Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 23 „Ég áhvað aö japönshuml m F y r i r m a n n a p a j af n t s e m m a n n æ t u r 4 King Kong sem ástarsaga Peter Jackson er í óða önn að vinna að endurgerð King Kong en það er Andy Serkins, sá sem lék Gollum í Hringadróttinsögu, sem mun leika sjálfan apann. Aðalhlutverkin eru svo leikin af Naomi Watts, Jack Black og Adrien Brody en Jackson segir sína útgáfu vera nokkuð frábrugðna upphaflegu útgáfunni. „Kong Kong er mynd sem ég hef elskað síðan ég var bam og hún er raunar ástæðan fyrir því að ég ákvað að gerast kvikmyndagerðarmaður," segir Jackson og bætir við að myndin verði í senn ástar- saga, spennu- og tæknibrellumynd af bestu gerð auk þess að vera endurútgáfa af meistarastykki. Myndin mun kosta einhverj- ar 130 milljónir dollara í framleiðslu en áður en Jackson hirti nokkra Óskara fyrir allar Hringadróttinssögumyndimar hafði hug- myndum hans um King Kong margsinnis verið hafnað. Annað er uppi á teningnum nú, 30 Óskarsverðlaunum síðar. Þýska mannætan Armin Meiwes gæti verið að fara að græða helling af peningum eftir að kvikmyndafyrir- tækið Stampfwerk keypti einkaréttinn á sögu hans. Armin Meiwes auglýsti sem kunn- ugt er eftir áhugasömu fólki sem vildi láta borða sig, á Internetinu. Merkilegt nokk fékk hann svar frá Bernd-Jtirgen Brandes og fór það svo að Meiwes át hann. Var hann sfðan dæmdur f átta og hálfs árs fangelsi f Þýskalandi (janúar. Meiwes hefur samþykkt að segja sögu sfna ( 90 mínútna langri heimildarmynd og fyrir það fær hann veglega greitt. Ekki hefur fengist uppgefið hvað sagan kostaði en talið er að upphæðin hlaupi á tugum milljóna þar sem margir vildu tryggja sér einkaréttinn á frásögn Meiwes. Burtvildi ekkl vera Bond Burt Reynolds er greinilega farinn að láta aldurinn fara í taugarnar á sér og hann hefur verið ansi yflrlýsingaglaður upp á síðkastið. Hann hefúr h'úð fengið að gera í seinni tíð og hefur þess vegna verið duglegur við að rifja upp hlut- verk sem hann hafnaði á yngri ámm, svona til að minna á fyrri vinsældir. Nú hefur hann sagt frá því að honum hafi verið boðið hlutverk James Bond þegar Sean Conney hætú að leika njósnarann. „Á þess- um tíma fannst mér Sean vera frábær í hlut- verkinu og hver sem á eftir hefði komið hefði verið ömurlegur í samanburði við hann. Svo finnst mér líka Breti eigi að leika þetta,“ segir Burt en það var George Lazenbysem sem lék Bond í næstu Bond-mynd, On Her Majesty’s Secret Service. I I i I að vita margir hv— Ari Magg ljósmyndari er "Venda er hann löngu búinn að skipa sér sess lmeðal fremstu ljósmyndara landsins. Færri jvita hver litla systir hans, Silja Magnúsdótúr ljósmyndari er enda er hún sex árum yngri og ekki langt síðan hún útskrifaðist út framhalds- skóla. Silja ætlaði heldur aldrei að verða ljósmyndari heldur lét hún sér lengst framan af duga að fylgjast með bróður sínum og fóður sem einnig er virtur ljós- myndari. „Ég hafði veriö að hanga í stúdíóinu hjá þeim og fýlgjast með en það kviknaði ekki neinn mikill áhugi fyrr en ég fór í framhaldsskóla og fór að fikta við þetta sjálf," segir Silja sem aldrei hefur lært ljósmyndum í skóla. ,Allt sem ég kaxm hef ég lært af Pabba, Ara og sjálf í vinnunni í New York." Efúr að hún útskrifaðist úr Versló fór hún úl New York úl að heimsækja vinkonu sína sem starfaði þar sem fyrirsæta. Heimsóknin dróst þó heldur betur á langinn og undir lokin, efúr tæpt ár í borgmrn, var Silja farin að starfa sem aðstoðarmaður stjömuljósmyndar- ans Davids LaChappelle stúdíói hans í New York. Söngkonan Kylie Minogue er farinn að óttast að hún muni aldrei eignast barn þar sem hennar barneignartími er brátt að enda. Söngkonan er að verða fertug og veit að tfm- inn er að renna út.„Þetta er bara spurning um líffræði. Þegar ég var yngri vissi ég ekk- ert hvernig líf mitt myndi verða nema hvað ég gerði alitaf ráð fyrir að eignast börn. Núna er ég að átta ég mig á þvi að það getur vel farið þannig að svo verði ekki," segir ástralska söngkonan sem þessa dagana er með franska leikaranum Olivier Martinez. Hún er meira að segja farin að læra frönsku til að ganga enn frekar f augun á honum.„Fram- burðurinn hjá mér er bara nokkuð góður og hann er alsæll með þetta framtak mitt," segir Kylie sem hefur komið víða við um ævina. \ u mm1 i „Ég ákvað að dvelja lengur í New York og fékk vinnu í hip hop-plötubúð hjá japönskum plötusnúð. Þar vann ég í þrjá mánuði. Svo sótú ég um hjá LaChapp- elle, sendi tölvupóst og fékk vinnu þar. Vinnan fólst aðallega í tölvuvinnslu á myndum hans. En þaö var samt góð reynsla." í New York vann hún líka við skipulagningu tísku- sýninga og myndlistasýninga og gat af sér goú orð, og verður þar að teljast nokkuð góður árangur af ungri ís- lenskri verslóstúlku sem æúaði upphaflega bara að heimsækja vinkonu sfna. Silja er nú fluú aftur heim og hefur síðan hún kom aftur starfað sem aðstoðarljósmyndari og stílisú í stúd- íói feðganna, Photoland á Hverfisgötunni. Hún segist ekki reikna með að setjast á skólabekk í faginu enda búi hún svo vel að vera aö læra af þeim bestu. Hún stefnir þó á að fara aftur út og vinna þar við ljósmynd- nm áður en langt um líður. Við eigum örugglega efúr að sjá verk hennar í fremstu röð áður en langt um llður þvi Silja þykir þeg- ar með efnilegustu ljósmyndurum landsins, þráú fyrir ungan aldur. rap@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.