Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004
Fréttír DV
Ekki þjarmað
að Björgólfi
„Þetta er eitthvað sem
þekkist alveg," sagði Róbert
Marshall, formaður blaða-
mannafélagsins spurður
um viðtal Asgeirs
Friðleifssonar,
ráðgjafa Björgólfs
Thors Björgólfs-
sonar við Björgólf.
„Þó er æskilegast
að fréttamaður
spyrji spurning-
anna og fylgi þeim eftir.
Oftast eru spurningar sem
vakna af svörum viðmæl-
andans. Mjög ólíklegt er að
ráðgjafi fari að þjarma að
vinnuveitanda sínum í
sjónvarpsviðtah. Mér finnst
cdgert skilyrði að tilgreint sé
þegar efni er sent ffá fyrir-
tæki og hver tekur viðtal.
Æskilegast væri að frétta-
stofur hefðu fjármuni til að
senda fréttamenn á vett-
vang en svo er því miður
ekki.“
Grímsey
skelfur
í tilkynningu frá veður-
stofu íslands kemur fram
að skjálftahrina sé nú í
gangi um 17 kílómetra
austur af Grímsey. Síðustu
tvo daga hafa yfir 30 skjálft-
ar mælst á svæðinu. Stærsti
skjálftinn var rétt eftir
klukkan tvö í dag. Hann
reyndist vera 2,9 á richter.
Sigfús Heiðarsson, starfs-
maður fiskvinnslustöðvar-
innar Sigurbjörns, býr í
Grímsey. Hann segir fólkið
ekki óttaslegið vegna
skjálftanna. Reyndar hafi
hann ekki fundið fyrir nein-
um skjálftum enda verið
við vinnu í allan dag.
Meiddir Bretar
afþakka hjálp
Lögreglan á Hvolsvelli
leitaði í gær að hópi
breskra unglinga. Ferða-
maður hafði gengið fram á
hópinn og tekið eftir þvf að
einn pilturinn var alvarlega
slasaður. í kjölfarið bauð
ferðamaðurinn fram hjálp
sína en ungmennin afþökk-
uðu hjálpina. Þau sögðust
vera á sérstöku námskeiði
þar sem þau læra að lifa af í
óbyggðunum. Rétt fyrir
Qögur í gær fékk lögreglan
upplýsingar um að leið-
sögumaður hópsins hefði
komið piltinum til bjargar
en hann var með slitna
hásin.
Oddi hf. keypti Fróða til að bjarga hagsmunum sínum. Útgáfan var stórskuldug við
prentsmiðjuna sem ákvað að kaupa fremur en missa kjölfestuviðskipti. Knútur
Signarsson, nýráðinn forstjóri Fróða, segist hafa gert góð kaup.
Fróði í fjárkreppu
Magnús Hreggviðsson hafði staðið í þreifingum um sölu á tíma-
ritaútgáfu sinni, Fróða, í ár áður en hann seldi fyrirtækið til
Odda hf. í vikunni. Meðal annars átti Magnús fundi með stjórn-
arformanni Norðurljósa þar sem ræddur var sá möguleiki að fyr-
irtækið yrði keypt. Kaup Odda á Fróða ganga gegn þeirri stefnu
eigenda Odda að kaupa fyrirtæki í útgáfu en voru gerð í þeirri
nauðvörn að Oddamenn vildu halda prentuninni á tímaritum
Fróða sem hafa verið kjölfestan í rekstri prentsmiðjunnar.
Kaupin á Odda hafa vakið mikla
athygli innan viðskiptaheimsins
enda hafði ekki farið hátt að Magnús
Hreggviðsson, aðaleigandi útgáfunn-
ar, vildi selja. Þó vissi nokkur hópur
af því að undanfarið ár hafði Magnús
látið í ljós vilja til að selja minnihluta
í Fróða. Fyrirtækið hefur verið í
þungum rekstri og eigið fé þess var
neikvætt. Magnús var sagður orðinn
örþreyttur á baslinu og vildi losna.
Heimildarmenn DV segja það skilj-
anlegt í erfiðri stöðu fyrirtækisins þar
sem allt eins gat farið á versta veg.
Lausaijárstaða Fróða var erfið og
Magnúsi var lífs-
nauðsyn-
legt að
Magnús Hreggviðsson
Haföi / heilt ár stefnt aö
þvl að selja hlut IFróöa.
vega nýtt fjármagn inn í reksturinn.
Fróði skuldaði prentsmiðjunni Odda
gífurlegar fjárhæðir og í því sam-
bandi hefur verið nefnt allt að 300
milljónir króna sem þýðir meira en
ársviðskipti Fróða við Odda. Stjóm-
endur Odda hafi í raun ekki átt aðra
kosti en að leysa fyrirtækið til sín í
þeirri von að hala inn á skuldina og
halda viðskiptunum sem skapa Odda
daglega verkefiii við prentun á Séð og
heyrt, Vikunni, Nýju lífi, Mannlífi og
Gestgjafanum.
Heimildum DV ber ekki saman
um það hvort erlenda útgáfan Aller
sem talin var ætla að kaupa hafi
verið í þeirri stöðu í raun.
Kenningar em uppi um
að þar hafi verið um
að ræða leikrit í því
skyni að fá Odda
til að kaupa.
Um er að ræða
útgáfufyrir-
tæki Se og
Hör á Norð-
urlöndum
sem Magnús
hafði reynd-
ar átt í harð-
vítugum
deilum við
vegna ásak-
ana um að ís-
lenska Séð og
Heyrt væri
stæling á syst-
urritunum á
Norðurlöndun-
um. Deilan var
reyndar sett niður
án þess að til
málaferla kæmi.
Merkilegt þótti að
hann skyldi eiga í við-
ræðum við þessa fyrr-
um andstæðinga. Vitað
er þó að á seinasta ári komu
útsendarar frá Aller til ís-
lands ogfórvelá
með
./f:
Seljagata 2 Fyrrverandi eig-
andi Fróöa heldur eftir húseign-
inni og leigir nýjum eigendum.
Myndin er af starfsfólki sem
beiö eftir starfsmannafundi þar
sem eigendaskipti voru tilkynnt.
þeim og Magnúsi. Á seinustu mán-
uðum spurðist út að Magnús Hregg-
viðsson vildi selja Fróða að hluta.
Þreifingar áttu sér stað víða og þar á
meðal við Framtíðarsýn sem rekur
Viðskiptablaðið. Þá sýndu Norður-
ljós, sem reka Fréttablaðið, DV og
Stöð 2 einnig áhuga og átti Skarphéð-
inn Berg Steinarsson stjómarfor-
maður fundi með Magnúsi af því til-
efhi. Þeim þreifingum lauk jafn-
skyndilega og þær hófust og nokkru
síðar var tilkynnt að Oddi hf. hefði
keypt Fróða með manni og mús.
Kenningar em uppi um að Oddi hafi
af kærleik gert Magnúsi kleift að
halda höfði og fara uppréttur frá út-
gáfunni og halda eftir húseigninni
við Seljaveg og fýrirtækinu Islensk
fyrirtæki þar sem væntingar um
gullna tíð em við lýði.
Knútur Signarsson, framkvæmda-
stjóri hjá Odda, hefur tekið við stjóm-
artaumum í Fróða. Hann vildi í sam-
tali við DV ekkert segja um samning-
inn en sagðist hafa fulla trú á því að
Aller hefði ætlað að kaupa Fróða og
þar með hefði prentsamningur um
tímarit verið í uppnámi. Hann benti
á að tímaritum Fróða fylgdi stöðug
og jöfn vinna allt árið.
„Við töldum að þetta væm ágætis-
kaup og sáum fram á að missa prent-
verk ef fyrirtækið færi annað," segir
Knútur. Hann vill sem minnst gera úr
því að það sé stefnubreyting af fyrir-
tækinu að kaupa útgáfufélag.
„Við áttum á sínum tíma bókafor-
lögin Þjóðsögu og Örn og örlyg,“ seg-
ir hann.
Knútur er þegar búinn að kynna
sér nýja vinnustaðinn og segist vera
mun bjartsýnni en áður á að rekstur-
inn blómstri. Hann segir engar breyt-
ingar vera í sjónmáli enda sé starfs-
fólk Fróða mjög hæft. Hann vill ekk-
ert um það segja hvort Oddi ætli sér
að selja Fróða í einingum eða að öllu
leyti.
„Næstu vikur fara í að kynna sér
reksturinn," segir Knútur og staðhæf-
ir reyndar að hann gæti selt fyrirtæk-
ið straxmeð hagnaði.
rt@dv.is
Lífshættuleqt Lottó
Svarthöfði var hissa á að sjá viðtal
í blaðinu í gær við konu sem vann 40
milljónir í Lottó. Svarthöfði gat ekki
betur séð en konunni væri alveg
sama um vinninginn og vildi sem
minnst af honum vita. Reyndar
fannst henni ágætt að fá peningana
inn á bankareikninginn sinn en
annað var það ekki.
Lottófólkið reyndi að bjóða
henni áfallahjálp, fjármálaráðgjöf og
gott ef ekki áfengisráðgjöf en allt
kom fyrir ekki. Konan fór bara út og
keypti rjómaís handa sér og fjöl-
&
Svarthöfði
skyldunni. Svarthöfði hefði bmgðist
öðmvísi við. Hann hefði byrjað á því
að þiggja áfallahjálpina, fjármála-
ráðgjöfina og jafrivel líka áfengisráð-
gjöfina en svo hefði hann tekið ær-
lega sveiflu í peningatrénu. Svo sem
allt í lagi að byija á því að fá sér
rjómaís með 40 milljónir í vasanum.
En svo hefði ballið byrjað.
Svarthöfða hefur alltaf langað í
Porsche-jeppa, Armani-jakkaföt,
Hvernig hefur þú það?
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Vík í Mýrdal: :„Ég hefþað bara afskaplega gott. Er fyrir utan hjá
mérað kafna úrhita I sólinni. Eg hefveriö aö smíða ísumarfríinu en nú erpólitíkin afturað fara í
gang. Fyrstu fundurinn í næstu viku. Annars er margt á döfinni hérnal bænum. Við erum að Ijúka
smiði sundlaugarbyggingar og förum að huga að því að halda unglingalandsmót. Svo er skólinn að
byrja og allt sem fylgir því. Rólegheitunum fer senn að Ijúka. "
sundlaug, golfvöll, hesthús, flugvöll,
einbýlishús, sumarbústað, hjákonu,
heimabíó, flugdreka, kafarabúning,
líkamsræktarstöð, strætisvagn með
súludansmeyjum og afgirt berjaland
með aðalbláberjum. Allt þetta og
meira til hefði hann látið eftir sér. Og
staðgreitt.
Að því loknu hefði Svarthöfði ef-
laust misst vitið og drepist úr áhyggj-
um af eignum sínum. Þess vegna er
ekki vanþörf á alls kyns forvörnum
þegar milljónirnar streyma svona
fyrirhafnarlaust inn. Nema fólk hafi
vit á því að gera eins og nýjasta millj-
ónakonan. Bjóða fjölskyldunni bara
út í ísbúð og fara svo heim.
Hún lengi lifi. Það sama yrði
aldrei sagt um Svarthöfða í hennar
sporum. Hann er eins og flestir aðrir.
Verður trítilóður ef hann sér pening.
Svarthöfði