Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 6
6 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Fjallar um líf-
látshótun
f dag verður tekið fyrir
hjá Héraðsdómi Reykjavík-
ur mál Lögreglustjórans í
Reykjavík gegn Garðari H.
Björgvinssyni. Garðar, sem
er bátasmiður, er ákærður
fyrir að hafa hótað Helga
Jóhannessyni hæstaréttar-
lögmanni lífláti og því að
elta hann uppi. Helgi óttað-
ist um líf sitt og fjölskyldu
sinnar. Garðar segist hafa
meint það sem hann skrif-
aði að hann ætlaði að
„drepa Helga með pennan-
um“, með því að skrifa illa
um hann. Garðar sakar
Helga um að hafa aðstoðað
skjólstæðing sinn í að hafa
af sér aleiguna.
Viagra sem
virkar ekki
Annar hver karlmaður
sem festir kaup á rislyfinu
Viagra á Netinu er að kaupa
köttinn í sekknum. Dr. Nic
Wilson, sem starfar við
Lundúnaháskóla, gerði
umfangsmikla
rannsókn á öllu því
Viagra sem er falt á
vefnum. Hann
greindi innihald
taflnanna og kom í
ljós að í um helm-
ingi þeirra var innihaldið
að mestu laktósi. Það efni
hefur að sjálfsögðu engin
áhrif á bólfimi karla. Nú er
spurningin hvort platlyfin
séu hættuleg en Wilson tel-
ur að svo þurfi alls ekki að
vera - þótt þau geri náttúr-
lega ekki það gagn sem
þeim er ætlað.
Gunnar Þorsteinsson
/' Krossinum.
„Ég heflifað tvöföldu lífi. Það
er aö segja - áður en ég frels-
aðist og eftir. Fyrsta ástin í lífi
hins nýja manns er núverandi
eiginkona í rúm þrjátíu ár. En
svo er hitt í gleymskunnar
hafi."
Hann segir / Hún segir
„Það er Haukur Ingi Guðna-
son. Maðurinn sem ég ermeðí
dag. Við erum búin að vera á
föstu í átta ár. Vorum vinirog
svo þróaðist þetta yfir í ást. Ég
veit ekki hvort ég trúi á ást við
fyrstu sýn.“
Ragnhildur Steinunn,
nemi við Háskóia Islands og dag-
skrárgerðarkona.
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Öl-
stofu Kormáks og Skjaldar á föstudagskvöld. Friðrik segir átta manna hóp af mis-
indismönnum hafa komið á staðinn eftir að Jóni Ólafssyni, fyrrum eiganda Steypu-
stöðvarinnar, hafði verið hent þaðan út fyrir læti. Jón hafi hringt út sveit manna
sem síðan hafi barið sig. Jón kannast ekki við það.
fltta menn réðust á
Friðrik Þór og rotuðu
„Ég var eitthvað að munnhöggvast við Jón Ólafsson, fyrrum
steypustöðvareiganda, sem lét öllum illum látum og var í kjöl-
farið hent út. Hann taldi sig eiga eitthvað sökótt við mann sem
var þarna inni og hringdi út þessa menn sem komu,“ segir Frið-
rik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri í samtali við DV. Friðrik
segir átta manna hóp skyndilega hafa birst inni á staðnum og
þegar ekkert sást til mannsins sem Jón Ólafsson taldi sig eiga
eitthvað sökótt við hafi hann fengið kjaftshögg.
„Ég þekki þann sem kýldi mig ekki
neitt," segir Friðrik Þór aðspurður um
hvort hann hafi þekkt árásarmann-
inn. „Ég fékk bara þungt högg og rot-
aðist við það,“ segir hann. Friðrik ber
áverka eftir viðskipú sín við mann
sem hann fullyrðir að hafi verið send-
ur af Jóni Ólafssyni, fyrrum eiganda
Steypustöðvarinnar, úl að hefna fyrir
að Jóni var vísað út af bamum fýrir
læú.
Ölstofufólk skelkað
Heimildir DV herma að skeffing
hafi gripið um sig meðal starfsfólks
Ölstofu Kormáks og Skjaldar í kjölfar
atburðarins. Ekkert þeirra vildi tjá sig
um málið þegar DV leitaði efúr því.
Sömu sögu var að segja af eigendum
kráarinnar, sem hvorugur var á
staðnum á föstudagskvöld. Fjöldi
vitna var þó að atburðinum og sagði
eitt þeirra í samtali við DV að hópur
manna hefði skyndilega ruú sér leið
inn á staðinn sem síðan hafi endað
með því að kvikmyndaleikstjórinn,
sem eins og alkunna er var tilnefirdur
til Óskarsverðlauna fyrir mynd sína
Böm Náttúrunnar, lá óvígur efúr.
„Dyraverðirnir gátu ekkert gert
enda var þama átta manna hópur
sem mætti gagngert til að hefna fyrir
Jón,“ segir Friðrik, sem ber áverka í
andliti eftir viðskipti -sín við Jón og
hans menn. Augnbein brotið og and-
liúð marið. „Já, égkæri þeúa. Það þarf
að stoppa svona menn,“ segir Friðrik
Þór Friðriksson í samtali við
DV.
Aldrei gerst á Næslandi
Friðrik var gestur í Kastijósi sjón-
varpsins síðastliðið föstudagskvöld
þar sem meðal annars var rætt um
nýjustu kvikmynd hans, Næsland.
Þar lék Friðrik á als oddi og vakti at-
hygli fýrir að hafa endurheimt fýrri
styrk sinn í kjölfar gjaldþrota sem
hann gekk nýverið í gegnum. Friðriki
var tíðrætt um að allur hamagangur-
inn í íslensku samfélagi hefði aldrei
getað átt sér stað í hinu ímyndaða
Næslandi.
Nokkrum klukkustundum síðar
hefði hann örugglega kosið að vera á
ölknæpu á Næs-
landinu
sínu en ekki íslandi. „Já, ég hefði nú
frekar kosið það,“ segir Friðrik, sem
segist einu sinni áður hafa fengið slíkt
kjaftshögg. „Það var árið 1982 en þá
hinum megin á andlitinu og áverk-
amir sams konar," segir Friðrik.
Var í afmæli og lamdi engan
Jón Ólafsson, fyrrum eigandi
Steypustöðvarinnar, segist ekkert
kannast við að hafa lamið Friðrik Þór
Friðriksson né heldur að hafa haft for-
göngu um að Friðrik yrði laminn. „Ég
var í afmæli á föstudaginn og fór svo í
bæinn," sagði Jón, sem kvaðst ekkert
kannast við orð Friðriks eða annarra
vitna að atburðinum. Jón vildi ekki
gefa upp hvort hann hefði komið
á Ölstofuna umrætt kvöld og
kvaðst ekkert kannast við að
hafa verið hent þaðan út fyrir
ólæti.
heigi@dv.is
fímrui''
Ölstofan Skelfing greip um sig meðal starfs-
manna knæpunnar í kjölfarið á þvíþegarátta
manna hópur ruddist inn og rotaði kvikmynda-
I leikstjórann þjóðþekkta. Enginn starfsmanna
| sem DVIeitaði til vildi tjá sig um málið.
I Rotaður Friðrik Þór kvik-
I myndaleikstjóri var ófáan-
I legur til að leyfa DV að
1 mynda sig. „Eigið þið ekki
1 góða mynd afskrímsli?"
I spurði Friðrik Þór á móti
I þegar blaðamaður bauð
1 honum myndatöku.Hann
1 er brotinn íandliti og mar-
inn eftir að óþekktur árás-
armaður réðst á hann við
[ sjöunda mann á föstu-
dagskvöld. Friðrik fullyrðir
I að mennirnir hafi gagngert
I komið til að hefna fyrirJón
1 Ólafsson, fyrrum eiganda
I steypustöðvarinnar, en Jón
I kannast ekki við neitt slíkt.
Samningur milli fangelsa og Sólheima
Vitni sá stolinn sportbát aftan í jepplingi
Efast um sambúð
fanga og fatlaðra
Margrét Frímannsdóttir
Vill rök frá Birni Bjarnasyni dómsmálc
ráðherra um fyriræt/anir um að vista
fanga á Sólheimum. ________________
„Ég hef verulegar efasemdir um
að það fari saman að endurhæfa
fanga með langa dóma á bakinu
með fötluðum heimilismönnum á
Sólheimum sem þurfa sitt ör-
yggi,“ segir Margrét Frí-
mannsdóttir alþingismað-
ur. Hún ætlar að óska eftir ,
að Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra skýri hvað
liggi að baki þeim samn-1
ingi sem Fangelsismála-I
stofnun hefur gert við vist-
heimilið að Sólheimum
um endurhæfingu
fanga. Margrét vill
þó taka skýrt
fram að hún séj
ekki að gagnrýnal
vinnu Valtýs Sig-1
urðssonar. „Hann hefur unnið gífur-
lega vel og breytt miklu til hins betra
þann stutta tíma sem hann hefur
verið í starfi. Það má ekki vanmeta
það og ég efast ekki um að hon-
um gengur aðeins gott til með
. þessum samningi. Ég vil eigi
" . að síður að það verði skýrt
j út hvernig þetta er hugsað
en dómsmálaráðherra
fhlýtur að hafa kynnt sér
* þetta vel áður en ákvörðun
itim samning var tekinn,"
segir Margrét.
Leita að stolnum bát í
Norrænu
„Ég er búinn að fá vísbendingar
um að báturinn hafi farið austur og
af landi brott með Norrænu. Á
morgun [í dag] hef ég samband við
tollgæsluna og spyrjast fyrir um
hvort það sé möguleiki að koma
stolnum bát úr landi með ferjunni,"
segir Óskar Guðmundsson sem
undanfamar vikur hefur verið að
rannsaka, upp á eigin spýtur, þjófn-
að á sportbát sem var rænt um há-
bjartan dag fyrir utan verslun hans,
Bátalandi í Hafnarfirði í ágústlok.
Báturinn sem er tvö og hálft tonn
að þyngd er metinn á 2,3 milljónir
króna og gufaði skyndilega upp og
hefur lögreglurannsókn ekkert leitt í
ljós.
„Það var vitni á Hornafirði sem
i;
sagðist hafa séð bátinn dreginn af
jepplingi með erlendum númera-
plötum og annan jeppling fýlgja
með. Vitnið segist telja að báturinn
hafi verið dreginn um borð í Nor-
rænu og farið þannig af landi brott."
Óskar hefur einnig fengið vísbend-
ingar um að báturinn hafi sést í eft-
irdragi sams konar bfls á leið suður í
Krísuvflc.