Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2004, Blaðsíða 24
Fókus DV Gylfi Einarsson fótboltajnaður Piparsvoinn í Lilleström Þessi nýjasta mynd Disney-íyrir- tækisins hlýtur þann vafasama heið- ur að vera síðasta teiknimyndin sem þeir framleiða fyrir kvikmyndahús með gamla laginu, framvegis verða þær allar í þrívídd. Hvort það á eftir að bjarga bágri stöðu fyrirtækisins veit ég ekki en ég veit það að það er ekki aðferðin sem gerir góða mynd heldur sagan og sagan er svolítið sem Disney þarf að fara að hressa upp á. Gauragangur fjallar um þrjár kýr sem reyna að hafa uppi á nautgripa- íslenska talsetningu er hversu mátt- laus hún er, það er eins og þau reyni ekki að vanda sig og of oft hljómar þetta eins og þau séu bara að lesa þetta af blaði, eins og þegar einhver persóna öskrar þá öskra leikararnir ekki heldur tala aðeins hærra. Það eru vitlausar áherslur á setningum og þýðingin oftast slök og ég er al- veg viss um að margir brandarar hafi orðið að engu út af menning- armismuninum. Þó stendur Rúnar Freyr sig langbest af öllum sem hesturinn Blesi og virðist vera sá Gauragangur í sveitinni Sýnd i Sambíóunum. Leikstjór- ar: Will Finn og John Sanford. Aðalhlutverk: Guðlaug E. Ólafsdóttir, Hanna M. Karlsdóttir, Rúnar F. Gíslason. Egill Ólafsson. Ómar fór í bíó maður hefði séð þetta oft áður. Það vantaði alveg þessa hressandi hönn- um sem var til dæmis í Lilo and Stich. Sagan er sama formúlan sem Disney hefur verið að nota síðustu ár og er ekkert nýtt þar á ferð. Lögin eru ekki grípandi og eru auðgleym- anleg, alveg eins og myndin í raun- inni og Alan Menke nær ekki að þjófi sem hefur sett alla bæi í fylkinu á hausinn og bjarga þar með þeirra eigin heimahögum í leiðinni. Með þeim í för er foli einn með mikil- mennskubrjálæði og vill hann vera á undan þeim að ná þrjótinum og ganga í augun á frægasta hausaveið- aranum í bænum sem er einmitt líka á eftir þessum jóðlandi glæpa- manni. Mér þykir það miður að okkur eldra fólkinu skuli ekki verið boðið upp á að horfa á myndina með ensku tali þar sem margir stórgóðir leikarar fara með aðalhlutverk, held- ur verðum við að láta okkur duga að hlusta á fólk sem eyðileggur stórfínt barnaefni með slöppum leiklestri á hverjum degi í sjónvarpinu. Mig grunar þó að enska útgáfan hafi ver- ið látin róa þar sem þessi mynd kol- féll í Bandaríkjunum og kom og fór án þess að einhver hefði tekið eftir því. Mitt helsta vandamál við eini sem reynir að lifa sig inn í per- sónuna. Einnig var Egill Ólafs ágæt- ur sem Gresju-Mjóni, skúrkurinn jóðlandi. Údit myndarinnar greip mig ekki, frekar óspennandi hönnun á persónum og manni fannst eins og galdra fram góða slagara eins og fyrr um árið í Beauty and the Beast og Little Mermaid. Krakkar gætu haft gaman af þessu en það er ekki mikið til að halda okkur gamla fólkinu við efnið, því miður. Ómar öm Hauksson Dirty Dancing: Havana Nights sýnd í Smárabíói og Regnboganum Dansað eins og vindurinn Árið er 1958 og staðurinn er Havana. Hin 18 ára Katey Miller (Romola Garai) flytur þangað með föður sínum sem er stjórnandi hjá Ford. Katey er ætlað að hanga með bandarískum nágrönnum sínum á Oceana-hótelinu en hún hefur önn- ur plön. Katey verður hrifin af þjón- inum Javier sem svo skemmtÚega vill til að er frábær dans- ari. Hún er harðákveðin í að læra þessar mögnuðu hreyfingar sem virðast vera Javier í blóð bornar og fær hann því til að vera dansfélagi sinn á stórri danskeppni á skemmtistaðnum The Palace. Fljótlega er dúxinn Katey farin að Dirty Dancing: Havana Nights Næturnar í Havana geta verið ansi heitar einsoghin 18ára Katey Miiier kemst að. ljúga að foreldrum sínum til að komast til að uppgötva nýja staði og hluti á Kúbu með Javier. Stundum æfa þau sig á strönd sem enginn veit af og líkamleg tjáning þeirra í dans- inum endurspeglar vaxandi ást þeirra. Þegar kvöld danskeppninnar kemur loksins eru Javier og Katey til- búin sem danspar, en það sem þau vita ekki er að skemmtistaðurinn og götur Havanaborgar munu breytast í stríðsvöll byltingar. Dirty Dancing: Havana Nights er sjálfstætt framhald hinnar vinsælu Dirty Dancing sem skartaði sjálfum Patrick Swayze í aðalhlutverki fyrir ansi mörgum árum. Myndin er frumsýnd í Smárabíói og Regnbog- anum í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.