Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Einn grunað-
urum þjófn-
að á sjonatti
Lögreglan á Homaflrði
hefur einn mann
grunaðan um að hafa
brotist inn í Byggða-
safnið í gömlubúð
síðustu helgi. Óbætan
legt tjón var unnið á safn-
gripum en engu stolið
nema gulum sjóhatti
merktum sveitarfélaginu.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Höfli er
aðeins þessi eini maður
grunaður um verknaðinn
en lögreglan vildi ekki gefa
upp hvort það væri heima-
maður eða ekki. Elsti mun-
ur safnsins, þúsund ára
gamall altarissteinn,
skemmdist ekki í innbrot-
inu.
Sérrí, gin og
viskí fyrir
langlífi
Dorothy Peel
fagnaði 102 ára af-
mælinu sínu um
helgina með því að
hella í sig sérríi.
Peel, sem býr í Aust-
ur-Yorkshire á
Englandi, segir langlífl og
góða heilsu mega rekja til
áfengisdrykkju og reykinga.
Hún byrjar daginn ávallt á
sérríglasi, með hádegis-
verðinum drekkur hún gin
og tónik og síðan viskí á
kvöldin. Hún stelst til að
reykja öðru hverju en hún
hætti formlega að reykja
þegar hún var 99 ára og
hafði þá reykt pakka á dag
öll sín fullorðinsár. Læknar
segja þetta augljósa virka
fyrir konuna og gera ekki
athugasemdir. Þess má
geta að Peel dansaði í af-
mælisveislunni en annars
eyðir hún dögunum að
mestu í prjónaskap.
sóknarprestur á Hvanneyri
„Hérna er allt í föstum skorð-
um. Það er farið aö hausta.
Sumariö var meö afbrigðum
gott. Hérna á Hvanneyri eru
óskaplega skemmtilegir hlutir
Landsíminn
Nýjar
Ibúöir að rísa og grlðarleg
uppbygging á staðnum. Fólkið
er að koma sér fyrir og vetrar-
starfið I kirkjunni er að hefjast.
Veit samt ekki hvort muni
fjölga mjög I kirkjunni. Nem-
endur hafa aldrei verið mjög
kirkjuræknir. Það erbjartsýni
rlkjandi. Allt samfélagið hérna
mótast af bjartsýni."
Kasakar mótmæla hástöfum myndinni sem Sacha Baron Cohen dregur upp af
þeim í Ali G þáttunum vestanhafs. Sendifulltrúar Kasakstan í Bandaríkjunum og
stjórnvöld í Almaty óttast aö landið og þjóðin verði aðhlátursefni alls Vesturheims
ef ekki verði breyting á persónu fréttamannsins Borats í þáttunum.
f Bandaríkjunum gera þættir Sacha Baron Cohen „Da Ali G
Show“ almennt stormandi lukku. Sendifulltrúum Kasakstan í
Washington er þó ekki skemmt því þar er ein vinsælasta persðn-
an nefnilega Kasaki, fréttaskýrandinn Borat.
Sacha Baron Cohen Hlaut verðlaun fyrir bestu grínþættina á Bretlandi 2001.
Blaðafulltrúi sendiráðs Kasakst-
an í Washington segir nafn Borats,
tungu og persónu ekki eiga við nein
rök að styðjast en orðstír lands og
þjóðar sé þó í enn meiri hættu af
öllu því sem Borat lætur út úr sér í
þáttinum.
Blaðafuiltrúinn þvertekur fýrir að
hundaveiðar og nauðganir séu
helstu tómstundaskemmtanir
Kasaka, hann segir enn fremur að
stúlkur sem plægi akra séu ekki hæst
skrifaðar á hjónabandsmarkaðnum
og feður gefi ekki dætur sínar fyrir 57
lítra af skordýraeitri í heimanmund.
Blaðafulltrúinn segir heiður lands
og þjóðar í hættu, í þáttunum sé
Kasakstan gert að landi þar sem
konur er miskunnarlaust kúgaðar
enda samfélagið á eins konar stein-
aldarstigi.
Þúsund ára saga höfð að
spotti
Blaðafulltrúinn segir að hið rétta
sé að Kasakstan eigi sér þúsunda ára
sögu, þar séu konur jafnar og karlar í
háum embættum í dómskerfinu,
ráðuneytum og viðskiptalífi. Og þótt
áhorfendur viti mætavel að þáttur
Blaðafulltrúinn þver-
tekur fyrir að hunda-
veiðar og nauðganir
séu helstu tómstunda-
skemmtanir Kasaka,
hann segir ennfremur
að stúlkur sem plægi
akra séu ekki hæst
skrifaðar á hjóna-
bandsmarkaðnum.
Cohen sé grín og glens óttast blaða-
fulltrúinn að einhveijir Bandaríkja-
menn telji fót fyrir frásögnum Borats.
Talsmenn Cohens segja að ein-
ungis hafi verið kvartað yfir um-
sögnum um Gyðinga í Ali G þáttun-
um, ekki Kasaka. Þeir benda einnig á
að með fféttaskýrandanum Borat sé
Cohen fremur að beina spjótum sín-
um að fáfróðum Bandaríkjamönn-
um en Kasökum.
Óttast bylgjur kynlífsferða-
manna
Menningarfulltrúi sendiráðs
Kasakstan í Bandaríkjunum skrifaði í
blöð í Washington í síðustu viku og
minnti á að vissulega væri máifrelsi
stórkostlegt en að nú um stundir væri
heimsmálum þannig komið að
Cohen og samstarfsmenn hans þyrftu
að hugsa sig um tvisvar og jafiivel
þrisvar áður en þeir létu tíi skarar
skríða gegn þjóðum og löndum.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Kasaka segir að fréttir af þáttunum
hafi borist til landsins með veraldar-
vefnum fyrir nokkrum vikum. Hann
segir þættina skelfilega og óttast
bylgjur kynlífsferðamanna á næstu
mánuðum. Sendiherra Breta í
Kasakstan segist skilja viðbrögð
landsmanna fullkomlega en sendi-
herra Kasaka í Bretlandi segist ekki
ætla að tjá sig um þættina að öðru
leyti en því að honum finnist þeir
hreint ekki fyndnir, en þeir hafi kom-
ið Kasakstan í sviðsljósið.
Hvergerðingar enn súrir
Fordæma vínbúð á bensínstöð
Bæjarstjómin í Hveragerði er
enn afar ósátt við þá ákvörðun
ÁTVR að opna vínbúð í bænum á
bensínstöð Essó en ekki í nýju
verslunarmiðstöðinni Sunnumörk.
„Þrátt fyrir að Olíufélaginu hafi nú
tekist að uppfylla lágmarksskilyrði
byggingarreglugerðar er bæjar-
stjórn jafn undrandi og áður á því
metnaðarleysi sem einkennir fyrir-
hugaðan rekstur," segir í bókun
bæjarstjórnar, sem einnig bendir á
að 800 íbúar í bænum hafi skrifað
undir skjal þar sem staðsetning vín-
búðarinnar sé fordæmd. „Þau tíð-
indi hafa því gerst í Hveragerði að
opinberum rekstri er hleypt af stað
í bæjarfélaginu gegn vilja bæjarbúa
og bæjarstjórnar sem fram var
kominn löngu áður en Olíufélagið
blandast í málið," segir
bæjarstjórnin.
Þorsteinn Hjartarson,
forseti bæjarstjórnar, lagði
enn fremur fram tillögu
um að fela Orra Hlöðvers-
syni bæjar-
stjóra að
spjalla
við Olíu-
félagið
um mál-
ið.