Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 Sport DV Skotfæralausip Frakkar ísraelsmenn hafa ekki verið hátt skrifaðir í knattspyrnuheiminum undanfarin ár en þeir gerðu sér samt lítið fyrir og nældu í stig á útivelli gegn Frökkum. Þrátt fyrir mikla pressu hjá Henry og félögum tökst þeim ekki að brjóta niður sterkan ísraelskan múr og skora. Eins og við mátti búast fögnuðu ísraelsmenn að leik loknum líkt og þeir væru orðnir heimsmeistarar. Evrópumeistarar Grikkja virtust enn vera þunnir er þeir mættu Albönum því þeir töpuðu leiknum, 2-1. Otto Rehhagel, þjálfari liðsins, hefur eflaust séð eftir því að hafa haldið áfram með liðið í stað þess að hætta á toppnum. Hann fer ekki með þetta lið á HM í heimalandi sínu ef það spilar ekki betur en það gerði gegn Albönum. James gaf stig Annar maður sem vill eflaust gleyma helginni er David James, markvörður enska landsliðsins. Englendingar voru með unninn leik í Austurríki þegar aðeins 19 mínútur voru eftir. Þá datt James í kunnuglegan gír - gaf tvö hræódýr mörk og Austur- rfldsmenn tóku annað stigið. Fyrir vikið er komin mikil pressa á enska landsliðsþjálfarann að setja James á bekkinn. Maður helgarinnar var þó vafalaust Svíinn Zlatan Ibrahimovic. Hann skrifaði undir samning við ítalska stórliðið Juventus áður en hann flaug í leflcinn gegn Maltverjum. Hann hélt UNDANKEPPNI HM W Úrslitin Finnland-Andorra 3-0 Aleksei Eremenko 2 mórk, Aki Riihilahtí, Iriand-Kýpur 3-0 Clinton Morrison, Andy Reid, Robbie Keane, vi>í Norður-iriand-Pólland 0-3 -• Maciej Zurawski, Piotr Wlodarczyk, Jacek Krzynowek. Eistland-Lúxemborg 4-0 Ingemar Teever, Manuel Schaglz (sjm i, Andres Oper, Kristen Viikmae. Rússíarid-Slóvalda 1-1 Omitri Boulykm - Robert Vittek. Svíss-Færeyjar 6-0 Johan Vonlanthen og Aíexandre Rey brjú rnórk hvor. Aserbaldsjan-Wales 1-1 Rashad Sadikltov -■ Gary Speed Tyrkland-Georgía 1-1 Fatih Tekke - Maíkhaz Asatlani Lettland-Portúgal 0-2 - Cfistiano Ronaido, P&dro PdUlfrTö. Rúmenía-Makedónía 2-1 Aleksandr Vasovski. Danmörk-Úkraína 1-1 Martin Jörgensen Andriy Belgía-Lltháen 1-1 Slóvenía-Moldavfa 3-0 Milenko Acimovic 3 mórk. Austurríki-England 2-2 Roland Kollmann, Andreas Ivanschitz - rrank Lampard, Steven Gerrard. Króatía-Ungverjaland 3-0 Dado Prso, Ivan Klasnic, Gabor Gyebes (sjrri). San Marínó-Serbía og Svart. 0-3 - Nenad Jestrovíc 2 mórk, Zvonomir Vukic. Albanía-Grikkland 2-1 Edvin Murati, Adrian Allaj - Stelios Giannakopoulos. Ítalfa-Noregur 2-1 Daníele De Rossi, Luca Toni - Maita-Svíþjóð 0-7 - Zlatan ibrahimovic 4 mork, Freddie Ljungberg 2 mörk, Henrik Frakkland ísraei 0-0 a Fjölmargir leikir fóru fram í undankeppni HM um helgina. Svíar voru menn helgarinnar en mesta athygli vakti döpur frammistaða Frakka, Englendinga og Evrópumeistara Grikkja. Zlatan hélt upp á nýja samninginn við Juventus með því að skora fjögur mörk é gegn Möltu og þar af f þrjú á fyrstu fjórtán mínútum leiksins. upp á samninginn með því að skora fjögur mörk í leiknum. Fyrstu þrjú mörkin komu á fyrstu 14 mínútum leiksins. Styttist í Zlatan Þessi lið eru með okkur íslendingum í riðli og íslendingar þurfa að temja Zlatan í október er Svíar koma í heimsókn. Þriðji leikurinn í okkar riðli var viðureign Króata og Ungverja í Króatíu. Þar voru heimamenn í feiknaformi og unnu stórsigur, 3-0. Ekkert sérstakar fréttir fyrir okkur íslendinga sem sækjum Ungverja heim á miðvikudag. Þar verður eflaust við ramman reip að draga enda Ungverjar hundfúlir með árangurinn í Króatíu. ítalir höfðu jafnað sig eftir tapið gegn íslendingum er þeir tóku á móti frændum okkar Norðmönnum á laugardag. ítalarnir voru reyndar íjarri því að vera sannfærandi í leiknum en þeir tóku öll stigin með 2-1 sigri. Luca Toni skoraði sigurmark ítala en risinn John Carew skoraði mark Norðmanna í leiknum. SAUÐURM DavidJames eyðilagði unninn leik hjd Englendingum með þvi að gefa Austurrfkismönnum tvö mörk á silfurfati. Hann tekur hér um höfuöið eftirað hafa gefið seinna markið. Reuters r-rW' ■ Bolta bullið Víðir Sigurðsson er sá maður sem áhugafólk um sögu íslenskrar knattspymu á hvað mest að þakka. í tvo áratugi hefur hann haldiö úti bókaflokknum íslensk knattspyma", en það vill oft gleymast hversu mildð afrek það er að halda úti svo metnaðarfuliri útgáfu um ekki fjölmennara knattspymusamfélag. Smátt er fagurt eftir Stefán Pálsson Víðir hlaut eldskím sína í íþrótta- fréttamennskunni á Þjóðviljanum gamla. Hugsjónir sósíalismanns vom í heiðri hafðar á Þjóðviljanum og það ekki bara í leiðurum og fréttaskýringum. Teiknimyndasög- urnar og íþróttasíðurnar vom ekki undanskiidar róttækninni. í skrípó-dálknum gaf smástelpan Folda auðvaldsskipulaginu á baukinn en sósíalismi íþrótta- deildarinnar kom ffam í áhuga á neðri deildunum og úrslitum frá fjarlægum löndum. Nú, þegar þorri fólks hefúr að- gang að netinu og getur á auga- bragði bmgðið upp stöðunni í portúgölsku deildakeppninni eða komist að því hver sé marka- hæstur í Norðurlandsriðlinum hér heima, er erfitt að gera sér í hversu óvenjulegar þessar fregnir voru. Vitað var að áhugamenn um neðri deildirn- ar, jafnvel gallharðir hægrimenn, keyptu Þjóðviljann til að fá fregnir af Arvakri, Hvatbemm, Augnabliki og hinum alræmdu Hildibröndum frá Vestmannaeyjum. Stórleikir á Meiavellinum Þar sem ég ólst upp við að lúslesa íþróttafféttir Þjóðviljans með serjósinu við morgunverðarborðið, varð ekki hjá því komist að ég fengi dellu fyrir neðri deildunum. Flest Reykjavíkurliðin í gömlu fjóröu deildinni spiluðu á Melavellinum eða jafnvel á gamla Háskólavellin- um, sem nú er undirlagður af gæs- um og bílastæðum. Þar mátti fylgjast með liðum sem síðar lognuðust út af, á borð við Ármann og ÍK, en einnig félög- um sem áttu eftir að eflast, svo sem Stjörnunni, Grindavík og Haukum. Keppnin í neðri deildunum er oft skemmtilegri en það sem boðið er upp á í efstu deild. Boltinn er að sönnu ekki eins góður, en ákafinn er engu minni. Stuðningsmenn Hvatar á Blönduósi og Sindra á Höfn eru allt eins heitir og hvaða KR-ingur, Framari eða Fyfldsmaður sem er. Lið í neðri deildunum fá mörg liver útlendinga í sfnar raðir og metnaðurinn er mildll, einkum á landsbyggðinni. Öfugt við efstu deildina eru sveiflumar f getu lið- anna í neðstu deildunum oft miklar á mflli ára. Fyrir vfldð er keppnin alls ekki eins fýrirsjáanleg og oft vill brenna við hjá þeim bestu. Fyrir neðrideildanörd eins og mig voru stórtíðindi síðustu viku því ekki tapið gegn Búlgörum eða deflur landsliðsþjálfaranna við fyrrum leikmenn sína heldur lokaleildrnir í annarri og þriðju deildinni. Niður- staðan varð sigur landsbyggðarinn- ar. Annað árið í röð fóru Víkingar frá Ólafsvflc upp um deild. Ætli lið af Snæfellsnesinu hafi spilað í næstefstu deild síðan Ásgeir Elías- son hóf þjálfaraferil sinn undir jökli fyrir aldarfjórðungi? Það voru hins vegar Siglfirðingar sem hrepptu meistaratitilinn á markatölu. Siglufjörður á merka fót- boltasögu og hefur í það minnsta tvisvar verið nærri því að komast í efstu deild. í annað skiptið tapaðist sætið þar meira að segja á kæru - Siglfirðingar höfðu teflt fr am of ung- um leikmanni! Níundi áratugurinn snýr aft- ur! Á hinum enda deildarinnar máttu Víðismenn úr Garði þola fall. Þetta fomfræga Suðumesjafélag er því komið í neðstu deild. Víðisliðið sem lék í efstu deild um miðjan ní- unda áratuginn og komst alla leið í bikarúrslit var ógleymanlegt. EJckert lið hlakkaði til að halda suður meö sjó að etja kappi við Daníel og Grét- ar Einarssyni á malarvellinum sem sagður var aflóga flugbraut. Fót- boltaáhugafólk hlýtur að sjá eftir Víðismönnum. í þriðju deildinni stálu Austfirð- ingar senunni. Eftir þrjú vonbrigða- sumur er Fjarðabyggð loksins kom- in upp um deild ásamt liði Hugins frá Seyðisfirði. Yfirburðir austan- manna hljóta að hafa komið „stóm liðunum" af suðvesturhominu í opna skjöldu. Við neðrideildanördarnir svekkjum okkur þó mest á að Ein- herjar frá Vopnafirði hafi ekki náð að fylgja eftir góðri byrjun. Hver man ekki þá tíð þegar Einherji var öflugasti Idúbburinn á Austurlandi og hafnaði oft um gömlu aðra deildina miðja? íslenska landsliðið, hvað? Mætti ég heldur biðja um gamla Melavöll- inn aftur og almennilegan stórkarla- bolta. Spurning hvort ekki mætti hóa saman Víkverja og Skotfélagi Reykjavíkur á nýjan leik?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.