalarnes. Um mánuður er liðinn frá því rannsókn lög-
reglunnar hófst með tilkynningu um hvarf Sri. Nú virðist ljóst að frá upphafi hafi
lögreglan vitað að um morð hafi verið að ræða. Fjölskylda Sri er í sárum en börn-
in munu dvelja hjá systur hennar.
Lík Sri Rahmawati, 33 ára indónesískrar konu, fannst á þriðju-
daginn í hraunsprungu utan við Iiafnarfjörð. Mánuður er liðinn
síðan lögreglan hóf rannsókn á hvarfi hennar. Fyrrum sambýlis-
maður Sri, Hákon Eydal, játaði að hafa orðið henni að bana
þann 28. júlí. Fram að því hafði hann setið þögull sem gröfin í
gæsluvarðhaldi á Litia-Hrauni. Lögreglan segist fegin að þessum
áfanga í málinu sé loksins náð.
„Fegnir? Við erum alltaf fegnir
hverjum áfanga í hverju máh," segir
Ómar Smári Armannsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í
Reykjavík. Hann tók yfir rannsókn
málsins þegar Sigurbjörn Víðir og
Hörður Jóhannesson fóru í sumarfrí.
Eftir að Ómar Smári tók yfir rann-
sóknina komst loksins skriður á hana
sem leiddi til þess að á þriðjudaginn
gaf Hákon Eydal upp rétta staðsetn-
ingu líks Sri.
Áður hafði Hákon logið að lögregl-
unni; sagst hafa kastað líkinu fram af
klettum á Presthúsatöngum á sunn-
anverðu Kjalarnesi. Þetta gerðist
27. júlí og fór Hákon í lögreglufylgd á
staðinn og lýsti nákvæmlega atburða-
rásinni. I kjölfarið fór fram umfangs-
mikil rannsókn þar sem reynt var að
sanna frásögn Hákonar.
Ómar Smári Ár-
mannsson, að-
stoðaryfirlög-
regluþjónn hjá
Lögreglunni í
Reykjavfk Tók
yfir rannsóknina
og lauk henni far-
sællega.
Lögreglan ekki ginnkeypt
„Eitt er að fullyrða og annað að
trúa," segir Ómar Smári sem féll ekki
flatur fyrir útskýringum Hákonar
Eydal. Björgunarsveitarmenn og lög-
reglan
settu
á
svið atburðarás
samkvæmt frá-
sögn Hákonar;
hentu 60 kílóa
rekaldi, poka fýllt-
um með neta-
dræsum, grjóti,
kúbeini og fötum,
fram af klettun-
um. Nú átti að sjá
hvert líkið af Sri
hafði rekið - ef
það hafði rekið
yfir höfuð.
Niðurstöðum-
ar komu leitar-
mönnum á óvart.
Þrátt fyrir að sjáv-
arföllin hefðu
verið lík sjávarföllunum þann 4. júli,
daginn sem Hákon sagðist hafa hent
líkinu í fjöruna, rak pokann ekki held-
ur lá hann í fjöruborðinu eina fimm
metra frá sjónum. Hákon hafði logið.
„Rannsóknir á vettvangi bentu til
þess að frásögn mannsins gæti ekki
staðist," segir Ómar Smári. „Þá urð-
um við að halda áfram til að komast
að hinu rétta."
ískaldur í varðhaldi
Og yfirheyrslurnar bám árangur.
Hákon hafði fram að þessu sýnt fá-
dæma þrjósku í gæsluvarðhaldinu.
Hilmar Baldursson, verjandi Hákon-
ar, sagði í samtali við DV þegar 14
dagar vom liðnir af gæsluvarðhald-
inu:
„Hann er mjög rólegur og sýnir
engin merki um fráhvarfseinkenni
vegna kókaínneyslu. Svo mikið er
víst."
Þannig biðu rannsóknarmenn eft-
ir því að Hákon brotnaði og létti á
samvisku sinni. Hákon sat hins vegar
bara og beið - eins og lögreglan, en
menn innan hennar sögðust vart
hafa séð annað eins jafiraðargeð
hjá gæsluvarðhaldsfanga á Lida-
Hrauni; það eina sem Hákon vildi
væru sígarettur og kaffi.
En tíminn leið og eftir því
sem gekk á rannsóknina varð
erfiðara fyrir Hákon að leyna
sannleikanum. Blóð hafði
fundist á gólfi og veggjum
á heimili Hákonar á
Stórholtinu. Niður-
staðan úr DNA-rann-
sókninni leiddi í ljós
„Fegnir? Við erum
alltaf fegnir hverjum
áfanga í hverju
máli."
að blóðið var úr sambýliskonu hans
fyrrverandi - Sri. Vitni hafði séð Há-
kon bera svartan plastpoka út úr hús-
inu þar sem glitti í rass og læri. Það
vekur þó óneitanlega spurningar að
vimið sem sá Hákon með byrði srna
sunnudagsmorguninn 4. júlí
virðist hafa haft samband við
lögregluna til að láta vita af at-
burðinum en það ekki verið
talið marktækt í fyrstu þótt
vitnisburðurinn yrði seinna tO
þess að fullvissa lögregluna um að
morð hefði verið framið. Faðir Há-
konar, Birgir Eydal, var jafnframt vitni
í málinu.
Allt þetta leiddi til þess að Hákon
brotnaði á endanum. Játaði á sig
morð og gaf lögreglunni upp staðinn
sem hann hafði falið líkið á.
Forræðisdeila leiddi til morðs
Sri Rahmawatí var þriggja bama
móðir. Hún átti yngsta bamið sem er
fjögurra ára með Hákoni Eydal en hin
tvö með manni sem hún skildi við í
Indónesíu. Eldri börnin tvö komu til
íslands fyrir um tveimur árum. Við yf-
irheyrslur sagði Hákon Eydal forræð-
isdeilu um börnin hafa valdið því að
hann gerði það sem hann gerði. Það
er hans skýring.
Börnin em nú hjá ættingjum sín-
um. Ómar Smári segir sér ekki vera
kunnugt um að gefið hafi verið út
bráðabirgðaforræði vegna bamanna.
„Það er ekki okkar mál,“ segir hann.
Hann segir jafnffamt ekkert benda til
þess að einhveijir fyrir utan Hákon
Eydal séu meðábyrgir að ódæðinu.
Aðspurður hvenær Hákon verði
ákærður og málið tekið fyrir segir
hann það gerast þegar
rannsókninni
verðilokið.
„Ég get
ekki bent á
Hákoni
gæsluv
fyrst ískaiaur i varonaiai
en brotnaöi undir rest.
ingu," segir Ómar.
„Rannsóknin verður
að ganga sinn gang."
Dularfullt símtal
Margir gagnrýndu lögregluna fyrir
að hafa ekki leitað að nægilegum
krafti að Sri Rahmawati. Þegar nokkr-
ar vikur vom liðnar frá því hún hvarf
var málið meðhöndlað sem manns-
hvarf. Þrátt fyrir það gaf lögreglan ekki
út lýsingu á Sri eða mynd af henni.
Nú virðist ljóst að frá upphafi hafi
lögreglan verið fullviss um að um
morð hefði verið að ræða. Kvöldið
sem tilkynnt var um hvarfið var
blaðamaður á heimili ættingja henn-
ar. Um miðbik kvöldsins hringdi srmi
systur hennar sem brast í grát og
sagði að Sri væri dáin. Böm Sri grétu
einnig en lögreglan gat ekki staðfest
að hún væri látin. Ekki er vitað hver
það var sem hringdi en nú, mánuði
seinna, er komið í Ijós að sá sem
hringdi hafði rétt fyrir sér.
„Það er gríðarleg sorg hjá okkur
öllum," sagði ættingi Sri þegar DV
hafði samband. „Ég get Lftið talað
núna."
í yfirlýsingu frá lögreglunni er öll-
um sem veitt hafa aðstoð við rann-
sóknina þakkað, fyrir þolinmæðina
og þeirra góða liðsinni.
Loksins er Sri fundin.
simon@dv.is
neina
dag-
setn-
Hákon Eydal Játaði
á sig morð og benti
lögreglunni á líkið.
Sn Rahmawati
Mhennarfannstá
Priðjudaginn.
Stórholt 19
UérvarSri
Rahmawati
myrt.
% n 5!