Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Page 12
72 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Lokuöu LAX Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs, neitaði því í DV í síðustu viku að of knappar tímatöflur væru orsök þess að þrítug einstæð móðir tognaði í baki við ofsaakstur bílstjórans. Nú segir bílstjóri hjá Strætó að áætlanir séu allt of knappar Það sé undantekning ef þeir ná að standast áætlun og þeir neyðist til að aka langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Alþjóðlega flugvellinum í Los Angeles var lokað í meira en fjóra tíma á laugar- dag af öryggisástæðum. Yfir- menn vallarins segja að ótti við hryðjuverk hafi ekki ver- ið ástæða fyrir lokuninni. Þeir segja að vellinum hafi verið lokað þar sem ónafn- greindur aðili hafi komist í gegnum öryggisgæsluna án þess að sýna skilríki. Helgin er ein af stærstu ferðahelg- unum í Bandaríkjunum og olli því lokunin talsverðri óánægju. Réðstámellu með klippum Rúmlega þrítugur sænsk- ur maður hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að ráðast á 78 ára vændiskonu með limgerðisklipp- um. Konan sagðist fyrir réttí hafa verið að vinn um sínum þegar árásarmað- urinn kom og bað um vatns- glas, en hún viðurkenndi að vera vændiskona. Útgáfa mannsins var sú að þegar hann hafi borgað konunni fyrir þjónustu sína hafi hún hastað á hann. „Ég var ósof- inn og ruglaður af am- fetamínneyslu og barði hana með klippunum." Konunni tókst að flýja og kalla til lög- regluna sem fann manninn fldæddan nærfötum gömlu konunnar. Hermireftir Samönthu Leikkonan Kim Cattrall ætlar að fara að fordæmi Samönthu, sem hún leikur í Sex and the City, og setja vinkonur sínar fram yfir karlmenn. Kim, sem var að ganga í gegnum þriðja skilnað- inn, er komin með nóg af karlmönnum og segir að þeir geti aldrei veitt henni eins mikið og vin- konur. „Draumurinn snérist um að vera með manninum það sem eftir væri. Núna er ég í hjónabandi með vin- konum mínum." „Við erum að úthluta mörgum lóðum undir nýbyggingarog þaö eru 30 nýjar íbúðir í smíð- um. Við vorum að taka skól- ann og íþróttahúsið algerlega I gegn og það er búiö að end- urnýja íþróttahúsið og skipta um öll tæki í salnum. Svo erum við að endurnýja samkomu- húsið, gera átak í umhverfis- málum Landsíminn fram- kvæmdum í miðbænum þar sem þriggja hæða hús verða reist, “ segir Sigurður Valur Ás- bjarnarson, bæjarstjóri í San- gerði. Spurður um yfirlýsingar söngkonunnar Leonce um bæ- inn segir hann:„Leoncie býr hér á staðnum og henni er það velkomið. Ég lít á hana sem einn afíbúunum og það er hið besta mál." Tímatöílur Strætó hættulegar larbegum Bflstjóri hjá Strætó Bs segir áætlanir fyrirtækisins allt of knappar. Hann segir undantekningu ef innanbæjarvagnarnir standist áætlun og bendir á vagn númer 112 sem aldrei er á réttum tíma. Bflstjórinn segir einnig að þeir sem keyri vagnana neyðist til að fara yfir leyfðan hámarkshraða; þeir hafi beðið lögregluna að mæla hraðann á vögnunum til að benda Strætó bs á hættuna sem þeir eru að skapa. í síðustu viku sagði DV frá Fann- eyju Erlu Friðjónsdóttur, þrítugri einstæðri móður, sem tognaði baki eftir að strætisvagninn sem hún var í fór of hratt f beygju. Tveggja mánaða barn hennar datt einnig úr vagnin- um. Fanney kenndi knöppum áætl- unum um ofsaakstur bílstjóarans. Ásgeir Eiríksson, framkvæmda- stjóri Strætó, neitaði því. „Nei, ég fullyrði að svo sé ekki," sagði Ásgeir aðspurður um hvort tímatöflurnar séu of knappar. Hann bætti svo við: „Það kemur hins vegar fyrir að tafir verða í umferð og þá lenda menn eftir áætlun." Of knöpp tímaplön... Bflstjóri hjá Strætó bs, sem vildi ekki láta nafn síns getið af ótta við yfir- menn sína, segir bílstjór- ana vera að fá nóg. Þeir hafi barist lengi fyrir því að fá rýmri tímatöflur - eins og staðan sé í dag geti þeir vart farið á klósettið án þess að eiga á hættu að lenda á eftir áætlun. „Þetta eru aðallega Hafn- arfj arðarvagn- arnir en svo einnig nokkrir í Reykjavík," segir bflstjórinn og bendir sérstak- lega á vagn númer 112. Aðspurður um af hverju stéttar- félagið taki málið ekki upp á sína arma segir hann strætóbílstjóra inn- an vébanda BSRB. Það sé stórt félag og eigi kannski erfitt með að taka á svona sértækum málum. Bílstjór- arnir verði því að berjast fyrir þessu sjálfir. „Fyrir nokkrum árum kom upp svipað vandamál í Breiðholtinu," segir bílstjórinn. „Þá fengum við lög- regluna í lið með okkur. Létum hana mæla hraðann á vögnunum og senda Strætó bs. Þá sáu þeir að tímaplanið gekk ekki og það var leiðrétt. Nú er svipuð staða komin aftur upp hér í Reykjavík en ekk- ert er að gert." ...ávísun á slys Sfysið sem Fanney Erla Frið- jónsdóttir lenti í er ekki það fyrsta sem hægt er að rekja til of knappra tímatafla. Bflstjórinn hjá Strætó segir það al- þekkt að menn stressist upp þegar keyrtervið þessar aðstæður og geri mistök. Skemmst er að minnast þess þegar Björn Baxter Herbertsson, sumar- afleysinga- maður hjá Strætó bs, ók á rauðu ljósi á Kringlumýrabraut, klessti á fólks- bíl og svo aftur skömmu síðar þegar hann ók á kyrrstæðan bfl á Gullteigi. Björn var próflaus en var samt Fanney Erla Friðjóns- dóttir, einstæð móðir Tognaði í baki og korna- barn hennar datt í ofsa- akstri bílstjóra á vagni I i2. ráðinn til starfa hjá Strætó bs. Bíl- stjórinn segir þetta einn af mörgum hlutum sem eru miður hjá þessu annars ágæta fyrirtæki. simon@dv.is Óskar Pétur Friðriksson segist vita hver ber ábyrgð á lausagöngu búfjár Garðyrkjustjórinn sagður klippa á girðingar Kristján Bjarnason Garðyrkjustjórinn hefur átt f striði við bændur og lausagöngu búfjár þeirra og hesta. „Ég veit ekki hvort nokkur bóndi hafi verið í deilum við garðyrkju- stjórann," segir Óskar Pétur Frið- riksson, formaður Bændasamtaka Vestmannaeyja, um skrif Kristjáns Bjarnasonar garðyrkjustjóra og gagnrýni hans á bændur í bænum. Enn og aftur var klippt á girðingar í Vestmannaeyjum, bæði á föstudag og laugardag. Á föstu- daginn var klippt á girðingu við Dalabúið og telja bændur að skemmdavargur hafi verið þar á ferð. Um 20 kindur fóru út á þjóð- veginn út að flugvellinum. Á laug- ardag var klippt á rafmagnsgirð- ingu hjá hrossabændum á næsta túni. Bændur eru orðnir lang- þreyttir og telja sig vita hver skemmdarvargurinn er sem vinnur verk sín í skjóli nætur. „Það er garðyrkjustjórinn sjálf- ur sem hefur lýst því yfir að „stríð- inu er hvergi nærri lokið", hann er í stríði við tiltekna bændur hér í Eyj- um. Enginn bóndi hefur verið í rit- deilum við garðyrkjustjórann, á eyjar.net þar sem hann rakkar menn stöðugt niður," segir Óskar sem mun að eigin sögn vera eini bóndin í eyjum sem skrifi á „eyj- ar.net" myndskreyttar greinar sem hann kallar Don Kíkóta. Hann ber garðyrkjustjóranum ekki góða sögu segir hann ofsækja bændur með skemmdaverkum. „Hér er um mis- skilning að ræða, því að garðyrkju- stjórinn kallar bæjarstjórn Vest- mannaeyja linkindur," segir Óskar. „Ég hef skrifað um Don Kflcóta, og á ekki við þann mæta bónda, Gunnar í Lukku, sem hefur fengið ýmisleg frá embættismanninum. Hver Don Kíkóti er læt ég hvern og einn um að svara fyrir sig,“ segir Óskar sem ásakar garðyrkjustjóran um að vinna skemmdarverk á girðingum bænda í Vestmanneyjum í einka- stríði sínu við bændur og búfénað. freyr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.