Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Side 18
18 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 Sport rxv Leikmenn íslenska knattspyrnulands- liðsins kolféllu á fyrsta prófinu í undan- keppni HM. Miðlungslandslið frá Búlgaríu sá til þess að íslenska landsliðið komst niður á jörðina á ný eftir glæstan sigur gegn Itölum. Því verður ekki neitað að marga dreymir um að íslenska liðið komist á HM 2006 en þeir draumar virðast ekki byggðir á traustum grunni miðað við frammistöðuna sem boðið var upp á gegn Búlgörum á laugardag. íslenska liðið var víðs fjarri sínu besta og náði aldrei að sýna álíka leik og gegn ítölum. Liðið var þar að auki dauft, baráttulaust og hálfandlaust. Kjarkurinn var lítill og þegar í óefiii var komið voru lausnirnar nákvæmlega engar. íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega og fátt sem benti til annars en að það gæti náð hagstæðum úrslitum í leiknum. Því miður náði liðið aldrei að komast upp úr fyrsta gímum og var fast í hlutlausum stóran kafla leiksins. Leikskipulag íslenska liðsins er frekar einfalt og það spilar ávallt á sína styrkleika. Það var því furðulegt að sitja í stúkunni á laugardag og horfa á liðið gera eitthvað allt annað en að spila á sína styrkleika. Maður hristi hausinn trekk í trekk og spurði sjálfan sig af því af hverju Heiðar fengi ekki skallaboltana sem hann er vanur að fá og skapa oftar en ekki mikinn usla. Hann hefur vart fengið fleiri en tvo í þessum leik. Ekkert sérstakir Búlgarar Af hverju skeiðaði Hermann aldrei upp kantinn eins og hann er vanur? Hvar var ógnunin í föstu leikatriðunum? Svona gæti maður haldið áfram. Á móti kemur síðan að þetta búlgarska lið var síður en svo að sýna einhvem stjömuleik en þurfti samt ekki að hafa mikið fyrir sigrinum. Það fullnýtti gjafir íslenska liðsins. Það var eitthvað mikið að hjá liðinu á laugardag og það sá maður best þegar Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á völlinn. Hann barðist eins og ljón, hrinti og djöflaðist í Búlgörunum. Sýndi mikinn vilja sem vantaði hjá félögum hans. Hinir leikmennirnir komust ekki nálægt honum í baráttunni og án baráttunnar og leikgleðinnar kemst íslenska landsliðið aldrei langt. Það er einfaldlega ekki nógu gott. Það sem gerði kannski h'fið erfitt fyrir sóknar- mennina var að miðjan var algjörlega lömuð í leiknum. Arnar og Gylfi voru hreinlega jarðaðir og vom þar að auki ekki nógu duglegir að bjóða sig. Var engu líkara en þeir væm í feluleik á löngum köflum. Þórður átti ágætar rispur við og við og því var ótrúlegt að félagar hans skyldu ekki spila hann meira uppi. Þetta var varla meira en miðlungsleikur hjá Þórði en hann er samt með bestu mönnum. Það segir meira en mörg orð um frammistöðu félaga hans. Gjafir Árna Gauts Vörnin lenti í nokkrum vand- ræðum og ekki síst vegna þess að Ólafur og Hermann vom ekki eins og þeir eiga að sér. Ólafur hélt ekki dýptinni nógu vel og átti það til að vaða út f menn, sem gerði það að verkum að svæðið fýrir aftan hann galopnaðist. Árni Gautur er síðan manna best meðvitaður um eigin frammistöðu en hann byrjaði að útdeila jólagjöfum of snemma í ár. Þjálfararnir fá svo sem ekki háa einkunn fyrir sína frammistöðu. Þeir áttu engar lausnir við andleysi sinna manna og höfðu ekkert fram að færa þegar illa gekk. Jóhannes Karl kom með mikið líf í leikinn en Arnar Viðarsson hafði engu við að bæta. Einnig var furðulegt að þeir skyldu taka Heiðar af velli fyrir Helga Sigurðsson. Hefði ffekar mátt taka Gylfa af velli fyrir Veigar Pál sem er þekktur fyrir dugnað og að vera duglegur að sækja boltann. Það breytti engu að fá Helga inn en Veigar hefði verið líklegri til þess að sprengja upp leikinn. Hörmung Byrjunin í þessum riðli lofar síður en svo góðu og ekki verður auðvelt að mæta Ungverjum í Búdapest á miðvikudag þar sem þeir töpuðu fyrir Króötum um helgina. Sem betur fer var þetta þó aðeins fyrsti leikurinn og það er nægur tími til að bæta upp fyrir þessa hörmung sem boðið var upp á í rigningunni í Laugardalnum. henry@dv.is Svekktur Jóhannes Karl Guðjónsson gekk svekktur af leikvelli á laugardag. Hann gat þó verið ánægður með sitt framlag en hann sýndi gott fordæmi sem félagar hans hefðu gjarnan mátt fara eftir. DV-mynd Villi Einkunnir leikmanna Stóðst prófið Fall- einkunn Árni Gautur Arason * *? Spilaði hugsanlega sinn lélegasta lands- leik á ferlinum. Leit illa út í fyrsta markinu og skelfilega í þriöja markinu. Fór þar endanlega með aílar vonir um stig. Kristján Örn Sigurðsson Virkaöi óöruggur til aö byrja meö en komst upp meö það. Vann sig inn í leikinn og komst stórslysalaust frá honum. Besti varnarmaöur Islands í leiknum. Hermann Hreiðarsson Óvenju daufur og ekki líkur sjálfum sér. Tók engar afsínum frægu rispum upp völlinn og svaf stundum illa á veröinum í vörninni. Greinilega ekki í góðu leikformi þessa dagana. Ólafur Örn Bjarnason Stöðugleiki og öryggi hafa verið hans kjörorö en ekki aö þessu sinni. Stýrði vörninni illa og hljóp út úr sinni stööu á slæmum tímum eins og þegar við fengum á okkur annað markið. Þórður Guðjónsson Ekkert sérstakur en samt með betri mönnum. Skilaöi sínu ágætlega þrátt fyrir nokkrar slæmar sendingar. Hefði aö ósekju mátt fá boltann oftar i leiknum. Gylfi Einarsson Álíka fjarverandi og Arnar. Átti aö styöja við sóknarlínuna en fékk aldrei boltann. Var týndur á milli miðju og sóknar og gerði ekki nóg afþví að bjóða sig. Indriði Sigurðsson Algjörlega út á túni. Skilaði slakri varnarvinnu og var ofseinn i sóknina. Var alltaf týndur mitt milli og náði aldrei að komast i gang i þessum 'ik. Brynjar Björn Gunnarsson Hefur einföld verkefni. Skilaði þeim bærilega mestallan leikinn en var mjög óskynsamur er hann lét reka sig af velli. Gæti kostað hann byrjunarliðssæti í næstu leikjum. Arnar Grétarsson Efíslenska liðið hefði leikið í hvítum búningum hefði Arnar verið eins og draugur á vellinum. Var aldrei með i leiknum, skilaði nákvæmlega engu og kom vart við blöðruna. Eiður Smári Guðjohnsen Fyrirliðinn virkaði sprækur framan af. Var þá duglegur að hlaupa og bjóða sig. Pirraðist við mótlætið og hætti eftir það að spila sinn bolta og var aldrei veruleg ógnun i leiknum. Heiðar Helguson Fór örugglega langt með að eyðileggja fjölskyldulíf búlgarska markvarðarins með skammarlegri tæklingu. Það var eina lifsmarkið sem sást hjá honum í leiknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.