Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST2004
Sport DV
íslenska landsliðið í knattspyrnu vann
stórkostlegan sigur á ítölum fyrir met-
Qölda á Laugardalsvelli í fyrrakvöld.
Eftir mjög misjafna og í það heila slaka frammistöðu í fyrstu
íjórum vináttuleikjum ársins 2004 kom allt annað íslenskt
landslið inn á troðfullan Laugardalsvöllinn í fyrrakvöld. Liðið
geislaði af sjálfstrausti og leikgleði og fyrir vikið fögnuðu
íslensku strákarnir stórkostlegum sigri. Þetta var enginn
grísasigur á einni frægustu knattspyrnuþjóð heims. Nei, þetta
var sannfærandi sigur þar sem íslensku mörkin hefðu getað
orðið fleiri ekki síst í fyrri hálfleik þar sem hver stórsóknin á
fætur annarri glumdi á frægasta varnarliði heims.
leikinn með tqfrabrögðum sínum og
það gerði hann margoft meðal
annars í bæði skiptin sem íslenska
liðið skoraði í leiknum.
Báðir markverðirnir komu að
leiknum með sínum hætti og stóðu
vaktina vel, vörnin var mjög traust,
spilaði skynsamlega og gerði fá
mistök og sóknarleikurinn var
beittur ekki síst vegna góðrar
vinnslu þeirra Þórðar Guðjónssonar
og Indriða Sigurðssonar upp
vængina.
Eftirminnilegur leikur
Það er auðvelt að missa sig yfir
þessum úrslitum sem eru vissulega
stórkostleg en það var ekki bara að
íslenska íiðið hefði lagt það ítalska
að velli heldur hvernig þeir gerðu
það. Fyrri hálfleikurinn var eftir-
minnilegur þar sem auk góðrar
baráttu og vinnusemi allra ellefu
leikmanna liðsins spilaði liðið
fallegan fótbolta allan tímann.
Þetta var ekki „pakkað í vörn“ -
boltinn sem oft þarf til að eiga
möguleika í bestu knattspyrnu-
þjóðir heims. Þetta var íslenski
fótboltinn, þar sem baráttu,
hugrekki og grimmd var blandað
saman við fallegt spil og beittan
sóknarleik. Nú vitum við hvað
íslenska liðið getur og það var
gaman að sjá rétt andlit liðsins eftir
dapra frammistöðu í mörgum
landsleikjum þar á undan. ooj@dv.is
Frábær frammistaða Gylfi Einarsson
dtti einstaka innkomu i íslenska landsliöið
á Laugardalsvellinum I fyrrakvöld. Gylfi
dtti þdttl báðum mörkum islenska liðsins,
skoraði það seinna og var illviöráðanlegur
fyrir Italina allan leikinn. DV-mynd Vilhelm
ítölsk ástríða.
Jíjóttu
‘Rusticfiella
‘T’osteria del
Corso
Fæst í
Hagkaup, Nóatún, Fjarðarkaup, Samkaup,
Úrval, Ostabúðin Skólavörðustíg, Fylgifiskar,
Sandholt bakarí
og Sælkera- og fiskbúðin Kaupvangi, Akureyri
Það var ljóst að innkoma tveggja
manna í liðið gerbreytti allri
spilamennsku þess til hins betra.
Gylfi Einarsson og Rúnar Krist-
insson komu báðir inn í liðið og það
má segja að miðjan, akkilesarhæll
liðsins í síðustu leikjum, hafi tekið
algjörum stakkaskiptum. Báðir eru
þeir í frábæru formi, hafa verið að
spila vel í lykilhlutverkum í sínum
liðum og það skilaði sér frábærlega
inn á Laugardalsvöllinn í gær.
Boltinn var farinn að ganga í
gegnum miðjuna og allir leikmenn
liðsins náðu að láta boltann vinna
með sér.
Það höfðu allir sem einn nægt
sjálfstraust til að spila boltanum á
næsta mann og halda honum innan
liðsins. Það var síðan undir Eiði
Smára Guðjohnsen að brjóta upp
Einkunnirleikmanna
Stóðst
prófíð
Fall-
einkunn
Birkir Kristinsson
Spilaði gallalausan leikþarsem rómuð
yfirvegun og öryggi einkenndi leik hans
allan. Arni Gautur fékk mun meira að gera
og stóð sig einnig mjög vel. Tveir góðir en
því miður er annar þeirra á förum.
Ólafur Örn Bjarnason
Stjórnaði vörninni eins og herforingi og er
orðinn fastamaður í liðinu. Átti helst í
erfiðleikum með langa bolta inn fyrir í seinni
hálfleik en að öðru leyti gallalaus leikur.
Hermann Hreiðarsson
Var kannski minna áberandi en oft áður en vann
vel úr öllum sínum hlutum og það munaði mikið ,
um hann i teignum þegar ítalir pressuðu aðeins 1
seinni hluta leiksins.
Kristján Orn Sigurðsson
Spilaði sinn fyrsta alvöruleik en leit ekki út fyrir að
vera að stíga fyrstu sporin. Fékk mikið boltann og
vel að spila honum frá sér sem var skemmtileg
nýbreytni. Tapaði ekki tæklingu að venju.
Þórður Guðjónsson
Spilaði mjög vel og er áfram ein aðaldrif-
fjöðurin í sóknarleik isienska liðsins. Hefur
bætt sig í vörninni og nýtir reynslu sina vel í
að lesa leikinn sem nýtist vel í vörn og sókn.
Indriði Sigurðsson
Hefur loksins fest sig í sessi i liðinu og var á
upp og niður vinstri vænginn allan
tímann. Indriði var mjög ógnandi i sókninni og
stóð vaktina vel í vörninni.
Brynjar Björn Gunnarsson
Þvilík breyting á einum manni. Frá því að
geta varla gefið sendingu í vor til þess að
leika sér að miðjumönnum ítala í 90 mínútur
í fyrrakvöld. Einn besti landsleikur hans.
Rúnar Kristinsson
Kominn aftur og við þurftum svo sannarlega á
honum að halda. Fyrri hálfleikurinn kemst næst
',.t Frakkaleiknum um árið, með bullandi sjálfstraust og
1 frábært auga fyrir flæði ieiksins. Velkominn aftur!
Gylfi Einarsson
Kominn ísína stöðu og það var ekki að
sökum að spyrja. Stórleikur, skoraði
mark, skapaði annað mark og var allt í
öllu allan tímann. Stjarna fædd.
Eiður Smári Guðjohnsen
Það eina sem vantaði i leik Eiðs Smára með
landsliðinu var vinnusemin og hreyfanleiki án
bolta. Eiður hefur bætt því í pakkann og er
orðinn einn besti knattspyrnumaður heims.
Heiðar Helguson
Við þekkjum hann en ítölunum brá mikið.
Heiðar vann enn einu sinni hug og hjörtu
islensku þjóðarinnar með hugrekki sínu og
baráttu. Vann allt allstaðar en hefði átt að
skora úr öðru af tveimur dauðafærum.
1
I
II