Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST2004 Fréttir DV Y rsufell Ibúi þurfti að útvega sér gistingu annars staðar á mánudag eftir að skemmdar- verkvarunniðá lás. Kristín Guðríður Vill flytja f tjald vegna ótta við nágrannakonu sina. Hefuráður búiðíbíl. Yrsufells-Kristín þorir ekki heim. Nágrannar hennar kvarta undan því aö hún hafi sakað þá um að stela hjónarúmi og öskrað í stigaganginum. Sjálf ætlar hún að flytja í tjald. Unqir missa ökuleyfið í ársskýrslu ríkislög- reglustjóra fyrir síðasta ár kemur m.a. fram að þeim sem misstu ökuleyfið á grundvelli punktafjölda fækkaði um helming frá fyrra ári eða úr 148 og nið- ur í 72 einstaklinga. Karl- menn eru sem fyrr í mikl- um meirihluta eða 97% og af þeim eru ungir öku- menn, eða 20 ára og yngri, rúmlega 67%. Hins vegar ber að geta þess að ungir ökumenn með bráða- birgðaskírteini missa það eftir 7 punkta en hinir eldri með fullnaðarskír- teini missa það eftir 12 punkta. Tveir guttar kveiktu í gámi Laust eftir kl. 20:30 í fyrra- kvöld var lög- regla og slökkvi- lið í Keflavík kallað að Myllubakkaskóla vegna elds í ruslagámi. Reyndist um lítinn eld að ræða og hafði hann kulnað áður en slökkvi lið mætti á staðinn. T- veir ungir drengir eru grunaðir um að hafa borið eld að rusli sem var í gáminum. Ekki varð verulegt tjón af þessu prakkarastriki. Gullgrafarar á ísafirði Gullgrafarar frá Kanada og ferðaþjónusta í Bret- landi nýta sér nálægð ísa- fjarðar við Austur-Græn- land og leigja flugvél frá ísafjarðaflugvelli. „Það eru aðallega breskir ævintýra- menn sem fara til að klifra á jöklum og kanadískir gullgrafarar, sem farið hafa til Sodalen í áratugi til að taka sýni og gera athuganir vegna platínu og gulls, sem nýta sér leiguflugið," segir Páll Janus Hilmarsson, starfsmaður Flugfélags ís- lands á ísafjarðarflugvelli. Bb.is greinir frá. Mæðgin sögðu nápnna hafa stolið hjnnarumi sínu Kristín Guðríður Hjaltadóttir, 62 ára íbúi í Yrsufelli 7, segist ekki þora heim til sín af ótta við óða nágrannakonu. „Ég þori ekki lengur heim til mín eftir að nágranninn bankaði og hótaði bar- smíðum. Ég er komin að því að taka fötin mín út og fara úr íbúð- inni. Og fara í tjald,“ segir Kristín, sem áður hefur búið í Yrsufelli 3 og 13, í Lödu-bifreið við Kringluna og við Umferðarmiðstöð- ina, BSÍ. Nokkuð undarlegir hrekkir hafa undanfarið átt sér stað í Yrsufelli 7 þar sem eldspýtum og öðru hefur verið troðið í sílindera á íbúðarhurð- um, þannig að fólk hefur ekki komist inn heima hjá sér. Kristín Guðríður Hjaltadóttir kvartar sáran undan framferði nokkurra nágranna. Nokkrir íbúar í Yrsufellinu sem hafa haft samband við DV segja hins vegar að Kristín og sonur hennar, hinn 36 ára gamli Antonio Passero, gangi stundum fram á stigagang með öskrum og ásökunum sem ein- kennast af vænisýki. „Eitt skiptið hélt hún því fram við mig að hjónarúmi þeirra hefði verið stolið um miðjan dag. Annað skiptið bankaði einn nágranninn upp á hjá „Við erum bæði að kljást við sykursýki og hjartabilun á háu stigi." þeim til að spyrja hvort ekki væri allt í lagi, því leki var í íbúðinni fyrir ofan þau. Svo brjálaðist sonur hennar og sagðist hafa brugðið svo mikið að hann hefði næstum fengið hjarta- áfall. Hann kallaði lögregluna til og sagði að nágranninn hefði reynt að drepa sig,“ segir nágrannakona, sem vill ekki að nafri sitt komi fram af ótta við að Kristín og Antonio setji rusl fýrir framan íbúðarhurðina hennar. „Þau gera það víst við óvini sína,“ segir hún. í samtali við DV áréttar Kristín að hjónarúmi þeirra hafi verið stolið þegar hún bjó í Blesugróf. „Það var allt hreinsað út þegar ég var í ferða- lagi fyrir norðan. Nú sofum við bara á tveimur dýnum og höfum ekkert annað. Svona er nú aðstoðin," segir hún. Kristín segir að þau mæðgin séu öryrkjar og þess vegna þoli hún ekki hávaðann í stigagöngum. „Við erum bæði að kljást við sykursýki og hjartabilun á háu stigi." Nágrannar segjast hins vegar vera ánægðir með hversu mikil ró og spekt sé í blokk- inni síðan fíkniefnaneytandinn á þriðju hæð var borinn út í mars. jontrausti@dv.is Samfylkingin vill unglingafangelsi en Fangelsismálastofnun segir það óraunsætt Ungu fangarnir eru engir mömmustrákar „í dag höfum við einstakt tæki- færi til að setja á stofn sérúrræði fyr- ir unga fanga," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylk- ingar. Ágúst Ólafur flutti þingsályktun- artillögu í vetur þar sem lagt er til að sett verði á fót sérdeild fýrir unga fanga á aldrinum 18-24 ára. Gert er ráð fýrir því að á sérdeildinni verði samneyti þeirra við eldri fanga í al- gjöru lágmarki og aðeins ef brýna nauðsyn beri til. Ágúst bendir á að verið sé að hanna nýtt fangelsi. „Það er hins vegar ekki gert ráð fýrir slfkri deild í Hvað liggur á? því og það er miður," segir Ágúst. í tillögunni sem Ágúst flutti ásamt fleirum á Alþingi segir að ungir fang- ar hafi margs konar sérstöðu. Ekki sé æskilegt að þeir afþláni dóma í sam- neyti við eldri afbrotamenn. „Það getur verið ókleift að ná fram betrun ungra fanga með því að vista unga fanga í samneyti við eldri fanga, sem sumir hverjir eru síbrotamenn," seg- ir þar. Erlendur Baldursson, afbrota- fræðingur hjá Fangelsismálastofn- un, segir unglingafangelsi ekki endi- lega vera réttu leiðina. „í nágrannaríkjunum hafa menn Ég er í Þýskalandi og reyni að selja fisk,"segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. spyr sjálfan sig að þvíhvernig verði litið á sjávarútveginn á Islandi i framtíðinni. Verður lit- ið á hann sem matvælaframleiðslu eða verðurþetta bara veiðimannasamfélag? Menn eru of mikið að rífast um fískveiðistjórnunarkerfíð, Istað þess að einbeita sér að því að selja fiskinn, eins og verður að gera. Það liggur á að menn nái sátt um kerfið." verið að stíga til baka og hætta með slíkar lausnir. Ungir fangar eru oft þeir erfiðustu og hópamynd- un mjög sterk hjáþeim," segir Erlendur. „Hér_________ á íslandi þekkj- Erlendur Baldursson ast menn afbrotafræðingur einnig mun Segir stefnuna að að- meira. Þú værir sFilja unga fanga. kannski að setja menn saman í deild sem hafa stundað glæpi saman frá unga aldri. Það opnar á hættuna á klíkumynd- un sem er afar slæmt." Erlendur segir því stefnuna vera þá að aðskilja ungu fangana og hafa þá með eldri föngum; hvort sem þeir eru barnaníðingar eða misind- „Menn verða líka að átta sig á því að það er lokaúrræði að senda menn á Litía-Hraun. Þá hefur öðrum úr- ræðum, eins og meðferð eða samfé- lagsþjónustu, iðulega verið beitt," segir Erlendur og bætir við; „Þótt þetta séu 19-20 ára strákar eru þeir engir mömmu- strákar."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.