Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST2004 Sport DV Fimm féllu í Aþenu Það fékkst staðfest hjá forseta Alþjóðalyftingasambandsins að fimm lyftingamenn hefðu fallið á lyfjaprófum sem tekin voru fyrir ólympíuleikana í Aþenu. Þeir sem féllu í þessa gryfju eru frá Ungverjalandi, Indlandi, Mar- okkó, Tyrklandi og Moldavfu. Á mánudag var lyftingakona ffá Myanmar rekin heim frá ólympíu- leikunum vegna neyslu anaból- ískra stera. Fjórir íslenskir íþróttamenn hafa hingað til verið teknir í lyfjapróf á ólympíuieík- unum í Örn Arnarson hefur lokið keppni á ÓL og komst ekki áfram. Hann segir að það hafi verið erfitt að horfa á keppni í greininni sem hann ætlaði að taka þátt í. Iðaði þegar 200 metra baksundið iér fram Aþenu. Það eru ,OHNA 2004; þeir Hjörtur Már Reynisson sund- kappi, Hafsteinn Ægir Geirsson siglingakappi, Dagur Sigurðsson handknattleiks- maður og tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon. Tekin eru bæði þvag- og blóðsýni og er niður- stöðu að vænta úr prófunum á næstu dögum. Höfuðstöðv- arnar rymdar í gær voru höfuðstöðvar gn'ska ffjálsíþróttasambandsins f Aþenu rýmdar vegna sprengjuhótunar. Sprengjusérfræðingar með leitar- hunda voru sendir inn í bygging- una en engin sprengja fannst. Mjög líklegt er talið að hótunin tengist lyfja- og sviðsetningannáii grísku sprettahlauparanna Kosta- dinos Kenteris og Ekaterini Thanou sem sett hefur gríska íþróttaheiminn á annan endann. Malí áfram Riðlakeppninni í knattspymu karla og kvenna á ólympíuleikun- um er lokið. Argentínumenn voru þjóðin sem bar sigur úr býtum f öllum leikjunum í karlaflokki. f átta-liða úrslitunum á laugardag- inn mætast Argentína og Kosta Ríka, frak og Ástralía, Malí og ítal- ía og að lokum Paragvæ og Kórea. í átta-liða úrslitum kvenna f dag mætast Þýska- ,t, land og Nígería, jPp Bandarfldn og , .$0'' pT Japan, Mexíkó ; og Brasilía og Stór nöfn dottin út Það hafa mjög stór nöfn fallið úr keppni f tennis á ólympíuleik- unum. Tennisleikaramir banda- rísku Andy Roddick og Venus Williams eru úr leik í einliðaleik. Roddick er annar á heimslista karla og Venus er sjötta á heimslista kvenna. Venus tapaði f tveimur settum, 6-4 og 6-4, fyrir ffönsku stúlkunni Mary Pierce og Roddick beið lægri hlut með sömu úrslitum gegn Chilemanninum Femando Gonzalez. Óvæntustu tíðindin voru þó án j alls vafa þau að Svisslendingurinn Roger Federer, stigahæsti tennis- kappi heims og núverandi Wimbledon-meistari, heltist Úr lestinni í annari umferð en þá beið hann lægri hlut fyrir Thomasi Ber- dych, átján ára gömlum tékknesk- um útt, f tveimur settum gegn einu, 6-4, 5-7 og5-7. Örn Arnarson komst ekki áfram frekar en aðrir íslenskir sund- menn á ÓL þegar hann tók þátt í 50 metra skriðsundi í gær. Tími Arnar var samt viðunandi en hann kom í mark á 23,84 sekúnd- um en íslandsmet hans er 23,15 sekúndur. „Það var mjög heitt þegar sundið fór fram og ágætisstemmning. Það er alltaf gaman að keppa á svona stórmótum," sagði Örn sem var þokkalega ánægður með u'mann en sagðist riT^a hafa gert AÞENA þau mis- tök að taka of mörg sundtök. örn ætlaði sér alltaf að ná í verð- laun í 200 metra baksundi á þessum leikum og hann neitaði því ekki að það væri svolíúð erfitt að horfa á aðra keppa í greininni á meðan hann væri uppi í ólympíuþorpinu. „Mig klæjaði alveg í puttana er ég horfði á undanúrslitin í 200 metra baksundinu og það verður eflaust enn verra þegar ég horfi á úrslitin. Ég var allur á iði því ég átti að vera þarna. Ég verð bara að halda mér heilum svo ég geU verið þarna næst. Það kemur annað mót og þá verð ég klár í slaginn." Árangur íslensku sundkrakkanna hefur verið svona upp og ofan en hvað finnst Erni sjálfum um þennan árangur? „A heildina litið er hann nokkuð ásættanlegur held ég. Miðað við hitamismun og svona. Það er alltaf einhver ákveðin prósenta sem stendur ekki undir væntingum og svo vilja menn meina að það séu ekki nema 20-30% af keppendum sem bæfi sinn árangur á ólympíu- leikunum. Það segir sitt. Þetta eru allt í lagi U'mar, flestir," sagði Örn Arnarson. henry@dv.is „Mig klæjaði alveg í puttana er ég horfði á undanúrslitin í200 metra baksundinu og það verður eflaust enn verra þegar ég horfi á úrslitin." 24 sekúndur Örn Arnarson synti 124 sekúndur á ólympíuleikunum íAþenu og hefur lokið keppni. Hann klæjaði íputtana þegar 200 metra baksundið fór fram. DV-mynd Teitur Hjörtur Már Reynisson stóðst alla pressu í Aþenu í gær þegar hann setU glæsilegt íslandsmet í 100 metra flugsundi. Hjörtur Már kom í mark á _______ 55,12 sek- AÞENA úndu111 en fýrra met hans í þessu sundi var 55,46 sek- úndur þannig að bæfingin er nokkuð mikil. Takmark Hjartar Más var að bæta metið og ekki setti það minni pressu á hann að mamma og pabbi voru mætt til þess að fylgjast með stráknum í lauginni. „Þetta var mjög fínt. Líka gaman að standa sig vel þar sem mamma og pabbi voru komin til þess að fylgjast með. Það var ekki leiðinlegt að setja íslandsmet fyrir þau hérna á ólymp- íuleikunum," sagði Hjörtur en hann finnur voða h'tið fyrir pressunni og segist ekkert hafa verið stressaður. Græðir ekkert á því „Ég verð voða lítið stressaður. Maður græðir ekkert á því og ég er „Ég verð voða lítið stressaður. Ég er kom- inn yfir það að vera stressaður á svona stórmótum." viltu máltíð sem inniheldur færri en 270 kcal? sa\at|s 1 bragð • fjölbreytni * orka Caesarsalat Fáðu þér balsamic-salatsósu með grillkjúklinga Caesarsalatinu. kominn yfir það að vera stressaður á svona stórmótum," sagði Hjörtur sem er aðeins annar íslendingurinn sem setur met í lauginni í Aþenu. Hann hefur skemmt sér vel í Aþenu og æfiar að gera það áfram. „Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt. Næstu dagar hér fara bara í að slappa af og njóta þess að vera héma. Ætli maður kíki ekki að- eins í bæinn og fylgist svo með hin- um íslendingunum. Það er gaman að fylgjast með frjálsíþróttafólkinu og handboltalandsliðinu og svo er Rúnar náttúrulega í úrslitum. Það er samt ágætt að þetta er búið. Mér líð- ur virkilega vel núna," sagði Hjörtur Már Reynisson. henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.