Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Side 24
24 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 Fókus DV Shyne Godfather Buried Alive itici 5HYNE Def Jam/Skífan í dag kemur út ný plata meö New York sveitinni Radio 4. Hún heitir Stealing Of A Nation og er þeirra þriðja plata. Trausti Júlíusson lagði við hlustirnar og kynnti sér pólitískar hugmyndir sveitarinnar. Shyne er listamanns- nafti Jamal Barrow. Hann fæddist á Belize árið 1978, en flutti til Brooklyn þegar Plötudómar hann var 7 ára. Hann byrj- aði að rappa þegar hann var 13 ára. 15 ára varð hann fyrir skotárás og missti næstum annan handlegginn. Hann gaf út sína fyrstu plötu árið 2000, en í byrjun ársins 2001 var hann dæmdur fyrir skot- bardaga sem átti sér stað á klúbbi í New York þar sem hann var með Puff Daddy, J.Lo o.fl. Sagan segir að Puffy hafi fengið Shyne dæmdan til þess að sleppa sjálfur. Shyne sat inni, en er nú laus og búinn að gefa út nýja plötu. Og hvernig er svo platan? Ekki alslæm. Shyne hefur flotta rödd og það eru þokkalegir hlutir að gerast tónlistarlega líka, en það er of mikið af slökum lögum inn á milli þessara flottu... Trausá Júlíusson. Badly Drawn Boy One Plus One Is One irk'ki. XL/Smekkleysa Þessi fjórða plata Badly Drawn Boy, eða Damon Gough eins og hann heitir réttu nafni, er í svipuðum stil og fyrri plöturnar. Þetta er tímalaust popp, -vandað og vel útsett. One Plus One Is One er aðeins einfaldari og léttari en síðasta plata, Have You Fed The Fish, en það eru samt engir smellir sem festast jafn fyrirvara- laust á heilann á manni og Önce Around The Block af fyrstu plötunni eða Silent Sigh af About A Boy. Það er samt fullt af prýðislögum hér og platan vinnur á við frekari kynni. Nafnið er tilvísun í rómantískan samruna, -þegar tvær manneskjur verða sem ein. Náunginn með prjónahúf- una virðist hafa dregið sig að miklu leiti út úr sviðs- ljósinu, en hann er greini- lega enn að búa til fína tón- list. Trausti Júlíusson. 1 . (1) The Libertines - Can't Stand Me Now 2. (2) Nick Cave - Nature Boy 3. (3) Cornershop - Topknot 4. M The Beastie Boys - Triple Trouble 5. (-) Interpol- Slow Hands QÝ (-) Dizzee Rascal - Stand Up Tall 7. (6) The Futureheads - Decent Days And Nights 8. (9) Young Buck - Let Me In 9. (8) Terror Squad - Lean Back 1 0. (5) Prodigy- „Flestar af mínum uppáhalds- hljómsveitum í dag eru frá New York," segir Anthony Roman söngv- ari og bassaleikari hljómsveitarinnar Radio 4 þegar hann er spurður út í gróskuna í tónlistarhfi borgarinnar. Og hann heldur áfram: „Við erum hluti af samfélagi hljómsveita og við erum mjög stoltir af þvf. Radio 4 er oft nefnd í sömu andrá og aðrar New York sveitir sem blanda saman pönki og danstónlist, t.d. The Rapture og!!!, en sveitir eins og The Strokes, Yeah Yeah Yeahs, Outhud, Interpol, Liars og Le Tigre tilheyra líka hinni nýju rokkbylgju borgarinnar. Post-pönk og dub áhrif Radio 4 var stofnuð í New York árið 1999 af fyrrnefndum Anthony Roman, gítarleikaranum Tommy Williams og trommuleikaranum Greg Collins. Seinna á ferlinum bættust slagverksleikarinn P.J. O’Connor og hljómborðsleikarinn Gerard Garone í hópinn. Sveitin hefur alltaf verið undir miklum áhrifum frá breska post-pönkinu. Hún heitir eftir nafni á lagi með PiL og áhrif sveita eins og Gang Of Four og Wire eru augljós. Fyrsta Radio 4 platan The New Song And Dance kom út hjá litlu fyrirtæki árið 2000. I-Iún vakti ekki mjög mikla athygli og Anthony opnaði litía plötubúð (Somethin’ Else) í Brooklyn þar sem hann seldi reggí, dub, post-pönk og nýja tónlist frá Bretiandi. f næsta húsi var kaffihús sem var rekið af fyrrverandi ska tónlistarmanni sem var kominn með teknó og house- dellu og áhrifin ffá danstónlistinni og reggíinu síuðust inn og heyrast í tónlist Radio 4 bæði á annarri plöt- unni þeirra Gotham! sem kom út árið 2002 og á nýju plötunni Stealing Of A Nation sem kemur út í dag. Pólitískir textar. Anthony Roman hefur miklar mætur á breskri tónlist og nefnir sem dæmi The Streets, Audio Bullys og Dizzee Rascal. Radio 4 fengu breskan pródúser til þess að stjórna upp- tökum á Stealing Of A Nation. Hann heitir Max Heyes og hefur m.a. unnið með Primal Scream og The Doves. Platan var tekin upp í Brook- lyn í frekar afslöppuðu andrúmslofti þar sem menn köstuðu á milli sín hugmyndum og gerðu tilraunir. Tón- listin á henni er í beinu framhaldi af Gotham! Dansvænt rokk með póli- tískum textum. Nafiúð á plötunni, Stealing Of A Nation er bæði skír- skotun í reggí-hittarann Healing Of A Nation með Jakob Miller frá 1979, en að sögn Anthonys er líka hægt að heimfæra nafnið á sigur repúblikana í forsetakosningunum árið 2000 eða á stríðsreksturinn í frak. Eða bara á stefhu stjómar George Bush yfir- leitt... Radio 4 nýtur töluverðrar vin- sældar og mikillar virðingar í Evrópu. Þýska fyrirtækið City Slang gefur hana út. Meðlimir Radio 4 hafa mikið verið í Evrópu að spila og hafa orðið varir við mikla andstöðu í álfunni við stríðsreksturinn í írak. Og þeir skammast sín fyrir stjómvöld í þeirra eigin landi. A einum tónleikum þeirra í Hamborg í Þýskalandi var skilti á hurðinni á tónleikastaðnum sem sagði: „Bandaríkjamönnum bannaður aðgangur". Þeir spiluðu nú samt... 10 ára afmælisútgáfa af Grace: Sérstaklega flottur pakki Viðhafnarútgáfum af gömlum meistaraverkum í poppsögunni er alltaf að íjölga og þær eru líka alltaf að verða glæsilegri og glæsilegri. Fyrir nokkrum dögum kom í versl- anir 10 ára afmælisútgáfa af Grace- plötunni hans Jeff Buckley. Eins og vaninn er með útgáfur af þessu tagi þá fylgir aukadiskur. Á honum eru 12 lög, -aukalög sem ekki eru á Grace, tónleikaútgáfur og aðrar tökur af lögum á plötunni. En það er ekki allt og sumt. Til þess að gera upplifunina á Grace ennþá sterkari fylgir DVD-plata líka. A henni er heimildarmynd um Jeff og gerð plötunnar, 5 myndbönd við lög af Grace og útgáfulisti. Útgáfunni fylgir líka veglegur bæklingur. Jeff Buckley var sem kunnugt er sonur söngvaskáldsins Tim Jeff Buckley Grace var hápunkturinn á styttum ferli. Buckley. Hann fæddist í Orange County í Kaliforníu árið 1966, en drukknaði í Missisippi fljótinu í Tennessee 29. maí 1997. Hann var ásamt vini sínum á leiðinni að hitta meðlimi í hljómsveitinni sinni til þess að æfa efni fýrir upptökur á nýrri plötu, My Sweetheart My Drunk, sem Andy Wallace, sá sami og stjórnaði upptökum á Grace, átti að pródúsera. Jeff ákvað fyrirvara- laust á miðri leið að stinga sér til sunds í Missisippi ánna. Hann hvarf sjónum félaga síns og áköf leit bar ekki árangur. Líkið fannst 4. júní. Grace var eina stóra platan sem Jeff Buckley gaf út á meðan hann lifði og er sannkallað meistaraverk sem hefur elst vel og sannfært fleiri og fleiri hlustendur eftir því sem árin líða. 10 ára afmælisútgáfan af henni er einstaklega vandaður og flottur pakki. Can Endur hljóð- blandaðir Þann 11. október verða fjórar fyrstuCan plömrnar M Monster “ * Wm * Wí Movie (1969), ( ftW. Soundtracks • | rm \ (1970), Tago |-t f Mago (1971) L t W f + ogEge I #1 | | Bamyasi " ff J W Ý(1972) endur- y ' útgeftiar. Það eru Can meðlim- irnir Holger Czukay og Irmin Schmidt sem sjá um endur- hljóðblandanirnar ásamt Jono Podmore. Can var ein af höfuð- sveitum krautrokksins ásamt Neu!, Faust og Kraftwerk. Super- discount 2 á leiðinni! Franski danstónlistarmaður- inn Etienne De Crecy aðal- ■.■wvugt. - hvatamaðurinn að ttímamótaplöt- unni Superdiscount sem kom út árið 1996 er tilbúinn með Superdiscount 2. Fyrri platan var eitt af meistaraverk- um frönsku bylgjunnar í dans- tónlist. Á plötu númer 2 verða auk Etienne, Alex Gopher, Philippe Zdar, Boombass og DJ Mendhi. Útgáfudagur 20.september. Liars taka upp plötu nr. 3 New York sveitin Liars er ný- komin úr hljóðveri í Berlín þar sem hún tók upp grunna fyrir sína þriðju plötu sem kemur út á næsta ári. Hljómsveitin er líka að fara í tónleikaferð um Banda- ríkin ásamt Blonde Redhead. Sú ferð byrjar með tónleikum í Carrboro í Nýju Karólínu 4. október, tveimur vikum eftir tónleika Blonde Redhead í Reykjavík... 30 ara afmælis- útgáfa af Burn Þann 27. september kemur út 30 ára afmælisútgáfa af Deep Purple plötunni Burn. Burn var fyrsta platan sem Purple gerði eftir að Ian Gillan hætti og David Coverdale tók við sem söngvari. Hún þótti sýna að það væri líf eftir Gillan. Á þess- ari nýju útgáfu verða 5 aukalög: eitt b-hliðarlag og fjórar endur- hljóðblandanir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.