Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 13
Allt stefnir í átök um formennsku í Starfsgreinasambandinu.
Signý Jóhannesdóttir, formaður Vöku á Siglufirði, vill auka
hlut kvenna og pólitíkur í stéttabaráttunni.
Á móti skeggjaöri
verkalýðsforystu
„Égheflátið kjörnefnd Starfsgreinasambandsins vita af því að ég
tæki uppstillingu til formanns eða varaformanns. Ef ég fæ
stuðning í formanninn býð ég mig fram til þess embættis," segir
Signý Jóhannesdðttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði, sem hyggst blanda sér í formannsslaginn í Starfs-
greinasambandinu.
Signý er harðorð í garð stjóm-
máiamanna og sumra félaga sinna í
hreyfingunni sem hún telur hafa
sýnt of mikla linkind í stéttabaráttu
síðustu ára. Hún segir Flóabanda-
lagið svokallaða, sem myndað er úr
þremur
Stefnir á formennsku Signý
Jóhannesdóttir er harðorð i
garð kollega sinna innan
verkaiýðshreyfingarinnar.
stærstu félögum Starfsgreinasam-
bandsins, hafa staðið Starfsgreina-
sambandinu og vegferð þess fyrir
þrifum og bendir á að frekari sundr-
ung innan hreyfingarinnar hjálpi
henni ails ekki.
Vinstri flokkarnir slappir
„Ég vil sjá verkalýðsbaráttuna
pólitískari en nú er," segir Signý.
„Þeir stjónmálaflokkar sem hreyf-
ingin batt miklar vonir við um sam-
starf og ekki síst að myndu berjast
fýrir okkur hafa ekki gert það,“ segir
Signý og á þar við Samfylkinguna,
sem hún segir hafa valdið mörgum
verkalýðsmanninum tómum von-
brigðum. Steininn hafi svo tekið úr
þegar eftirlaunafrumvarpið svokall-
aða var lagt fram fyrir síðustu jól.
„Þá sagði ég mig úr Samfylking-
unni, fékk endanlega nóg. Ég get
ekki séð að Vinstri grænir hafi skipað
sér á einhvem annan bekk hvað
þetta varðar og því sé ég ekki að
þessir flokkar séu fulltrúar verka-
lýðsgilda og þá sér í
lagi ef tekið er mið
af verkum þeirra
undanfarið," segir
Signý.
Flóabandalagið hjálpaði ekki
Signý segist aðspurð um hvort
framboð hennar tengist á einhvem
hátt vilja til að auka hlut kvenna að
auðvitað hljótí það að vera markmið
hreyfingarinnar allrar að auka hlut
kvenna í stjórnum verkalýðshreyf-
ingarinnar. „Ég er þó ekki að bjóða
mig ffam á þeirri forsendu einni,"
segir Signý. „Ég neita því þó ekki að
verkalýðsforystan er fiill skeggjuð að
mínu mati. Konur em rúmlega
helmingur félagsmanna og því er
ekki nema eðlilegt að stjóm sam-
bandsins endurspegli það," segir
Signý.
Engin óánægja
„Ég kannast ekki við að hún hafi
ákveðið að bjóða sig fram til for-
manns en veit að hún hefur tilkynnt
kjömefitd um að hún hafi áhuga á
varaformannsembættinu," segir
Kristján Gunnarsson, frambjóðandi
til formennsku í Starfsgreinasam-
bandinu og formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur.
Hann vísar því á bug að einhver
óánægja sé meðal aðildarfélaga
Starfsgreinasambandsins á lands-
byggðinni með skipan mála hjá
sambandinu.
„Þær óánægjuraddir em nú fáar
og í raun teljandi á fingrum annarar
handar," segir Kristján, sem vísar öll-
um fréttum um uppnám eða sundr-
ungu innan Sambandsins á bug.
helgi@dv.is
Synda í
verkfalli
Verktakafyrirtækið
Græðir sf. á Flateyri býður
öllum grunnskólabömum á
staðnum frítt í sund á með-
an verkfall stendur. „Ég
skildi ekki þá hundalógík
sem ff am kom í blaðinu
Bæjarins besta að sund-
laugin á ísafirði mættí ekki
vera opin á tilteknum tíma
vegna kennaraverkfallsins.
Ég ákvað því að leyfa börn-
unum á Flateyri að njóta
þess að geta farið í sund,"
segir Valdemar Jónsson,
eigandi Græðis. „Krakkarnir
em duglegir við að mæta í
sund og ég er mjög ánægð-
ur með þann árangur."
Styrkja
textíísetur
Undirbúnings-
hópur að „Textíl-
setri íslands" hefur
fengið samþykktan
einnar milljónar
króna styrk frá
Blönduósbæ. Með
upphæðinni hyggst
bærinn gerast stofn-
aðili að sjálfseignarstofnun
um textílsetrið.
Brynja Dögg og Karólína kennarar í
Rimaskóla
Með 140 þúsund á
mánuði nýútskrifaðar
„Við byijuðum báðar að kenna
nú í haust, útskrifuðumst í fyrra,"
sagði Karólína Jóhannesdóttir, nýút-
skrifaður kennari sem nýverið hóf
störf við Rimaskóla í Grafarvogi.
Hún og vinkona hennar og sam-
starfskona í Rimaskóla, Brynja Dögg
Hermannsdóttír, mættu á mót-
mælafund kennara í síðustu viku til
að sýna samstöðu sína í verki.
Þær segja verkfallið koma á
slæmum tíma fyrir þær eins og flesta
aðra en skilja vel þær kröfur sem
settar em fram. Þær segja það auð-
vitað setja strik í reikninginn hjá
þeim ef verkfallið
verði langt,
tekjumissir
| verði óhjá-
j kvæmileg-
ur.
„Hann er
samt ekki
f svo mikill
rmeðan við
fáum verk-
fallsbæt-
urnar," segir Karólína. „Ég er með
140 þúsund í byrjunarlaun útborgað
á mánuði, en verkfallssjóður greiðir
90 þúsund fyrsta mánuðinn að
minnsta kosti," segir KaróKna, sem
finnst að eigin sögn skítt að fá ekki
hærri laun eftir þriggja ára sémám
líkt og kennaranámið. Undir orð
hennar tekur Brynja: „Ég er með
tuttugu þúsund láónum meira í út-
borguð laun á mánuði þar sem ég er
orðin 25 ára, sem em bara alls ekki
há laun þegar fólk er ungt og að
koma yfir sig þaki og jafnvel borga af
námslánum," segir Brynja Dögg en
báðar segjast stelpurnar hafa gaman
af starfinu þó að h'til
reynsla sé enn komin
. enda einungis tvær
t vikur liðnar af
I skólastarfi þegar
\ verkfall skall á.
heigi@dv.is
ji Nýbyrjaðar og beint í \
I Karólína Jóhannesdóttir c
| Dögg Hermannsdóttir voi
I ar að kenna eftir útskrift ú
I háskóla þegar verkfall ska
I segja útborguð laun sin v
I þúsund á mánuði og eru i
... vera falleg?
„Það truflar mig ekkert sér-
staklega að vera falleg og hefur
aldrei gert. Ég er í eðli mínu ekki
upptekin af útlitinu þótt auðvit-
að hafi maður þurft að hugsa
meira um það í kjölfar þess að
taka þátt í fegurðarsamkeppn-
inni og hljóta titil. í mínum
huga á Ungfrú Reykjavík miklu
frekar að vera góð fyrirmynd og
ég er óhrædd við að láta sjá mig
í flíspeysu og
strigaskóm. Ég
er víst ekki
þessi týpíska
fegurðar-
drottning sem
er alltaf á
háum hælum
og í stuttu
pilsi. En auð-
vitað finnst
mér gaman að
gera mig fi'na
þegar tilefni er tíl
„Ég er víst ekki
þessi týpíska feg-
urðardrottning sem
er ailtafá háum
hælum og í stuttu
pilsi"
Bókaormur frá því í æsku
Ég stefndi aldrei á að verða
fegurðardrottning og þótt ég
hafi byrjað að stunda lfkams-
rækt reglulega þegar ég var
flórtán ára vom áhugamálin
önnur. Ég hef alltaf lesið gríðar-
lega mikið og mér hefur alltaf
gengið vel í skóla. Ég lá mest í
bókum þegar ég var unglingur.
Það er með mig eins og svo
margar aðrar stelpur að ég fór af
hálfgerðri tilviljun inn í fegurð-
arsamkeppnina. Vinkona mín
mælti með mér en hún er kunn-
ug Elínu sem rekur keppnina.
Ég ákvað að slá til en satt að
segja bjóst ég ekki við þessari
útkomu. Væntingar mínar vom
engar fýrir keppnina og þótt það
hljómi kunnuglega þá kom það
mér verulega á óvart þegar ég
vann titilinn Ungfrú Reykjavík
og hafnaði svo í öðm sæti í
landskeppninni.
Keppir í peysufötum
Fegurðardrottningarstimp-
illinn truflar ekki mitt daglega líf
en það var auðvitað svolítið
skrýtið hversu margir þekktu
mann í sjón eftir keppnina. Ég
var ekki vön því. Nú bíður
keppnin um Ungfrú Skandinav-
íu sem ég hlakka mjög til að taka
þátt í. Maður er auðvitað byrj-
aður að undirbúa sig fyrir
keppnina. Ég og
Hugrún fömm
saman til Finn-
lands og mér
sýnist að þetta
sé afskaplega
þægileg keppni.
Það eru bara tíu
keppendur og
við verðum ann-
ars vegar í þjóð-
búningum og
hins vegar í kjól-
um sem hönnuðir í Finnlandi
sjá alveg um. Ég er búin að
verða mér úti um rosalega falleg
peysuföt sem tilheyra ættinni
og það verður gaman að klæð-
ast þeim. Hvernig síðkjóllinn
verður kemur bara í ljós úti í
Finnlandi en vonandi verður
hann fallegur.
Flugið er framtíðin
Það verður nóg að gera
næstu tvær vikur fram að
keppni og svo kann að vera að
ég taki þátt í fleiri keppnum eftir
áramótin. Það er þó allt óákveð-
ið í þeim efnum. Annars fer
mestur tími minn í að sinna
flugnáminu og þannig verður
það í vetur. Ég er búin að vera á
kafi í fluginu um nokkurt skeið,
er komin með einkaflugmanns-
próf og stefni á að klára at-
vinnuflugmanninn í vor. Mig
langar að halda áfram í fluginu,
læra meira og vinna við það í
framtíðinni."
n Bender var kjörin Ungfrú Reykjavíkfyrr á ár-
lún varð í öðru sæti í Fegurðarsamkeppni Is
Siqrún verður ásamt Hugrunu Harðardottur,
rú ísland, fulitrúi íslands ílceppninmum Ungfru
dinavíu sem fram fer i Fmnlandieftir rumartvæ
. Siqrún er að læra flua og stefmr a að utskritast
átvinnuflugmannspróf næsta vor.