Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Kerry svarar
fyrir sig
Forsetaframbjóðandinn
John Kerry réðst af krafti á
George Bush Bandaríkjafor-
seta og Dick Cheney vara-
forsetaefrii um helgina. „Ég
líð ekki að þeir sem þorðu
ekki að berjast fyrir land
okkar í Víetnam véfengi
frammistöðu mína f stríð-
inu.“ Kerry sagði að Bush
hefði forðast alvöru málefni
líkt og atvinnumál, efna-
haginn og heilbrigðiskerfið.
„Þeir tala ekki um frammi-
stöðu sína í þessum efn-
um því þeir vita að
hún er slæm.“
Theresa eiginkona
Kerrys var flutt í
skyndi á sjúkrahús
um helgina eftir
mikla magaverki.
Hún fékk að fara
heim eftir rann-
sóknir.
Olíufélög
vilja 50
milljónir
Olíudreifing ehf. og
Skeljungur hf. kreíjast 50
milljóna króna frá ísa-
fjarðarbæ fýrir að færa
olíubirgðastöðvar sínar
frá Suðurgötu í bænum.
Félögin hafa beðið um
viðbótarlóð við Suður-
götu, en til athugunar er
að þau flytji starfsemi
sína yfir á Suðurtanga. f
bréfi framkvæmdastjóra
Olíudreifingar til bæjar-
stjóra ísafjarðar kemur
fram fyrrgreind krafa
fyrirtækjanna og að til
óhagræðis sé að missa
möguleika til beinna
dælinga í skip við innri
höfnina á ísafirði, en
glefsur úr bréfinu birtast
á fréttavef Bæjarins
besta.
Áttu von dfrekari
vaxtalækkunum ?
Ásgeir Jónsson
hagfræðingur hjá KB banka
„Það gæti hæglega gerst. Það
sem er fyrst og fremst ánægju-
legt við þá þróun sem orðið
hefur á íbúðalánamarkaðin-
um er að almenningur nýtur
góð afþeirri samkeppni sem
rikir þar þessa stundina."
Hann segir / Hún segir
„Það eraldrei að vita en erfitt
að segja til um slíkt eins og
staðan er í dag. Hins vegar er
sú þróun sem orðin er mjög
ánægjuleg. Það erafhinu
góða að aukin samkeppni sé
nú komin á peninga- og lána-
markaðinn eins og gerst hefur
síðustu daga og vikur. Slíkt
kemur almenningi að sjálf-
sögðu mjög vel.“
Ásta R. Jóhannesdóttir
þingmaður
Lögfræðiteymi Marcos Brancaccia í Mexíkó segir að Interpol muni yfirheyra Jón
Baldvin Hannibalsson sendiherra vegna meintrar aðildar hans að brottnámi
barnabarns hans. Sjálfur vill Jón Baldvin ekki greina frá því hvort hann hafi þeg-
ar verið yfirheyrður.
ursinnar.
Interpol yfirheyri
f
„Svo virðist sem hann hafi gripið inn í ákvörðun íslenska kon-
súlsins í Mexíkóborg og við höfum gögn um það,“ segir Veron-
ique Dechelette, sem stýrir lögfræðiteymi Marcos Brancaccia í
Mexíkó, um meintan þátt Jóns Baldvins Hannibalssonar í að
tryggja brottflutning dótturdóttur sinnar frá Mexíkó til fslands.
Interpol hefur verið sett í málið.
Hæstiréttur íslands dæmdi Snæ-
fríði Baldvinsdóttur í hag þann 27.
ágúst síðastliðinn. Dómurinn geng-
ur í berhögg við álit mexíkóska utan-
ríkisráðuneytisins og ítalska dóms-
máiaráðuneytisins sem hafa talið að
brottnám barnsins firá Mexíkó, án
samþykkis föður, brjóti í bága við
Haag-samkomulagið. Marco hefur
teymi þriggja lögfræðinga sem vinna
að málinu í Mexíkó og lögfræðing í
Ítalíu sem vinnur að máli fyrir Evr-
ópudómstólnum í Strassburg.
Sjálfur segir Jón Baldvin að ræð-
ismaður íslands í Mexíkó hafi þurft
að gefa út neyðarvegabréf, sam-
kvæmt reglum, til að móðir og barn
kæmust úr landi undan ofbeldi
Marcos, sem hafi stolið vegabréfi
barnsins og haldið því frá móður
hennar.
Lögfræðiteymið í Mexíkó hefur
undir höndum bréf Jóns Baldvins til
Eduardos Rihan, ræðismanns ís-
lands í Mexíkóborg, sem gaf út und-
anþáguvegabréf fyrir barnið. Rihan
er fyrrum undirmaður Jóns Bald-
vins, sem var sendiherra í Wash-
ington og reyndar áður utan-
ríkisráðherra. Bréfið hefur verið lagt
fyrir dómara í Mexíkó sem sönnun-
argagn um ólöglegan þátt Jóns Bald-
vins. „Sönnunargögnin eru pappírar
sem dómarinn mun greina," segir
Veronique. „Jón Baldvin skrifaði til
ræðismannsins þar sem hann hvatti
til þess að barninu yrði veitt undan-
þáguvegabréf. Allir sem hjálpa for-
eldri að nema á brott barn eru sam-
ráðsmenn um glæp.“
Veronique segir að Interpol reyni
að ná sambandi við mæðginin.
„Mexíkódeild Interpol veit af málinu
og hefur samband við Alþjóða-
skrifstofu Interpol. Máiið er í farvegi
en svo kann að vera að ekki sé búið
að yfirheyra neinn enn. Herra
Hannibalsson og Snæfríður munu
fara í skýrslugerð. Þau eru ekki tengd
málinu sem vitni, heldur sem grtm-
uð um glæp. Þau verða því yfir-
heyrð," segir Veronique.
Ríkissaksóknari í Mexíkó, E1
Procuradoria General del Distrito
Federal, vinnur að sjálfstæðri rann-
sókn í tengslum við meint barnsrán.
Á næstunni mun koma í ljós hvort
embættið stofni til sérstakrar mál-
sóknar á hendur Jóni Baldvini, en
það veltur á útkomunni úr rannsókn
á barnsráninu. „Ef dómara í Mexíkó
þykir hans þáttur sannaður verður
nýju máli komið af stað. Friðhelgi
diplómata mun ekki koma í
veg fyrir að dómstóll í
Mexíkó kveði upp úr-
skurð."
Jón Baldvin verst
allra frétta af málinu og
játar því hvorki né
neitar að Interpol hafi
haft samband við
hann. „Um þetta mál
ræði ég ekki við
DV," sagði hann.
Um ástæðu
þagnar sinnar
sagði Jón Bald-
vin: „Það
þarfnast
engra skýr-
inga".
Snæfríður Baldvinsdóttir neitaði
að tjá sig um málið. „No comment,"
sagði hún.
Reimar Pétursson, lögfræðingur
þeirra í málinu, sagðist þurfa leyfi
til að tjá sig um málið. „Ég get
eiginlega ekkert tjáð mig
um málið. Ég er
bundinn trún-
aði," sagði
hann.
jontrausti@dv.is
O:o:e:í
Jón Baldvin Hannibalsson
Sendiherrann sendi bréftil fyrrver-
andi undirmanns sins vegna dótt-
Marco Brancaccia Hefureytt
minnst 6 milljónum króna í að fá
dóttur sína aftur.
„Þau eru ekki
tengd málinu sem
vitni, heldur sem
grunuð um glæp."
Linda Leifsdóttir var snúin niður af lögreglunni þegar hún kom að sækja son sinn
á lögreglustöðina í Keflavik
Þrjár löggur réðust á móður
„Ég var að ná í strákinn minn
niður á lögreglustöð. Hann hafði
verið tekinn drukkinn niðri í bæ,"
segir Linda Leifsdóttir, móðir í
Keflavík. Hún segir þrjá lögreglu-
menn hafa ráðist á sig eftir að hún
neitaði að yfirgefa lögreglustöðina
nema hún fengi að fara með 18 ára
son sinn heim. Sonur Lindu hafði
verið handtekinn drukkinn eftir að
lögreglan í Keflavík stóð hann að
því að brjóta flösku. Þegar Linda
kom að sækja drenginn í kringum
miðnætti á laugardaginn, sam-
kvæmt tilmælum lögreglu, sturtaði
hann glerbrotum af buxum sínum á
gólf lögreglustöðvarinnar.
Honum var umsvifalaust stungið
aftur í klefann og Lindu sagt að hún
fengi hann ekki með sér heim. Eftir
að lögreglumennirnir höfðu stungið
unga drengnum aftur inn í klefann
réðust þeir þrír að móðurinni með
harðri hendi í þeim tilgangi að
henda henni út af lögreglustöðinni.
„Ég er alveg steinhissa á þessu
og var náttúrlega rosalega reið yfir
þessari framkomu. Þarna voru þrír
lögreglumenn sem réðust á mig,
þar á meðal varðstjórinn. Ég var
bláedrú og hafði ekkert sagt eða
gert til þess að verðskulda þessa
meðferð," segir Linda. Hún hugðist
í gær fara til læknis til að láta líta á
hönd sína, sem var stokkbólgin eft-
ir að lögreglumennirnir höfðu snú-
ið upp á hana. Linda hafði í kjölfar-
ið samband við lögregluna í Reykja-
vík, sem ráðlagði henni að kæra at-
burðinn.
Linda beið við lögreglustöðina
fram undir morgun og fékk soninn
úr fangaklefanum klukkan átta á
sunnudagsmorgun. Hún segir þetta
ekki í fyrsta skipti sem lögreglan í
Keflavík beiti bæjarbúa ofbeldi. Til
að mynda hafi sonur hennar áður
verið rotaður af lögreglunni.
Linda Leifsdóttir Er reiö yfir ofbeldi sem
hún og ungur sonur hennar hafa verið beitt
aflögreglunni í Keflavík. Hún ætlar að kæra
atburöinn.