Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Side 9
1 DV Fréttir Lokiðvið snjóflóðagarð vestra Fyrir helgi var lögð loka- hönd á snjóflóðagarð á Seljalandsmúla í Skutnls- firði en hann á að koma í veg fyrir að snjóflóð falli á byggðina næst sumarhúsa- byggð ísfirðinga í Tungu- dal. Starfsmenn verktaka- fyrirtækisins KNH fögnuðu verklokum við gerð snjó- flóðagarðsins en verkið hófst í lok júhmánaðar í fyrra og hefur gengið mjög vel. Garðurinn er ein stærsta mannvirkjagerð í Skutulsfirði á síðari árum og heildarkostnaður á fjórða hundrað milljónir króna. Bassi og Tryggur heiðraðir Blendingshundurinn Tryggur og eigandi hans og þjálfari, Auður Björnsdóttir, voru heiðruð á haustsýn- ingu Hundaræktarfélagins um helgina. Tryggur var kjörirm afrekshundur árs- ins en hann er þjálfaður til að aðstoða son Auðar sem er fatlaður. Þjónustuhund- ur ársins var kjörinn labradorhundurinn Bassi en hann er fyrrum fflcni- efnahundur og í eigu Þor- steins Hauks Þorsteinsson- ar. Hann hefur að undan- fömu verið notaður í for- varnarstarfi. Fleiri deyja á Gaza Rauði hálfináninn í Palestínu, Abdullah II Jórdaníukóngur og stjóm- völd í Frakklandi og Rúss- landi hvetja ísraelsmenn til að halda frá palestínskum flóttamannabúðum á Gaza-ströndinni en þar hafa staðið yfir bardagar firá því á þriðjudag. Stjórnvöld I Washington hafa einnig áminnt ísraela. Alls hafa 66 Palestínumenn fallið, 219 em sárir, tugir húsa og heimila hafa verið jafnaðir við jörðu en særðum og sjúkum meinaður aðgang- ur að heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Þessi að- gerð ísraelshers er kölluð Dagur yfirbótar og er hefnd fyrir eldflaugaárás Palest- ínumanna á landamærabæ þar sem tvö ísraelsk börn féllu. Að sögn fréttamanns BBC em þetta mestu og mannskæðustu aðgerðir ísraela á svæðinu í íjögur ár. MÁNUDACUR 4. OKTÓBER 2004 9 Bjarki Magnússon, sem var handtekinn í stóra tölvumáli lögreglunnar, segir marg- falt meiri skipti á tölvuskrám eiga sér stað á vefsvæði Deilis en Ásgarði, sem lög- reglan réðst á. Hann segist hafa fengið ábend ingu um komu lögreglunnar. Handleknip tötvimördar segja líUð tilefni til lögguáhleupsins Bjarki Magnússon múrari er einn af tölvumönnunum 12 sem voru handteknir í síðustu viku vegna þátttöku sinnar í skipti- markaðnum Ásgarði á netinu í gegnum forritið DC++ og þeirra meintu brota á höfundalögum sem þar áttu sér stað. Hann seg- ist hafa verið járnaður af fíkniefnalögreglumönnum eins og eiturlyijabarón. „Þetta er broslegt og hlægilegt. Þetta voru öfgafullar aðgerðir af litlu tilefni. Þetta var sett upp með það í huga að þessi hópur tölvunörda gæti talað saman. Svo er aukafídus inni á þessu þar sem er hægt að skiptast á skrám, sumir voru með lítið, aðrir ekki neitt. Hugsunin á bak við þetta var ekk- ert að dreifa efni. Þetta er bara lok- aður klúbbur og hver og einn ber ábyrgð á því hvort hann deilir efni með öðrum eða ekki. Þetta er bara eins og með byssur, menn geta ekki lögsótt byssuframleiðendur fyrir morð þó einhver noti byssu í verknaðinn," segir Bjarki Magnús- son, sem sat lengst f fangelsi af tölvuþrjótunum 12. Fékkábendingu „Ég hef ekki játað eitt eða neitt," segir Bjarki, sem ekki vill viðurkenna að hafa boðið kvik- myndir eða annað höfundarréttar- skylt, enda náði hann að koma tölvum sínum undan. „Ég fékk ábendingu um að lögreglan væri á leiðinni." Bjarki var hamitekínn af lög- reglunni á tröppunum heima hjá sér þegar hann köm úr vinnu. „Lögreglan beið eftir mér á tröpp- unum þegar ég kom heim. Þú ert handtekinn, sögðu þeir og veifuðu stjörnunum sínum. Ég var geymd- ur á Hverfisgötúnni og yfirheyrður margoft." Eirfkur Þórðarson, smábátasjó- maður á ísafirði, er einn af tölvu- þrjótunum 12. „Miðað við aðgerð- irnar vitum við að annað hvert heimili með ADSL er búið að vera tengt inn þessi skiptisvæði. Það er bara verið að skiptast, á eftii og hart er gengið fram í að banna klám. Þetta er bara hobbí. Vin- sælasta efttið af þessu er sjón- Lögreglan beið eftir mér á tröppunum þegar ég kom heim. Þú ert handtekinn, sögðu þeir og veifuðu stjörnunum sínum. varpsþættir og oftast hafa þeir þegar verið sýndir í sjónvarpinu. Þetta er svipað og að taka upp á spólu af sjónvarpinu," segir Eirík- ur. Deilir í gagnið á ný Komið hefur fram að stjóm- endur skráaskiptasvæðisins Deilis, sem er með öllu sambærilegur við Ásgarð, hafa ákveðið að opna aftur á svæðið. Þeir hyggjast ekki grípa inn í ef fólk býður fram höfundar- réttarskylt efni, einungis ef um er að ræða klám. Á Deili em að jafn- aði 5.000 íslendingar á dag og 266 terabæt af efni, samanborið við 100 manns á Ásgarði og undir 100 terabæt. „Ef löggan ætlaði að gera þetta af einhverju viti ætti hún að ráðast á Deili. Það er miklu stærra og virkara samfélag heldur en þetta nokkurn tímann. Meirihlut- inn af lögreglunni hafði minni tölvuþekkingu en 10 ára krakkar. Meirihlutinn af þeim sem stóðu í þessum húsleitum voru frá fíkni- efnalögreglunni með enga þekk- ingu eða reynslu á þessu sviði." Hótanir á Smáís Hallgrímur Kristinsson, for- maður Samtaka myndrétthafa á íslandi (Smáís), sem kærðu skipti- markaðina, hefur orðið að skot- spæni tölvumanna víða á netinu. Heimfiisfang Hallgríms og Bjarki Magnússon Sat í rúman sótarhring I fangetsi vegna gruns um að hann hefði boöið fé- tögum sfnum að hlaða inn kvikmyndir, tóniist og annað eins. DV-mynd GVA símanúmer em birt á helstu vefj- um landsins og birst hafa hótanir á netinu um að rispa bfl hans og drepa gæludýr. í nafnlausri til- kynningu, sem hefur farið víða, er birt mynd af honum, heimilisfang og heimasími. Þar segir: „Ef einhverjir vfija hafa sam- band við Hallgrím Kristinsson, og þakka honum persónulega fyrir aðgerðir gegn íslenskum netnot- endum, læt ég.hér fylgja þær upp- lýsingar um hvernig hægt sé að ná sambandi við hann." Margir í hinum stóra hópi þeirra sem skiptast á höfundar- réttarskyldum gögnum á netinu telja sig ekki gera neitt rangt. „Við erum teknir sem víti til varnaðar. Það verður hver og einn að svara þesssu fyrir sig, hvort við höfum gert eitthvað rangt. Þessi lög um höfundarrétt eru svo loðin að það er varla hægt að fara eftir þessu. Sambærileg málaferli erlendis hafa öll tapast," segir Bjarki, sem bendir á að lögreglan gæti á sama hátt gert rassíu hjá kennurum. „Ljósritun á pappírum fellur lflca undir höfundarréttarlög. Kennar- ar ljósrita gífurlegt magn efnis, en ekkert er gert í því. Það er helling- ur af dæmum úti í þjóðfélaginu sem mætti túlka sem brot á höf- undarréttarlögum." jontrausti@dv.is Jude Law og Orlando Bloom drógu upp trúlofunarhringana Kærusturnar hikuðu ekki eitt augnablik „Já, já, já,“ hrópaði Sienna Miller þegar kvikmyndaleikarinn Jude Law bað hennar í Feneyjum um helgina. „Ég er hamingjusamasta stúlka 1 heimi. Ég verð frú Law," sagði Sienna við vini og kunningja þegar hún hafði tekið bónorðinu. Jude Law er ekki eina kvennagullið sem festi ráð sitt um helgina því einnig bámst fregnir af því að leikarinn Or- Orlando Bloom Jude Law Skiinaður- Ætlar að haida tvær inn kostaði milljarð. brúðkaupsveislur. lando Bloom væri búinn að finna hina einu réttu. Sú heppna heitir Kate Bosworth og er leildcona. Or- lando og Kate hafa verið saman um nokkra hríð en umboðsmaður leik- arans hvetur hann til að gera ekki of mikið úr trúlofuninni - enda eigi hann mikið undir kvenkynsaðdá- endum um heim allan. Kate mun ekki hafa hugsað sig um tvisvar þeg- ar Orlando féll á hnén fyrir framan hana. Þau áforma að halda tvö brúð- kaup, annað í Los Angeles og hitt á Englandi. Trúlofunarhringurinn var heldur ekki af lakara taginu, kostaði 22 milljónir króna. Ekki liggur fyrir hvenær Jude og Sienna munu ganga í það heilaga. Trúlofun þeirra þykir hins vegar renna stoðum undir að Jude hafi loks tekist að semja við sína fyrrver- andi, Sadie Frost, um meðlags- greiðslur. Talið er að skilnaðurinn við Sadie kosti hann ekki undir ein- um milljarði króna. Jude og Sienna, sem er aðeins 22 ára, þykja eitt glæsfiegasta par kvikmyndaheims- ins og segja kunnugir að Jennifer Aniston og Brad Pitt kunni að falla í skuggann en þau hafa þótt flottasta parið í Hollywood og þótt víðar væri leitað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.