Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Síða 25
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 13.ÁGÚST2004 25
Pink fór mikinn þegar hún var hér á landi. Hún stefnir hraðbyri í að verða íslandsvinur og gott betur.
Samkvæmt heimildum DV gæti vel farið svo að hún eignaðist íslenskan kærasta. Mjög góð kynni tókust ^
með Pink og Gústa sem er skemmtanastjóri á veitingastaðnum 22.
kemmtanastjóri 22 er ekki þekktur
>inu öðru nafni. Hann fylgdi Pmk um
u íslenska næturllfsins og með þeim
víin kvnni oa sáustþau kveðjast mm-
mni
vará
fiandi brott
„Ég ætla ekkert að tjá mig um
þetta mál. HaUærislegt að vera að
tala um þetta í fjölmiðlum. Þetta er
bara hréss stelpa sem kíkti á klak-
ann. Já, hún fór í morgun," segir
Gústi skemmtanastjóri á veitinga-
staðnum 22 við Laugarveg.
DV hefur heimildir fyrir því að
með Gústa og Pink, hinni heims-
þekktu söngkonu, hafi tekist náin
kynni. Svo náin að þau sáust kveðj-
ast.innilega aðfaranótt fimmtudags
fyrir framan Nordica Hotel. Þá var
Pink á leið frá landinu. Þessar sömu
heimildir
herma að svo heilluð hafi Pink verið
af Gústa að hún hafi boðið honum í
heimsókn til sín í LA. Engar dag-
setningar á fyrirhugaða för Gústa til
LA eru fyrirliggjandi. Þessu vill Gústi
hvorki játa né neita. „Ég ætla mér
ekki að vera með neinar yfirlýsingar
þar um. Það er haUærislegt."
Gústi segist hafa fylgt Pink um
og sýnt henni næturlífið að kvöldi
miðvikudags. Honum þykir heldur
fátæklegt mannlífið svona að kveldi
virkra daga þó segja megi að
Reykjavík sé um helgar háborg næt-
urlífsins.
Ef eitthvað verður meira úr vin-
skap Gústa og Pink má segja að þar
séu ríflegar sárabætur fyrir það
þegar slitnaði upp úr ævintýralegu
og áberandi sambandi þeirra Fjöln-
is Þorgeirssonar og Mel B í Spice
Girls eins og frægt var. Mel B var
um hríð kölluð tengdadóttir ís-
lands, hvorki meira né
minna, og þeir sem
sakna þess að eiga ekki
eina slíka, úr innsta
hring ævintýralegrar
poppsenunnar, geta nú
bundið vonir við að úr
rætist.
Pink Fór mikinn á Islandi og vakti óskipta
athygli hvar sem hún fór. Meðal annars lenti
hún íútistöðum við Ijósmyndara Víkurfrétta.
Heimildir herma að hún muni hafa boðið
Gústa iheimsókn til sín í LA. Gústi starfar i
fatabúðinni Nonnabúð og einmitt þar keypti
Pink þennan klæðnað.
—næsta
tengdadótOr
Islands?
*
m
The Stepford Wives frumsýnd í Laugarásbíói og Háskólabiói
Fullur bær af fullkomnum eiginkonum
Joanna Eberhart (Nicole Kid-
man) heldur að hún sé komin á
toppinn - eins hátt
og getur komist. Hiin
er yngsti forstjórinn í
sögu EBS-sjónvarps-
keðjunnar, hún á
góðan eiginmánn og
tvö gullfalleg börn. Á
yfirborðinu virðist líf
hennar fullkomið, þar
til dag einn þegar allt
hrynur hjá henni. Hún
er rekin úr vinnunni,
hjónabandið er í
vanda og hún man
ekki einu sinni í hvaða
skóla börnin eru. Hún
og eiginmaðurinn
(Matthew Broderick) ákveða að
stokka allt upp og flytja í
úthverfisparadísina Stepford. En
það er eitthvað skrítið við
þennan bæ og það eru eig-
inkonurnar sem virðast allar full-
komnar. Þær líta aUar eins út, fal-
legar, glaðar og einstak-
lega handlagnar. Þær
geta bakað, málað húsið,
slegið blettinn, séð um
börnin og samt heilsað
eiginmanninum í sexý
undirfötum í lok dags-
ins. Eiginmaður Joönnu
er aftur á móti hæst-
ánægður - eða þar til
hún tekur til sinna
ráða. í öðrum aðalhlut-
verkum eru Bette
Midler, Glenn Close,
Christopher Wal-
ken og Jon Lovitz.
The Stepford Wives
er frumsýnd í Laug-
arásbíói og Há-
skólabíói í dag.
*