Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 11
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 11
Kerry kominn
með forskot
Heldur hefur dregið
saman með John Kerry og
George Bush ef
marka má nýja
skoðanakönnun
vikuritsins
Newsweek. Sam-
kvæmt niðurstöð-
um könnunarinn-
ar fengi Kerry 47%
atkvæða og Bush
45% ef framboð Ralph
Nader er talið með. Nader
er með um 2% fylgi og ef
honum er sleppt eykst for-
skot Kerrys, sem þá fær
49% en Bush 46% atkvæða.
Newsweek lét einnig kanna
ffammistöðu Bush og Kerry
í kappræðunum sl.
fimmtudagskvöld. Alls telja
61% Kerry sigurvegara
kappræðnanna en aðeins
19% Bush.
Stal slípirokk
Innbrotsþjófur náði
sér í slípirokk á verk-
stæðj í Aústurbbrginni í
fyrrinótt. Etigu Öðru var
stolið fyrir utan smá-
ræði af skiptimynt sem
var í peningakassa. Ekki
er vitað hvað þjófurinn
ætlar sér með slípirokk-
inn þar sem hafði ekki
náðst í gær. Að öðru
leyti var helgin róleg hjá
lögreglunni í Reykjavfk
og aðeins tveir fengu að
gista í fangageymslum
eftir að hafa verið með
óspektir á götum borg-
arinnar.
Eldri hjón
slösuðust í
bílslysi
Karlmaður á sjötugsaldri
var fluttur slasaður á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri
á laugardag eftir álvarlegt
bílslys í Kelduhverfi,
rétt vestan við Ás-
byrgi. Eiginkona
mannsins sem sat í
farþegasæti var
einnig flutt á sjúkra-
hús en meiðsli henn
ar voru ekki talin alvarleg.
Tildrög slyssins eru að sögn
lögreglu á Húsavfk ókunn
en bílhnn hafnaði utan
vegar og fór eina veltu.
Ökumaðurinn sat fastur í
flakinu og þurfti að beita
klippum til að losa hann.
Lögregla rannsakar slysið
en vegurinn er beinn og
breiður á þeim slóðum sem
slysið varð. Ökumaðurinn
var ekki talinn í h'fshættu.
Slógust og
skemmdu bíl
Til snarpra átaka kom
miUi tveggja ungra
manna í Keflavík
snemma í gærmorgun.
Slagsmálin áttu sér stað
við Hafnargötu og var
lögregla kvödd á staðinn.
Annar mannanna var
fluttur slasaður á Heil-
brigðisstofnun Suður-
nesja en áverkar voru að
sögn lögreglu taldir
minniháttar. Nokkrar
skemmdir urðu á kyrr-
stæðri bifreið vegna at-
gangs mannanna. Að
öðru leyti var helgin
fr emur róleg í Keflavlk
og fagnaðarlæti heima-
manna vegna bikar-
sigursins kröfðust ekki
afskipta lögreglu.
Fjölskyldur langveikra barna á íslandi búa við margfalt verri kjör en tíðkast ann-
ars staðar á Norðurlöndunum. Munurinn er gríðarlegur. íslenskir foreldrar eiga
rétt á að fá greidda 7 veikindadaga á ári vegna veikinda barna sinna á meðan
sænskir foreldrar fá 120 daga borgaða. Dæmi eru um að fjárhagslegur grunnur Qöl-
skyldna hrynji þegar barn veikist alvarlega.
Verst ap eiga veikt
barn á Islandi
Ljóst er að kjör foreldra
langveikra barna á Norð-
urlöndunum eru hvergi
jafn slæm og á íslandi.
„Við sem störfum að þessum málaflokki og höfum verið að berj-
ast fyrir þessum hlutum erum orðin vægast sagt langeyg eftir því
að réttarstaða lahgveikra barna.verði bætt, það gengur ekki
lengur að bara so rætt um aukin'ti vcikindarétt á tyllidögum en
engu fylgt eftír," segir Rósa Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.
Nú eru rúm tvö ár síðan sam-
þykkt var þingsályktunartillaga um
skipun nefndar sem átti að gera til-
lögur um það hvernig unnt væri að
tryggja betur rétt foreldra til launa í
fjarveru úr vinnu vegna veikinda
barna. Síðan hefur lítið gerst annað
en að nefndin lét vinna könnun
meðal foreldra langveikra barna
sem nefndinni fannst ekki gefa
marktækar niðurstöðu.
Ekkert bólar á niðurstöðum
nefndar
Ákveðið var að gera aðra betri
könnun sem átti að vera tilbúin síð-
asta vetur. Niðurstöður nefhdar-
innar liggja enn ekki fyrir þó að
málið verði að teljast afar brýnt þar
sem um er að ræða hóp fólks sem
býr við margfalt lakari kjör en
tíðkast
annars
staðar á
Norður-
löndunum.
Árni Magn-
ússon lof-
aði að
nefndin
lyki störf-
um 15. maí
síðastlið-
inn, eftir
fyrirspurn
frá Jó-
hönnu Sig-
urðardóttir
á Alþingi í
febrúar. Ekkert hefur bólað á niður-
stöðum nefiidarinnar né niður-
stöðum könnunar sem nefndin lét
Félagsmálaráðherra
Árni Magnússon svarar
ekki, foreldrar biða með
veikbörn.
gera meðal foreldra langveikra
barna. Félagsmálaráðherra hefur
ekki svarað skilaboðum DV um við-
tal vegna stöðu foreldra langveikra
barna.
Sjö til tíu veikindadagar á ári
Ljóst er að kjör foreldra lang-
veikra barna á Norðurlöndunum
eru hvergi eins slæm og á íslandi.
Lítið er gert af hálfu hins opinbera
til þess að tryggja kjör foreldra
veikra
barna hér á
landi. Úti-
vinnandi
foreldri á
rétt á sjö til
tíu veik-
indadögum
að hámarki
á ári til að
sinna sjúk-
um böm-
um án til-
lits til
fjölda
þeirra eða
alvarleika
sjúk-
dómsins. f Noregi eiga foreldrar
veikra barna rétt á allt að 260 dög-
um á fullum launum og 520 dögum
á 60 prósent launum. I Svíþjóð eiga
foreldrar rétt á 90 prósent launum í
120 daga á ári fyrir hvert bam.
Vel tekið í tillögur ASÍ
Á ráðstefnu ASI í mars 2003 vom
tillögur félagsins í velferðarmálum
kynntar og var eitt af aðalmáltmum
þar að treysta yrði afkomutryggingu
Mörg börn berjast við dauðann Fjár■
hagslegur grundvöllur foreldra hrynur
þegar barn veikist.
11
Jóhanna Sigurðardóttir
Finnst þetta vera smánar-
blettur á þjóðfélaginu.
foreldra langveikra barna. Þar
var lagt til að notuð yrðu
sömu rök og með fæðingar-
orlofssjóðinn þannig að
foreldrar langveikra barna
fái 80% af meðaltekjum
sínum sl. 12 mánuði og
að sú greiðsla verði í allt
að 36 mánuði. Ef marka
má undirtektir þeirra
stjómmálamanna sem
sátu fyrrgreinda ráð-
stefhu ASÍ vora for-
svarsmenn félagsins
bjartsýnir á að þetta mál
kæmist í höfn á næstunni
en ekkert hefur gerst. Á
meðan stjómmálamenn
klóra sér í hausnum yfir
þessu máli bíða hundrað
fjölskyldna eftir því
að kjör þeirra verði
leiðrétt. Foreldrar
sem hafa það
hræðilega hlut-
skipti að geta
ekki unnið
vegna
barna
veikra
sinna
sem mörg
berjast við
dauðann.
freyr@dv.is
Rósa Guðbjartsdóttir Fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna er
langeygur eftir svari.
Sænskur bóndi á hænu sem skipti um kyn
Hæna breyttist í hana á einni nóttu
A
J
Þau undur og stórmerki gerðust á
hænsnabúi Bjöms Johanssons
bónda í Leckersbo í Svfþjóð á dög-
unum, að hænan Agða hóf að gala
og haga sér sem hani. Björn hefur
ræktað hænsni í 15 ár en aldrei lent í
slíku áður. Morgun einn segist hann
hafa heyrt tvo hana gala við
hænsnahúsið og rak upp stór augu,
því hann á aðeins einn hana. Hann
skundaði þegar á staðinn og sá þá
hænuna Ögðu standa á haug og gala
sem hana.
Björn segir Ögðu gala líkt og
venjulegan hana, en hljóðin séu þó
ívið mjórri og kvenlegri en úr hálsi
hana. Nú gali hún með hananum á
hverjum morgni og segist Björn vera
að hugleiða nýtt nafh á hana, hyggst
jafnvel nefna hana Hagbarð. Hann
hefur átt hana frá því hún var agnar-
smár kjúklingur og hingað til hafi
Agða verið dæmigerð hæna af
Sussex-kyni. Með þessum ósköp-
um hefur svo kollur Ögðu
roðnað mjög og stækkað og
hún er nú líkari hana í sjón
en hænu. Björn
segir Ögðu við
hestaheilsu þrátt
fyrir skjótar og
óvæntar breying-
ar á kynferði.
Dýralæknir
við Ríkisdýra-
læknisstofnunina
í Svíþjóð segir
kynskipti sem
þessi mjög sjald-
gjæf meða taminna
hænsnfugla. Hann
hefur aðeins rekist á sl£kt einu
[SsssÆsa
1 "hesst 1 áðurfseqir Bjbrn bóndi.
sinni á langri starfsævi og
við rannsókn kom í ljós
æxli í því hænsni og fram-
leiddi það karl-
hormón.
Dýralæknir-
inn telur
hugsanlegt
að Agða hafi
bæði kven- og
karlkynkirtla.
Að sögn
Björns bónda í
Leckersbo
hegðar Agða sér
eins og hver önn-
ur hæna þegar gal-
inu sleppir, er í óða
önn að ala upp kjúklinga
fyrir aðrar hænur og
hefur Bjöm ekki séð
hana gera sig til við
þær.
Spilaði bingó við
aldraða
Söngvarinn Robbie Williams
kom eldri borguram í Stoke
skemmtilega á óvart um helgina
þegar hann spilaði bingó hjá góð-
gerðarsamtökum. Hin 73 ára Dot
Bostock þakkar Robbie það að hún
vann í tvígang en
hún var svo hepp-
in að fá söngvar-
ann sem sessu-
naut. Robbie hefur
verið örlátur síðustu
árin og gefið
um tvær millj-
ónir punda til
góðgerðar-
mála. Hann
var ánægður
með bingóið.
„Stemningin
var góð og
mikið iilegið,"
sagði Robbie
eftir bingóið.