Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Alltafer hægt að ná í Orra og
þykirgott að vinna með hon-
um. Skipulagður og á auðvelt
með að sætta deilur, enda
góður leiðtogi.
Margir segja hann stundum
gleyma sér i aðaláhugamáli
sínu sem eru hestarnir.
Einnig mætti hann vera
betri í fjármálunum. Sumir
segja hann lika vera í röngu
liði í pólitíkinni.
„Ég er nú búinn að vinna með
honum Orra í tvö ár og mér hef-
ur likað það starfmjög vel.
Hann er fljótur að greina aðal-
atriðin frá smáatriðunum og er
því góður kostur í bæjarstjóra.
Ég kann afskaplega vel við
hann oghann er satt bestað
segja mjög yfirvegaður maður.
Hann er mikill hesta-
maður og hefur áhuga
fyrir því, ég veit ekki
hvort það geti talist
ókostur."
Guðmundur F. Baldursson bæjartækni-
fræðingur í Hveragerði
„Orri Hlöðversson ergóður
stjórnandi og er góður I að leiða
mál til lykta. Hann er sáttasemj-
ari, maður friðarins og á auðvelt
með að setja niður deilur. Hann
er eldklár i viðskiptum og kom
fjármálunum hér i Hveragerði á
réttan kjöl þegar hann
tók við. Svo er hann líka
mjög skipulagður.
Hans stærsti galli er llk-
lega sá að hann á hesta
sem hann er mikið að
stússast í. Menn eiga ekki að
leika sér að matnum."
Kristinn T. Haraldsson Kíddi Rót
„Hann er góður i samskiptum,
lipur og þægilegur íalla staði.
Mér hefur komið á óvart hvað
hann er duglegur að koma
verkefnum áfram og
hvað hann hefurgóð
ítök innan Framsóknar-
flokksins. Efeitthvað er
þá mætti hann vera
sleipari í fjármálum en
það er eitthvað sem lærist enda
eru fjármál sveitarfélaganna
flókin og snúin. Þegar öllu er á
botninn hvolft erhans stærsti
galli sá að hann er Framsóknar-
maður."
Aldís Hafsteinsdóttir í minnihluta bæj-
arstjórnari Hveragerði
Orri Hlöðversson er fæddur árið 1964 og er
harður framsóknarmaður. Hann á átta
systkini og er Bryndís Hlöðversdóttir þing-
kona systir hans. Hann starfar sem bæjar-
stjóri í Hveragerði og hefur gert slðustu ár.
Hann er giftur Helgu Dagnýju Árnadóttur
og eiga þau dótturina Valdísi önnu sem er
þriggja ára. Þau eru búsett I Hveragerði.
Orri er einnig mikill laxveiðiáhugamaður
og er mikið I hestunum.
Ráðist á rit-
höfund
Ráðist var á einn virtasta
rithöfund Kenía, Ngugi
wa Thiong’o og eigin-
konu hans á miðviku-
daginn. Vopnaðir
menn réðust inn á
heimili hans í höfuð-
borginni Naíróbí.
Hann er á spítala eftir að
hann var brenndur með
sígarettum. Ngugi sem hef-
ur gagnrýnt stjórnvöld í
landinu sneri aftur til lands-
ins í síðasta mánuði eftir 22
ára sjálfskipaða útlegð. Ekki
er talið að pólitískar ástæð-
ur liggi að baki árásinni.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson vill setja lögbann á siðanefnd Háskóla íslands.
Munnlegur málflutningur fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón Steinar
Gunnlaugsson, lögmaður Hannesar, fór hörðum orðum um nefndina. Sagði hana
ala á tortryggni í garð umbjóðanda sins. Lögmaður siðanefndar sagði lögbanns-
kröfu Hannesar brot á tjáningarfrelsinu.
Hannes sakar siðanefnd
um annarlegar hvatir
„Ég vona að það sé ekki rétt; að siðanefndin sé í krossferð gegn
umbjdðanda mínum,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Hannes hefur krafist þess að siðanefndin fái
ekki að fjalla um meint brot sitt gegn siðareglum Háskóla
íslands. Lögmaður siðanefhdarinnar vill vísa málinu frá. Munn-
legur málflutningur fór fram í Héraðsdómi í gær.
„Hannes er umdeildur
maður en hlýtur að
vera jafn rétthár og
aðrir"
málinu til siðanefndar Háskólans.
Deilunum um ævisögu Hannes-
ar um nóbelskáldið er
nærri lokið.
Annarlegar hvatir
„Það er slæmt þegar nefnd-
in er sökuð um annarleg
sjónarmið eða hvatir,” sagði
Gestur Jónsson, lögmaður g
siðaneftidarinar undir lok ’
málflutningsins. „Ég sé enga
lögvarða hagsmuni í því að
koma í veg fyrir umfjöllun
slfkrar nefndar."
Úrskurður í málinu
verður birtur í næstu viku.
Þá kemur í ljós hvort lög-
bannskröfunni verður vísað
frá eður ei.
Þá hafa erfingjar Halldórs
Laxness einnig boðað málsókn
fyrir dómstólum en það voru þeir
sem vísuðu
„Hannes er umdeildur maður en
hlýtur að vera jafn rétthár og aðrir,“
sagði Jón Steinar í lok ræðu sinnar
og afhenti keflið til Gests Jónssonar,
lögmanns siðanefhdarinnar.
Brot á tjáningarfrelsi
•Grundvöllur máiflutnings Gests
var að ekki væri hægt að fá lögbann
á siðanefndina. Hún væri skipuð af
Háskóla fsiands og með umboð til
að flalla um málið. Hann sagði svip-
að að setja lögbann á siðanefndina
og ef sett væri lögbann á málþing
um bók Hannesar. Þá sagði hann
það brot á tjáningarfrelsinu að
meina nefndinni að fjalla um verk
prófessorsins.
Þessu var Jón Steinar ósammála.
Hann sagði enga heimild í lögum
um setningu siðareglna og starfs-
reglna siðanefndar og að enginn
starfsmaður háskófans hafi skuld-
bundið sig til að hlíta þessum regl-
um.
Þá sagði hann niðurstöðu nefnd-
arinnar geta vegið þungt að fræði-
mannshagsmunum umbjóðanda
síns jafnvel þótt lokaniðurstaða
fengist ekki fyrr en í dómi. Hann
benti einnig á að hverjum nefndar-
manni væri frjálst að tjá sig eins og
hann vildi. Það væri fáránlegt að tala
um brot á tjáningarfrelsi.
Bretar eru æfir
Nauðgari vann
90 milljónir í lottói
Innanríkisráherra Breta, David
Blunkett, sagði í gær að hann ætlaði
meina dæmdum glæpamönnum að
græða umtalsverðar fjárhæðir á
meðan þeir sitja á bak við lás og slá.
:tt Hneyksl-
rirBretar.
Þetta sagði hann eftir að dæmdur
nauðgari sem nú situr inni, vann
rúmar 90 milljónir í happdrætti á
dögunum. Sagði Blunkett að hann
myndi leggja frumvarp að lögum
þess efhis að glæpamaður sem ynni
í happdrætti eða yrði skyndilega
ríkur á einhvern annan hátt yrði
skyldaður til að leggja hluta af upp-
hæðinni inn á sjóð fórnarlamba
þess glæps sem maðurinn framdi.
Gríðarlegrar reiði varð vart í Bret-
landi eftir að dæmdur nauðgari,
Iorworth Hoare, sem situr í lág-
marks-öryggisfangelsi
vann happdrættisvinn-
inginn á miða sem hann
keypti þegar hann var í
dagsleyfi.
nýr & hollur kostur!
léttir og bragðgóðir réttir - fáar kaloríur
lovin’it
safesS
bragð • fjöibreytni • orka