Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Hjónunum
haldið sofandi
Líðan fólksins sem
slasaðist alvarlega í
árekstri á Suðurlands-
vegi á mánudag er
óbreytt. Fólkið sem er á
sjötugsaldri var á fólksbfl
sem ekið var á röngum
vegarhelmingi í suðurátt
og lenti framan á jeppa
sem kom úr gagnstæðri
átt. Slysið var við Kot-
strandarkirkju. Fólkið
var flutt á gjörgæsludeild
Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss. Karlmaður-
inn fór í aðgerð í fyrra-
dag og er haldið sofandi
í öndunarvél. Konan fór í
aðgerð á mánudag og er
einnig haldið sofandi í
öndunarvél. Talið er að
bflarnir hafi báðir verið á
80-90 kflómetra hraða
þegar áreksturinn varð.
Lækkun á
deCODE
Gengi deCODE Genet-
ics, móðurfélags íslenskrar
erfðagreiningar, hefur að
undanförnu lækkað all-
nokkuð á bandaríska hluta-
bréfamarkaðnum Nasdaq.
Áður en DV fór í prentun í
gær fór gengi hlutabréf-
anna lægst í 5,84 dollara á
hlut, sem er yfir 7% lækkun
á einum degi. Gengið hefur
ekki verið skráð lægra síðan
16. október í fyrra þegar
það var 5,07. Frá því í des-
ember 2000 hefur loka-
gengið ekki staðið hærra en
í febrúar á þessu ári. Þá
voru greiddir 13,2 dollarar
á hvern hlut. Síðan hafa
bréfin lækkað um meira en
helming.
Tíu hjóla trukkur hrapaði rúma tíu metra fram af einbreiðri brú yfir Laxá á Dölum í
Laxárdal. Guðjón Magnússon, ökumaður trukksins, segist hafa haldið að hann væri
dauðans matur þegar trukkurinn féll með ógnarhraða niður og skall á stórgrýtinu. Það
fyrsta sem bjargvætturinn á brúnni sagði við móður sína var: „Þau eru heil á húfi!“
Bifreiðarstjóri frá Borgarnesi segist þakka æðri máttarvöldum að
enginn hafi meiðst alvarlega þegar 28 tonna vörubfll hans
steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýttan árfarveg Laxár í Döl-
um, við Búðardal. Ástæðan var sú að jeppi var fyrir á einbreiðri
brúnni. Guðjón er á batavegi, hann slapp með skurði á hné,
úlnlið og andliti.
„Ég hélt að öllu væri lokið og ég
myndi deyja,“ sagði Guðjón Magn-
ússon, 24 ára vörubflstjóri sem
afstýrði stórfelldu slysi sem hefði
getað haft hörmulegar afleiðingar
fyrir hjón með tvö börn, þriggja ára
og tíu mánaða. Hann lagði eigið líf
undir með því að ákveða að steypa
28 tonna vörubfl, fullhlöðnum af
möl, fram af einbreiðri brú yfir Laxá
í Laxárdal.
„Ég sá svartan jeppa og skelfing-
arsvipinn á konunni. Ég hugsaði
bara um að reyna að koma mér burt
frá bflnum og forðast að stofna lífi
þeirra í hættu. Ég rakst aðeins utan í
bflinn og keyrði í gegnum vegriðið."
Guðjón segir að bíllinn hafi skoll-
ið með ógnarþunga á grjótinu. „Ég
fann fyrir högginu. Það var ógnvæn-
legt."
Guðjón var, aldrei slíku vant, ekki
í bflbelti og telur það hafa orðið sér
til lífs. „Húsið var gersamlega í
klessu ökumannsmegin. í fallinu
skaust égyfir í farþegasætið og lá þar
smástund í sjokki, teygði mig svo í
mótorbremsuna og slökkti á bfln-
um. Því næst skreið ég út úr bflnum
og lagðist í grjótið."
þar sem móðir hans hitti hann, en
hún býr á höfuðborgarsvæðinu.
„Það fyrsta sem hann sagði við
mig var að fólkið í bflnum væri heilt
á húfi, þau hefðu sloppið ómeidd,"
sagði Berghildur Reynisdóttir móðir
Guðjóns, stolt af syni sfnum.
Æðri máttarvöld að verki
„Ég er farinn að hallast að því að
þarna hafi æðri máttarvöld verið að
verki, að einhver verndarengill hafi
vakað yfir mér þarna, sagði Guðjón
sem er búinn að vera bflstjóri hjá
Borgarverki í Borganesi í tvö ár og
ætlar að halda ótrauður áffam að
keyra þegar hann er búinn að jafna
sig. „Ég læt þetta ekki á mig fá, þó
þetta hafi vissulega verið skelfileg
lífsreynsla. Ég fer lfldega í Borgarnes
í dag, hvfli mig í tvær vikur, og fer
svo bara aftur að keyra."
rap@dv.is
Smáskurðir í andliti Guðjón
slapp ótrúlega vel með smá-
skurði á andliti, úlnlið og hné
Maðurinn
sem lést
Karlmaðurinn sem
lést í bflslysi á Krossnes-
braut sunnan við Kross-
nes á Akureyri eftir há-
degið í gær hét Þorgeir
Ingi Ingason. Hann var
þrjátíu og sex ára gamall
og bjó í foreldrahúsum
að Mánahlíð 9 Akureyri.
Slysið varð með þeim
hætti að malarflutninga-
bfll rann út af veginum
og niður í fjöru. Þorgeir
Ingi lést samstundis.
Móðirin stolt af syninum
Nærstaddir vegfarendur hlupu
niður og komu að honum þar sem
hann lá. Guðjón spurði strax hvort
ekki væri í lagi með fjölskylduna í
jeppanum. Honum til mildls léttis
var sagt að fólkið í jeppanum hefði
sloppið með skrámur. Við tók mjög
sársaukafull ferð með sjúkrabfl á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi
Vörubíllinn í rúst Guðjón
var, aldrei slíku vant, ekki /
belti og varðþað honum
llklega til llfs,
Eins og Kínverjar kveðast á
Því sem íslendingum er kærast
ber að sýna tilhlýðilega virðingu og
varðveita sem lengst. Hreint og
beint. Svarthöfði hefur skilning á
áhyggjum þingmanna sem brá í
brún þegar þeir sáu Dorrit í skaut-
búningi við innsetningarathöfn for-
setans. Þetta var svona eins og að sjá
Kínverja kveðast á. Sumt er heilagra
en annað.
Vera má að forsetafrúin vilji með
þessu athæfi sínu blandast landi og
þjóð þannig að eftir verði tekið. Og
það tókst. Sjaldan hefur stirnt eins á
íslenska skautbúninginn og aldrei
hefur hann blakt betur í íslenskum
sumarblæ. íslenski fáninn féll meira
að segja í skuggann og er hann þó
fallegur.
Fara verður með gát þegar ís-
lenskar þjóðargersemar eru farnar
að taka á sig aðra og betri mynd þeg-
ar útlendingar koma þar nærri.
Franskir matreiðslumeistarar gætu
vafalaust umbreytt íslensku þorra-
trogi í æta kássu fengju þeir frjálsar
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bærilega gott, enda nýkominn úr fjögurra vikna sumarleyfi," segir séra
Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslusviðs á Biskupsstofu.„Og þessa stundina er
ég að dusta rykið afmínum verkefnum, endurnýjaður á sál og líkama. Helstu verkefn-
in framundan eru að undirbúa námskeiö sem við bjóðum upp á fyrir starfsfólk kirkj-
unnar I barna- og æskulýðsstarfi og svo erum við að vinna að sérstakri fræðslustefnu
kirkjunnar sem á að leggja fyrir á Kirkjuþingiíoktóber."
hendur til verksins. Sem þeir hafa
sem betur fer ekki fengið. Sérstöðu
þorramatarsins má aldrei eyðileggja
með því að gera hann ætan. Nóg er
að búið sé að eyðileggja skyrið með
því að blanda það með hindberjum
og öðrum suðrænum ávöxtum. Og
lýsið fór fyrir h'tið þegar það var pip-
armintubætt.
Nú er bara að sjá á hvaða leik
Dorrit bregður um áramót þegar
flugeldum verður skotið á loft. Menn
geta þá mænt frá áramótabrennunni
á Ægisíðu yfir hafið til Bessastaða og
fylgst þar með flugeldasýningu for-
setafrúarinnar. Ef að lfkurn lætur
verður hún miklu betur útfærð og
fallegri í allri sinni lítadýrð en fólk
hefur átt að venjast. Dorrit hefur
nefnilega stfl sem byggir á ævaforn-
um hefðum sem teygja sig víða um
heim. Hún veit hvað klukkan slær
þegar glæsileiki er annars vegar.
Islendingar hafa litla þjálfun í slflcu.