Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Page 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 9
Munch-
safnið lokað
Munch-safnið í
Osló verður lokað
næstu þrjár vikumar
á meðan nýju og full-
komnu öryggiskerfi
verður komið upp.
Tveimur ifægustu
málverkum Munch,
Ópinu og Madonnu,
var stolið þann 22. ágúst og
hefur safiiið sætt mikilli
gagngrýni fyrir ófulfkomið
öryggiskerfi. Ópið er talið 5
milljarða króna virði en
Madonna tveggja milljarða
króna en verkin voru máluð
af Munch árið 1893. Ópið er
hópi þekktustu málverka
heims, skipar sér á borð með
verkum eins og Mónu Lísu
Leonardos da Vinci og prýða
eftirprentanir verksins veggi
um allan heim.
Fnykur af samblandi skólps og rotnandi rækjuúrgangs hefur plagað Sauðkrækinga
í allt sumar. íbúar hafa brennt reykelsi til að yfirvinna fýluna og fólk hefur sést
kúgast á almannafæri þegar fnykurinn er rammastur. Heilbrigðiseftirlitið segist
vera að kanna aðstæður en vísar á bæjaryfirvöld, sem eru líka að skoða málið.
Samherji
aflarvelvið
Svalbarða
Skip tengd Samherja hf.
hafa verið við veiðar á Sval-
barðasvæðinu að undan-
fömu. Að sögn Brynjólfs
Oddssonar, skipstjóra á
frystitogaranum Kiel, hefur
veiðin verið jöfit og stöðug og
afar góð á undanfömum
dögum. Kiel hefur verið við
veiðar í mánuð og er kominn
með um 1.300 tonn af afla
upp úr sjó sem gerir um 450
tonn af þorskflökum. Afla-
verðmæti veiðiferðarinnar er
farið að nálgast 180 milljónir
króna. „Veðrið hefur verið
mjög gott, bara eins og á
Þingvallavatni og það er enn
bjart á nóttunni,'' segir
Brynjólfur á vefsíðu Sam-
herja, og er hann afar ánægð-
ur með gang veiðanna.
Hræddurvið
aðdáendur
Robbie Williams er svo
hræddur við áreitni aðdá-
enda að hann fer út að
ganga með hundinn sinn á
nætumar. Söngvarinn þolir
ekki frægðina og fer afar
sjaldan út á meðal fólks.
„Robbie finnst hann ekki
lengur ömggur á Bretíandi
og er að spá í að flytja til
Hollywood. Hann hefur eytt
gríðarlegum fjármunum í
öryggisgæsluna heima
hjá sér og þorir varla út
fyrir dymar." Söngvar-
inn, sem hefur mikinn
áhuga á fótbolta, hefur
ekki farið á leik í marga
mánuði af ótta við
brjálaða aðdáendur.
Styrkja fisk-
veiði um430
milljarða
Evrópusam-
bandið leggur til
að sjávarútvegur
í sambandinu
verði styrktur
um 430 miiljarða
íslenskra króna á árunum
2007 til 2013. Styrkimir sam-
svara meira en þrefaldri
veltu íslensks sjávarútvegs á
ári. Styrkimir beinast fyrst
og fremst að sérstökum
verkefnum, svo sem sjálf-
bærri nýtingu auðlinda, fisk-
eldi og þróun og fjölbreytni f
sjávarútvegi. Þá njóta byggð-
ir sem hafa orðið fyrir rösk-
un vegna erfiðleika í sjávar-
útvegi einnig styrkja.
„Ég hef sjálfur orðið að loka gluggum og kveikja á reykelsi í góðu
veðri eftir að skítafýlan hefur hrakið mig inn,“ segir Kristján Örn
Kristjánsson, lögregluþjónn á Sauðárkróki, sem hefur orðið að
lifa með römmum skólpfnyk yfir bænum í allt sumar.
Heilbrigðiseftirlitið hefitr ekki
komist að niðurstöðu um uppmna
fnyksins, en hann virðist koma úr
fjörunni og fara eftir sjávarföllum.
Því beinast öll spjót að fjörunni.
„Dóttir mín var að veiða í fjör-
unni fyrir skemmstu og hún kom til
mín einn daginn og sagðist hafa slit-
ið spún en hann væri mjög stutt frá
landi. Mér varð ekki um sel þegar ég
sá að hún hafði verið að veiða í
skólpinu, þama flutu mannarnir og
klósettpappírinn. Ég lét spúninn
vera," segir Kristján, en hugsar sér
ekki að láta bæjaryfirvöld vera.
Gasmælar væla innandyra
Kristján hefur skrifað bréf á vef-
inn Skagafjörður.com þar sem hann
lýsir lyktinni sem hann hefur þolað
þegjandi í allt sumar. „Ekki veit ég
hvað veldur lyktinni en hitt veit ég
að ég hef orðið vitni að því að fólk
hefur kúgast þegar fnykurinn hefur
verið sem sterkastur," segir hann.
Kristján nefriir sem sláandi dæmi
að gasmælir hans hefur byrjað að ýla
þegar fýlan er sem mest. Gasmælir
hans er öryggistæki vegna gaskúta
„Mér varð ekki um sel
þegar ég sá að hún
hafði verið að veiða í
skólpinu, þarna flutu
mannarnir og klósett-
pappírinn. Ég lét
spúninn vera."
sem hann hefur í geymslu, en til að
uppfylla skilyrði um brunavarnir
varð hann að útbúa loftræstingu inn
í geymsluna:
„Þessi gasskynjari á það til að fara
að væla upp úr þurru. Svo þegar ég
kem út finn ég bölvaða stybbuna.
Loftristin dregur inn loftið og það
virðist koma inn með því metangas
að utan. Ég get ekki útskýrt það
öðruvísi, ekki lekur gasið."
Málið skoðað á hundraði
„Auðvitað finnst fólki lyktin
vond,‘‘ segir Steinunn Hjartardóttir,
hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands
vestra. Hún segir heilbrigðiseftirlitið
hafa nokkra aðila undir grun um að
valda lyktinni.
„Þetta er mismunandi eftir sjáv-
arföllum. Það eru mjög sterkar líkur
á að þetta sé lykt af skólpi. Það eru
einnig líkur á að úrgangur frá rækju-
vinnslunni blandist þar saman við.
Ég vona að þetta leysist sem fyrst,
það er verið að vinna í þessu á
hundraði,'1 segir Steinunn.
Ekki fengust upplýsingar um
hvort gripið hefði verið til einhverra
aðgerða gegn fnyknum. Hallgrímur
Ingólfsson bæjartæknifræðingur
segir málið í vinnslu. „Ég hef sjálfur
farið þarna á kambinn. Það er vond
lykt þarna, en ég veit ekki hvort
þetta er skólplykt. Það er verið að
skoða málið og í bili get ég ekki
meira sagt,“ segir hann.
Ibúar nærri fjörunni verða því að
Heilbrigðiseftirlitið Máliö er í vinnslu á
hundraöi. Lyktin virðist sambland afrotn-
andi rækjuúrgangi og skólpi.
bíða enn um sinn eftir að anda létt-
ar. „Ég stend núna úti á eyri. Þessi
skítalykt er hérna úti á plani núna,"
sagði Kristján Örn í gær og skoraði á
bæjaryfirvöld að draga ekki lappirn-
ar lengur.
jontrausti@dv.is
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin
Tvær unglingsstúlkur kynntust á netinu
Þrjú stór nöfn bætast við
Sífellt eru að bætast ný nöfn í
tónleikaflóruna á Iceland Air-
waves. Sænska hljómsveitin Sa-
hara Hotnights, Hot Chip frá Bret-
landi og bandaríska hljómsveitin
The Bravery hafa eru nýjustu nöfn-
in sem hafa staðfest komu sína til
landsins en hátíðin fer fram 20. til
24 október.
The Bravery hefur slegið ræki-
lega í gegn í New York upp á
síðkastið en sveitin var að klára
sína fyrstu plötu. Sænska bandið
Sahara Hotnights fékk gríðarlega
góða dóma fyrir þriðju og nýjustu
plötu sína í tónlistartímaritinu
Rolling Stone en tónlist Hot Chip
hefur verið líkt við Jeff Buckley,
Prince, Coldplay og Kraftwerk. Á
hátíðinni koma fram 106 hljóm-
sveitir og listamenn. Á meðal ís-
lensku nafnanna eru Mínus, Gus
Mugison Mugison sló Igegn á Airwaves í
fyrra og ætiar aö endurtaka leikinn í ár.
Gus, Mugison, Singapore Sling,
Trabant og Einar örn Ghostigital.
Stærstu nöfn hátíðarinnar eru þó
án efa breska bandið Keane, The
Shins, Kid Koala, Non-Phixion,
Four Tet, The Stills, To Rococo,
Hood og fleiri.
Reyndu að drepa
sig saman
Lögreglan í Suður-Wales vonast
til að geta yfirheyrt 14 ára stúlku sem
liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eft-
ir að hafa gert tilraun til sjálfsvígs
ásamt vinkonu sinni. Stelpurnar
tóku stóran skammt af lyfjum sam-
an og lést önnur þeirra á sjúkrahús-
inu.
Laura Rhodes og Rebecca Ling
voru nýkomnar í leitirnar eftir að
hafa verið týndar í nokkra daga.
Stelpurnar kynntust á netinu fyrir
tveimur árum og á miða sem þær
skildu eftir sig þegar þær struku stóð
að þær gætu ekki verið án hvorrar
annarrar lengur. Fjölskylda Rebeccu
er agndofa yfir því að dóttir þeirra,
sem var vinsæl og hamingjusöm í
skólanum, hafi ákveðið að fremja
sjálfsvíg. Foreldrar hennar sitja nú
Laura Rhodes og Rebecca Ling Steipurnar
kynntust á netinu og stungu afsaman. Á miða
sem þær skiidu eftir sig stóöað þær gætu ekki
hugsað sér lifíð án hvorrar annarrar.
við sjúkrarúmið og bíða og vona að
dóttir þeirra vakni.
Lögreglan hafði fundið stelpurnar
í verslunarmiðstöð á föstudaginn en
einungis tveimur tímum síðar höfðu
þær tekið inn lyfin. Rebecca hafði
fengið að fara í heimsókn til Lauru
fyrr í vikunni. Fjölskylda Lauru hafði
samband við lögregluna þegar Laura
skilaði sér ekki heim eftir að hafa
fylgt vinkonu sinni á lestarstöðina.