Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Side 4
4 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 Fréttir 0V Fullurátrukk keyrði á mann Maður, grunaður um ölvun, ók vörubíl á gang- andi vegfaranda við Vík í Mýrdal klukkan hálf sex í gærmorgun. Vegfarandinn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem gert var að sárum hans. Hann er ekki lífshættulega slasaður en hann axlarbrotnaði og hlaut einhverjar skrámur. Blóðprufa var tekin úr öku- manninum og vildi lögregl- an í Vík ekki tjá sig meira um málið á meðan á rann- sókn stendur. Tveir öku- menn til viðbótar vom stöðvaðir á svipuðum slóð- um á aðfaranótt sunnudags vegna gmns um ölvun. DV skoðar stefnuræðu. Halldór Ásgrímsson segir engar stefnubreytingar fylgja for- sætisráðherraskiptunum í stefnuræðu sinni sem flutt verður í kvöld. Símasölu frestað enn einu sinni og 90 prósenta húsnæðislán á dagskrá. Halldór minnist ekki á ný lög um fjölmiðla en boðar breytingar á stjórnarskrá i samvinnu við stjórnar- andstöðu. Kærðurfyrir fasteignasvik Fasteignasalinn Helgi Magnús Her- mannsson mætir í dómsal í dag ákærður fyrir svik gagnvart sex við- skiptavinum sínum. Hann rak fasteigna- söluna Óðal. Lög- reglan í Reykjavík ákærir Helga fyrir fjársvik og skjalafals að upphæð rúm- ar 19 milljónir króna. Brot- in voru framin á árunum 2001 og 2002. Helga er gef- ið að sök að hafa dregið að sér fjármuni sem hann tók við hjá viðskiptavinum vegna sölu á fasteignum. Honum er einnig gefið að sök að hafa falsað pappíra í því skyni að leyna fjár- drættinum. „Ég er saklaus og tíminn mun leiða það í ljós,“ sagði Helgi í blaða- viðtali. Rútuslysi frestað Baltasar Kormákur og leikarnir í kvikmynd hans „A Little Trip to Heaven“ hans þurftu að fresta öll- um útitökum sínum í gær og nótt vegna veðurs. Meðal annars var fyrirhug- að að setja á svið heljar- innar rútuslys við Hlemm í nótt. Þótti tökuliðinu of hættulegt að setja rútu- slysið, sem á samkvæmt heimildum DV að vera veglegt, á svið í rokinu og fengu amerísku stjörnurn- ar Julia Stiles og Jeremy Renner að halda sig innan dyra við stúdfótökur í stað- inn. Já, Svarthöfða er spurn. Eitt stórt spurningamerki. Svaithöföi Halldór Ásgrímsson flytur í kvöld sína fyrstu stefnuræðu í emb- ætti forsætisráðherra en Halldór tók við embættinu af Davíð Oddssyni fyrir tveimur vikum. DV hefur kynnt sér stefnuræð- una, sem enn um sinn er merkt sem trúnaðarmál. Halldór boð- ar litlar sem engar breytingar á stefnu ríkisstjórnarinnar undir sinni stjórn og minnist ekki orði á fjölmiðlalögin umdeildu á annan hátt en að tala um hvassviðri í sumarbyrjun. í upphafi ræðu sinnar notar Hall- dór tækifærið og þakkar Davíð Oddssyni, fráfarandi forsætisráð- herra, fyrir vel unnin störf og segir að frá upphafi núverandi ríkisstjórn- ar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks til dagsins í dag hafi orðið miklar ffamfarir í landinu. í ljósi þess segir Halldór ekkert kalla á breytingar á stefnu stjórnvalda frá því sem verið hefur þó skipt hafi verið mn forsæt- isráðherra. Kennaraverkfall ekki mál stjórnvalda Halldór gerir yfirstandandi kenn- araverkfall að umtalsefni sínu og segir að ríkisvaldið sé ekki aðili að deilunni heldur sé verkfallið og samningagerðin á forræði sveitarfélaganna, sem Halldór fullyrðir jafnframt að hafi fengið nægilegt fé við til- flutning þeirra frá ríki til sveitarfélaga. Hann sakar stjórnarand- stöðuna um að reyna að draga ríkis- stjórn- ina inn Áfram- haldandi stöðugleiki en Símasölu frestað Halldór vfk- ur því næst máli sínu að efnahagsmál- um og ítrekar þar meðal annars það markmið að fjárlög verði hallalaus. í ræðu Halldórs kemur fram að söluferli Sím- ans verði fram haldið, en ekki fyrr en eftir rúmt ár. Boðaðar skattalækkanir eru með- al efiiis en þar ræðir hann um áður boðaða 4% tekju- skattslækkun, sem efnd verði í áföngum út kjör- tímabilið. Svo virðist sem ágreiningur innan rík- isstjórnarinnar um sölu Símans, og þá kröfu framsóknar- manna að landsmönntnn verði tryggður næsta jafn aðgangur að þjónustu fyrir- ur Jómfrúarræða nýs forsætisráð- herra Halldór segir engar stefnu- breytingar áætlaðar hjá rfkisstjórn undir hans forsæti. Sfmasölu hefur þó enn verið frestað en 90 prósenta hús- næðisián munu væntanlega bjóðast neytendum á vetri komanda. tækisins fyrir sölu, hafi orðið til þess að fresta söluferlinu um ár í viðbót. í ræðu Halldórs kemur fram að sölu- ferli Símans verði fram haldið, en ekki fyrr en eftir rúmt ár. Húsnæðislán og Siglufjarðar- göng Halldór boðar 90 prósenta hús- næðislánin sem flokkur hans lofaði í kosningabaráttunni síðast, í vetur og segir að „senn verði ráðist f Siglu- fjarðargöng", eins og það er orðað í ræðunni. Halldór boðar sömuleiðis aukna aðstoð við landbúnaðinn, sem hann segir nauðsynlegt til að bregð- ast við aukinni erlendri samkeppni. Ekki er minnst á fjölmiðlög nema á einum stað í ræðunni þar sem hann segir að „hvesst hafi í íslensku stjómmálalífi“ í sumarbyrjun, og á þar væntalega við málskot forseta og deilur um rétt hans til þess. Ekki er minnst á að farið verði í gerð nýrra laga um fjölmiðla en boðaðar breyt- ingar á stjórnarskrá sem unnið verði að sameiginlega af ríkisstjóm og stjórnarandstöðu. Ræða Halldórs verður flutt í beinni útsendingu í Ríkis- sjónvarpinu í kvöld klukkan 19.50 en að þeim loknum hefjast umræð- helgi@dv.is Konur eru með fjóra Svarthöfði er búinn að vera að klóra sér í hausnum alla helgina yfir lítilli frétt í DV á föstudag. Þar var sagt frá enskum líffræðingi að nafni Desmond Morris sem hefur fundið nýja G-bletti kvenna. Eða öllu held- ur hefur hann fundið A-blettinn, C- blettinn og U-blettinn. Desmond þessi útskýrði ekki hvaðan nöfnin komu en það er nú meðal þess sem Svarthöfði hefur verið að hugsa svoldið út f um helgina. Svarthöfði er nefnilega með það á hreinu að sjálfur G-bletturinn heitir það af því að upphafsstafur eftirnafns mannsins sem fann blettinn, Ernst Grafenberg, er einmitt gé. En hin nöfnin em hrein- lega út í hött þótt Svarthöfði þakki DV innilega fyrir að benda á stað- inn þar sem nýju blettirnir, auk hins fyrsta að Svarthöfði heldur, sé að finna. Þeir liggja allir saman í efri hluta legganganna. En stærsta spurningin sem hefur verið að velta sér fram á varir Svart- höfða alla helgina - þótt hann sé vissulega of feiminn til að segja það upphátt - er af hverju er alltaf verið G-bletti að finna eitthvað sem eykur á unað kvenna? Aldrei rekst Svarthöfði á fréttir þar sem einhver líffræðingur hefur fundið eitthvað sem bætir fullnægingu karla svo um munar. Og þegar Svarthöfði byrjaði að hugsa þetta - ekki upphátt, heldur bara í hljóði - þá leið honum eins og hann væri svikinn. Af eigin kyni auðvitað því þetta er körlum að kenna. Er bara í hugsunarhættin- um. Svarthöfði á marga vini sem tala stundum um kynlíf við hann og þá tala þeir alltaf um hvernig þeir hafi bætt bólfarir sínar. Karlmenn stæra sig meira að segja stundum af því að vera góðir í rúminu. En karl- ar tala aldrei um að einhver kona sé góð í rúminu. Aldrei. En að sögn vinkvenna Svarthöfða þá tala þær eiginlega bara um hversu góður þessi eða hinn var (eða er) í rúm- inu. Þær minnast aldrei á eigin frammistöðu. Hvernig hefur þú það? hefþaö gott og þannig hefur þaö verið sfðan 1978 þegar ég hætti aö drekka brennivín," segir Þórarinn Tyrfingsson,yfirlækniráVogi. „Nú erég á fullu í því að safna lífeyri aö ráöi Ásmundar Stefánssonar og komast þannig I yfirstéttina í ellinni - maður kominn afalmúgafólki."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.