Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Qupperneq 23
 DV Fókus FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST2004 23 Þá er komið að því. Einn af höfuðsnillingum rokksögunnar, Lou Reed, spilar í Laugardalshöllinni í kvöld. Hann er mættur með fjögurra manna rokkband og mun flytja efni frá öllum ferlinum. Trausti Júlíusson fékk áheyrn hjá meistaranum. 10 mínútur meö Lou Reed Það var sannkallaður stórstjömu- bragur yfir 101 Hdtel á miðvikudags- kvöldið þegar undirritaður mætti þangað til þess að taka viðtal við Lou Reed. Umboðsmaður rokkstjömunn- ar, tónleikahaldarinn, hljómsveitar- meðlimir og aðrir aðstandendur vom á þönum að redda hinu og þessu, enda hópurinn nýlentur. (Mike Rathke gítarleikari vill komast í golf, Lou sjálfur vill ólmur komast með á einhverja flotta staði til þess að taka ljósmyndir o.s.frv.). Fjölmiðlafólkið sem var mætt til þess að taka viðtal við Lou þurfti líka að bíða heillengi á meðan meistarinn hvíldi sig eftir flug- ið og stórtónleika hans í Hammer- smith Apollo í Lundúnum kvöldið áður. Og svo vippaði Forest Whitaker sér inn af götunni og kastaði kveðju á viðstadda eins og ekkert væri sjálf- sagðara... Það fara miklar sögur af því hvað Lou Reed sé erfiður í viðtölum en það hvarflaði samt aldrei að mér að sleppa tækifærinu þegar mér bauðst að spjalla við hann. Ég er búinn að hlusta á hann frá því að eyrun á mér fóm að gera greinarmun á rokki og öðmm umhverfishljóðum og ólíkt mörgum heiðursborgumm í rokkinu er Lou búinn að dæla út gæðaplötum með reglulegu millibili síðustu ár. Svo hef ég líka aldrei trúað þessu alveg með meintan hroka og fer í viðtalið með það í huga að Lou sé hugprúður heiðursmaður. Sem varð raunin... Vill ekki verða eins og mennskt djúkbox Meistarinn birfist um síðir og við- tölin gátu hafist. Mér vom úthlutaðar heilar tíu mínútur og ég setfist til borðs með Lou, en umbinn sat álengdar með augun á klukkunni. Ég byrjaði á því að spyrja Lou hvort að hann væri búinn að ákveða hvaða lög hann myndi spila í Höllinni: „Við erum enn að spá í það, hvað finnst þér að við ættum að gera?“ spyr hann á móti. Ég segi honum að mér finnist að hann eigi að taka slatta af gamla dótinu sem allir þekkja í bland við þetta nýja þar sem ef 5000 manns mæti á tónleika með honum í Reykjavík sé stór hluti þeirra ömgglega gamlir aðdáendur sem þekkja ekki nýrra efrúð. Hann tekur undir það, en segir: „Við ætlum að heilla þá upp úr skónum með nýju efhi líka. Vandamálið við „gamla dótið" eins og þú kallar það er að ef við spil- um bara það þá erum við eins og mennskt djúkbox. Við verðum áð hafa gaman af því að spila lögin líka.“ í framhaldi af því berst talið að nýju tónleikaplötunni hans, Animal Serenade, sem er sambland af göml- um og nýrri lögum en gömlu lögin eru í nokkuð breyttum útgáfum. „Hefurðu heyrt hljóminn á plöt- unni?" spyr hann mig. Ég svara því játandi en þá spyr hann: „Ertu með þokkalegar græjur eða hlustarðu kannski á mp3?“ Ég ætlaði einmitt að spyrja þig hvað þérfyndist um mp3-byltinguna? „Ég get ekki beðið eftír því að það verði hægt að fá mp3 með almenni- legu sándi. Þetta hljómar ágætlega í heymartólum en ef þú reynir að spila þetta í almennilegunm græjum hljómar það ömurlega. En þetta er frábær Ieið til þess að ná í tónhst. Ég meina ég á iPod, en ég er ekki búinn að fylla 10 þúsund laga kvót- Sækirðu þá tónlist á netið? „Já, ég sæki tónlist á iTunes og fleiri staði. Það er mjög auðvelt og skemmtílegt." Passar sig á að sjá enga plötu- dóma Fylgistu meðþvísem erað gerast í tónlistinni í dag, t.d. nýju New York- rokkbylgjurmi? „Ég hlusta á útvarpið og ef einhver segir mér frá einhverju sem á að vera gott þá tékka ég á því." Nú eru allir að talá um The Strokes. Hugsaðir þú: „Éghefnú heyrt þetta áður“ þegar þú heyrðir í Strokes? „Nei," segir hann ákveðinn, „ég var á bar þegar ég heyrði lag sem mér fannst Nýja platan þín The Raven er ekki þessi hefðbundna rokkplata... „Nei, þetta eru yfir tveir tímar með frábærum bandarískum leikurum eins og WUlem Dafoe, Steve Buscemi og Elizabeth Ashley sem leika endur- gerð mína af verkum Edgars AUans Poe. Allt með tónlist, fullt af rokklög- um og tónhstarmönnum eins og Omette Coleman, The Blind Boys of Alabama og David Bowie. Mjög gott efni, þó ég segi það sjálfur." Ertu ánægður með viðtökumar sem platan hefurfengið? „Hvað meinarðu? Ja, hún hefur nú ekki selst í milljónum ein- taka, ég vildi að hún hefði gert það. Annars les ég ekki plötu- dóma þannig að mér er sama." Er langt síðan þú hættir að íylgjast með dómunum um plötum- arþínar? „Ég hef lengivirki- lega reynt að passa mig að sjá enga dóma." Skítsama um álit annarra Þú hefur sjálfur lagt mikla vinnu í NYC Man-safnplötumar. Fórstu í gegnum mikið afgömlum upptökum? „Nei, en mig langaði tíl þess að koma betri hljómgæðum í þessi lög með því að nota nýjustu tækni. Ég vildi að þau hljómuðu jafii vel á geisladiski og á vínylplötunum. Ég fékk tækifæri til að gera þetta áður en tónböndin sjálf skemmdust. í dag er hægt að gera ótrú- lega hlutí í masteringunni og gott dæmi um það em lögin á NYC Man. Það er gaman að bera sándið saman við sánd- ið á vínylplötunum þótt ég þekki reynd- ar engan sem stundar þannig saman- burð." Það em líka tvö remix á nýju NYC Man-safhplötunni, afSatelliteofLove og Walk onthe Wild Side... „Já. Það var mín hugmynd af því að mér fannst þau frábær. Þeir sem gerðu þau þurftu að fá leyfi hjá mér því að ég á útgáfuréttinn og mér fannst þau virkilega góð." Hvenær getum við átt von á nýrri Lou Reed-plötu? „Akkúrat núna er ég að vinna að annarri ljósmyndabók (Lou gaf ný- lega út bókina Emotion in Action). Hún á að heita Lou Reed’s New York. Síðan fer ég að spá í að gera næstu plötu." Ein lokaspuming. Þú ert einn af áhrifamestu tónlistarmönnum rokk- sögurmar. Ég var að spá íhvemig það er. T.d. þegar tímaritið Rolling Stone birtirlista yfir 50 mikilvægustu nöfnin í50 ára sögu rokksins. Tékkarþú á því íhvaða sæti þú lendir? „I don’tgiveashit..." (Velvet Underground lentí í 19. sætí á lista Rolling Stone...) Erm em til miðar ístæði á tónleikana íkvöld og em þeir eingöngu kseldir í Skífunni á Laugavegi. Jane Scarpantoni - selló Nýjasti meðlimurinn. Kom inn t myndina d Raven-plötunni. Hefur spilaö með R.E.M., Throwing Muses, 10.000 Maniacs og Patti Smith. Sell- óið kemur svolítið istaðinn fyrir hljómborð eða saxófón I útsetning- unum en hún tekur llka eitthvað af gítarsólóunum... léttir og bragðgóðir réttir - fáar kaloríur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.