Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Síða 25
DV Fókus MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 25 Nútímadanshátíðin í Reykjavík 2004 stóð sem hæst um helgina. Opnun á föstudag, stórkostleg gestasýn- ing á laugardag, sýningar báða eftirmiðdagana og Sunnudagskvöld. Páll Baldvin Baldvinsson telur að svona brött uppbygging með löngum hala sé skipulag sem skili of fáum gestum. Nú þegar hefur almenning- ur misst af stærstum hluta þess sem í boði var. Áhugi á því reyndist því miður of lítill. Á mánudegi er hátíðin að stórum hluta liðin hjá, horfin. Það er galli. Hátíðin er sprotarækt í besta falli, tilraunastofa, en verður að brjótast út úr þeirri einangrun sem nútíniadansinn er lent- ur í hér á landi, komast út meðal fólks og verða almenningseign. Annars er hún sjálfs- ræktamámskeið fyrir sértrúarsöfnuð. Ef við ímyndum okkur að opnun forseta ís- lands setji nútímadanshátíð í virðingarþrep ofar öðru er það misskilningur. Enda flutti hann sfna háskalegu ræðu um að heimurinn horfði til íslands sem er skipulögð ranghug- mynd, hingað lítur bara stöku maður. í listum er ísland út úr korti, í besta falli smakk á ein- hverju fágætu, sérviska. Athyglisverður dans Það hefði í sjálfu sér vakið meiri athygli á inntaki nútímadans ef þeir Ólafur Ragnar for- seti og Guðjón Pedersen leikhússtjóri hefðu dansað f stað þess að flytja ávörp: annar svart- ur fugl, hinn grár, einn tungulipur, liinum erfitt um máf: Páfugladans tveggja ólíkra embættismanna. Það er nefnilega grunnurimi í dansleikhúsi nútímans að blanda inn í listdansinn mörgu ólíku, þar á meðal hinu óreynda og hending- unni. Verkin sem ég sá mn helgina: ManWoMan eftir Ólölú Ingólfsdóttur og Ismo-Pekka, Græna verkið eftir Jóhann Björg- vinsson, An titils eftir Astrósu Gunnarsdóttur, Pallíettudúlla Sveinbjargar Þórhallsdóttur og Margrétar Söru, Metropolitan eftir Corbetl, auk sænskrar gestasýningar, voru öll athyglis- verð, ekkert leiðinlegt, tvö bráðfyndin og snið- ug í einföldu skopif hin þrjú alvarlegri en um leið óljósari í hugmyrioí CÚtskýringar höfúnda í leikskrá eru til einskiS og ef verkin og höfund- ar á annað borð verða leggja leiðbeiningar í prógrammið er eins gott að sleppa þessu). Að ógleymdum sænskum snillingum. Fyndin og hnyttin Það er sem sagt í skopinu um okkur sjálf í bland við örvænúngu og tómleikatilfinningu sem dansarar eins og þær Sveinbjörg og Mar- grét og Cameron ná skörpum brennipunkti. Þá er formið ekki tekið alvarlega, ffelsi hugans til útrásar í texta og söng virðist meira, hlut- verkaskipti verða sjálfsögð og áreynslulaus. 4Í verkum þeirra þriggja reyndi í raun ekki verulega á þau sem dansara, sýningar þeirra útheimm annað, leik, látbragð og sviðsetn- ingu. Allt var fágað en með yfirbragði hins óvænta, sniðugt en með dýpt svo sá til botns, klárt í byggingu og hugsun. Sem sagt gott. Og svo? Sést það aftur ? Verður það meir? Aðrar pælingar ManWoMan var dásemd til hins tvíkynja heims eða ætti ég að segja þriðja kynsins. Var mesta þyngdin í því,' meira lagt í umbúnað; frumsamin tónlist, hrátt rokk eftir Hall Ing- ólfsson, veigamiklir búningar sem partur af hugmyndinni, ljósbeiting. Allur paídinn bar þess merki að hér var ekki tjaldað til einnar nætur, enda þau Ólöf og Ismo danspar sem vinnur skipulega, sýnir á mörgum stöðum (þetta verk í þremur löndum), starfar á stærra svæði og sækir sjóði sína víðar og heftur meiri peninga úr að spila. Verkið er hugsað sem tvídans án stakra parta, sem ég held að það hefði þolað. Hug- myndin um lífræn frík, tvíkynja afbrigði var ágæúega'útfærð. Dansinn sjálfúr á mörkum getu dansaranna, einkum Ólafar, tæknileg geta og þjálfunarstig takmarkar og hætta er á að þau færist meira í fang en þau ráða við, metnaðurinn verði þeim ofviða og um leið verkinu. Sem væri Synd. Þau vinna skipulega með skýra mynd log dansinn var í sam- runakafla hrífandi. Ég tel aftur að það sé röng leið að dansa án svipbrigða. Og svo er hann of langur. Grænar nafnlausar hugmyndir Astrós og Jóhann sýndu sitt hvort verkið, bæði eru þekkt af dafjtetarSl sínu. Ég átú í vandræðum með að ná slmbandi við nafri- lausan dans Astrósar, fannst hann sundraður og formlaus. Ef til vill var það æúun hennar. Jóa dans fjallaði um hvíta ferninginn sem var að gárast, óhreinkast. Hugmynd sem vísaði beint I Pollock og líkamsmálningu á sjöunda áratug aldarinnar, en var ekki nýtt úl fúlls, af tillitsemi við sviðsmenn og áhorfendur. Vilji höfundar leika sér með hvítt lín, lík- ama og fljótandi lit þarf meiri kraft og háska í leikinn sem var vissulega úl staðar hjá Steve Lorenz. Sænska heimsóknin Þá er ónefnd sænska sýningin frá Pero . Glæsilegt og þaulhugsað, sorglegt og skemmtilegt dansverk eftir Birgitm Egerblath. Það sem gerist heima, óvæntir gestir I heim- sókn þegar allt er í draslí, afskiptasemin við baksturinn, smámunasemi við að leggja á borð, sorgin við að taka til á loftinu, legó- kubbar á gólfinu, og þannig má lengi teíja. Dýrðlegur óður til hins hversdagslega Iffs fluttur af fjórum frábærum listamönnum. Þeirra á meðal Báru Lyngdal sem fór í láni ffá LR fyrir mörgum árum til Svíþjóðar og kemur hingað nú sem gestur, en veri hún æv- inlega velkomin! Það var mikil synd aö þessir frábæru listamenn skyldu ekki geta staldrað lengur við og sýnt fyrir fleiri. Þessu misstu margiraf! Grikkur, hrekkur, hvatning? Það er að vissu leyú hrekkur að stilla svo vel undirbúnu og flóknu verki við hlið þess sem fáir og félitlir listamenn okkar geta unniö, en um leið bein skilaboð: Þetta gætum við gert! Það er einmitt það sem ég tel að Nútíma- danshátíðin verði að hugsa: Stærra! Þá er það líka spuming vegna allra aðstæðna hvort ekki ætú að flytja Dansleikhússamkeppni LR og ÍD til hausts og þunga tvær vikur frá menning- arnótt til höfuðdags með haustdansi. Væri það ekki við hæfi? Dansa haustið inn og færa harðstjórum afhöggna hausa spámanna á silfruðum bökkum í byrjun vetrar. pbb@dv.ii Forn-egypsk prinsessa í stöðugu sambandi við geimverur Hin sjötuga bandaríska kvikmyndastjarna Shirley MacLaine er nú við tökur á kvikmynd- inni Otherwise Engaged ásamt Jennifer Ani- ston. Hún gaf sér þó tíma til að veita blaða- manni þýska vikuritsins Stern viðtal og sagði honum það helst tíðinda að hún myndi glöggt a.m.k. eitt af fyrri lífum sínum í Eg- yptalandi hinu forna. Stjaman segist að sjálf- sögðu hafa verið prinsessa þar og þá en tíkin hennar, Terry, var öllu merkari meðal Eg- ypta. Hún var eitt af goðum þeirra. Shirley MacLaine segist að auki hafa séð ótal fljúg- andi furðuhluti og vera í stöðugu sambandi við geimverur, bestu skilyrði til þess að hennar maú em í BCína, Rússlandi og Egyptalandi. Umdeilt verk um stríðið í írak Bush og Blair á leiksviði Um mánaðamótin ffumsýndi breska þjóðleikhúsið nýtt leikrit eftir David Hare um stríðsundirbúning fyrir iimrásina í Irak. Stuff happens heitir það og er titillinn sóttur í ummæli Rumsfeld. Verkið var pantað og er byggt á 30 kílóum af gögnum um stríðsundir- búninginn í Wasington og London. Það er þrjár klukkustundir í flutningi og er helsta umræðuefiii í bresku pressunni þessa dagana. Sitt sýnist hverjum. Flesúr em sammála um áhrifamátt verksins og fyndni, Bush er leikinn sem kjáni og Blair örvinglaður maður, sem merrn honum nánir kannast ekki við, Robin Cook þeirra á meðal. Verkið inniheldur óheflað málfar, bæði úr beinum tilvitnunum og sama talsmáta og opinberar fígurur temja sér. Leikritið þykir ekki skýra raunverulega ástæðu þess að Blair fylgdi Bush eftir í stríð- ið. Menn era furðu gleymnir á að í maí 2001 var samið um skuldir Breta við Bandarfkin ffá seinni heimstyrjöld sem þá vom gjald- fallnar og námu öllum fjárlögum Breta það ár. í hvaða stöðu em menn sem skulda svo mikið?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.