Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 14
14 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Hjörtur reynd-
ist sauður
Skelfingu lostinn öku-
maður gaf sig fram við lög-
regluna í Sveio í Noregi
seint á laugardagskvöld,
sagðist hafa
ekið áhjart-^
ardýr við
göng þar skammt ^
frá og drepið
það. Lögreglan
segir ökumann-1
inn engan sérfræðing í
dýrafræði, því á slysstað
fann hún dauðan sauð,
ekki hjört. Ökumanninum
var bent á að fara ekki á
hjartarveiðar á næstunni,
þá yrði allt sauðfé á Hauga-
landi og Hörðalandi sunn-
anverðu í lífshættu.
Tutu leikur í
NewYork
Desmond Tutu erkibisk-
up frá Suður-Afríku steig á
svið í frjálsu leikhúsi í New
York um helgina. Leikritið
Qallar um fangana í Guant-
anamo-fangelsinu á Kúbu
og leikur Tutu dómara sem
efast um lagaiegar heimild-
ir bandarískra stjórnvalda
til að halda mönnum
föngnum þar. Tutu tók
virkan þátt í baráttunni
gegn aðskilnaðarstefnunni í
Suður-Afríku.
Ófrjór karl
eignast15
börn
Sam Corbett, slökkvi-
liðsmaður á N-írlandi
hefur eignast 12 börn
eftir að hafa verið
úrskurðaður ófrjór. Cor-
bett var þriggja barna
faðir þegar hann fór í
krabbameinsmeðferð
fyrir tuttugu árum.
Honum var sagt að hann
gæti ekki eignast börn
Læknarnir höfðu rangt
fýrir sér og nú er Corbett
fimmtán barna faðir
Hann segir börnin dafna
vel þrátt fyrir að aðeins
séu þrjú svefnherbergi í
húsi ijölskyldunnar.
Hrækt á
Maxine
Lygalaupurinn, Maxine
Carr, varð íyrir aðkasti íyrir
utan matvöruverslunina
Tesco á dögunum. Ungir
menn veittust að henni
með hrópum og
köllum og einn
þeirra hrækti í
áttina að Carr.
Hún svaraði
mönnunum í
sömu mynt
og kvaðst
búin að taka
út sína refs-
ingu. Carr
nýtur lögregluverndar allan
sólarhringinn en hún hefur
afplánað 3 1/2 árs fangelsi
fýrir meinsæri og lygar
vegna morðanna á skóla-
stúlkunum Jessicu Chapm-
an og Holly Wells. Fyrrum
unnusti Carr, Ian Huntley,
afþlánar tvöfalt ævilangt
fangelsi fýrir morðin. Þrátt
fyrir að Carr hafi fengið
nýtt nafn gengur henni erf-
iðlega að hefja nýtt líf.
Þroskaþjálfinn segir
Foreldrar sem hlýða börnum
Þegar ég var að alast upp var skortur á flestu
því sem í dag er talið nauðsynlegt hverju barni.
Við vinkonumar áttum aðeins sína dúkkuna
hver. Mín var heimasaumaður búkur með
postuh'nshaus. Síðar bættist við heimasmíðað
dúkkurúm, sæng og koddi. Engir peningar vom
til að kaupa sælgæti eða launa fyrir viðvik. En
breytingar frá minni bemsku og þar til börnin
mín ólust
Ingveldur
Sigurðardóttir
Hefur áhyggjur afþvl aö
börnin taki stjórnina.
upp vom
byltingar-
kenndar.
Allt í einu
fékkst allt
mögulegt
dót og
peninga-
ráðin voru meiri. Rétt eins og flestir foreldrar þá
gaf ég mínum börnum meira þótt ég gæfi þeim
ekki allt. Þeim fannst ég vera dálítið ströng
mamma. Enn er komið að tilslökun hjá þeirra
börnum sem nú em að alast upp. Ég horfi for-
viða á allt það flóð af leikföngum sem fylgir
hverju barni. öll börnin vilja meira og svo
aftur meira. Kröfumar þróast jafnvel upp
í það að börn hóta foreldrum sínum að
flytja að heiman eða grípa til annarra refsi-
aðgerða fái þau ekki tiltekin gull. Sumir for-
eldrar verða hræddir og þora ekki annað en að
hlýða börnunum sínum.
Ég ráðlegg foreldrum að snúa af þeirri braut
strax. Það versta sem þau gera börnum sínum er
að hlýða þeim. Bömin eru að leita eftir reglum
og leiðbeiningum ff á þeim. Barn sem segist ætla
að flytja að heiman á að
fá jákvæðar undirtektir
svo sem: „Það verður þá
bara að vera svo.“ Jafri-
FR framt þarf að spyrja
barnið hvort það hafi
hugsað fýrir næturstað
eða hvar það ætli að fá
mat. Með þessu er
hægt að opna
augu barns-
ins fyrir því
hve rnikil-
vægt er að eiga gott
heimili og skjól frá skarkala heimsins. Börn leita
alltaf eftir aga sem skapar þeim öryggi í tilver-
Hópur grunnskólakennara úr Hafralækjarskóla er á leiðinni til Kritar i námsferð i
vikunni. Kennararnir ætla að skoða tónlistarskóla, fræðsluskrifstofur og kynnast
grískri menningu. Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambandsins segir ekki mál
forystunnar hvað kennarar geri í sínum frítíma. Foreldrar barna í Hafralækjar-
skóla eru ósáttir við að kennarar stundi nám meðan börnin sitji heima.
Kennarar í verkfalli
sleikja sólina á Krít
„Mér finnst fráleitt að kennarar í verkfalli stökkvi til að skemmta
sér undir því yfirskyni að þetta sé námsferð," segir Aðalgeir Eg-
ilsson bóndi á Húsavík sem á barnabörn í Hafralækjarskóla.
Kennarar við skólann eru á leiðinni í námsferð til Krítar í vikunni
þar sem þeir munu meðal annars kynna sér gríska menningu.
Foreldrar á Húsavík er æfir út í skólann. Spyrja hvort kennarar
megi læra meðan börnin þeirra sitji heima.
„Kennararnir ætla að skoða tón-
listarskóla, fræðsluskrifstofur og
kynnast grískri menningu," segir
Zakynthos á Grikklandi Hópurkenn-
ara úr Hafralækjarskóla ætla að skella sér
til Grikklands I vikunni i námsferö.
Þórunn Sigtryggsdóttir aðstoðar-
skólastjóri við Hafralækjarskóla.
Hún segir langt síðan ferðin var
ákveðin. Þetta séu vinnudagar sem
kennararnir áttu að vinna í ágúst en
ákváðu að fresta. Ferðin sé ekki
verkfallsbrot.
Kennarar í fríi
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands fslands, segir að flytja
megi endurmenntunartíma kennara
sem á að vinna að sumri yfir á vetur-
inn. Ef ferðin yrði stöðvuð þyrftu
kennararnir að vinna þessu vinnu
næsta sumar.
„Ég hef samt ekki kynnt mér
þetta dæmi en býst við að þetta sé
löglegt," segir Eiríkur. Fjölmargir
kennarar hafa gengið í aðrar vinnur
meðan á verkfallinu stendur
eða brugðið sér að landi
brott. Finnst Eiríki eðlilegt
að kennarar fari á sólar-
strandir eða fái sér aðra
vinnu meðan á verkfalli
stendur?
„Það er ekki okkar
mál hvað kennarar gera í
þeirra frítíma," svarar Ei- 1
ríkur.
Ekki eru allir á eitt sátt-
ir að kennarar álíti verkfallið
„frítíma" eins og formaður
Kennarasambandsins
orðar það. Aðalgeir
Egilsson, bóndi, á
bamabörn í
Hafralækjar-
skóla. Hann
segir að fólki í
sveitarfélag-
inu finnist
þetta mjög
skrýtið.
„Bömin
Wm
em í verkfalli og fá enga kennslu.
Maður botnar einfaldlega ekki í
þessu. Manni finnst fráleitt
að kennarar í verkfalli
stökkvi til að skemmta
sér í Grikklandi und-
ir því yfirskyni að
þetta sé námsferð,"
segir Aðalgeir. „Ef
þetta er löglegt er
þetta allavega sið-
Íaust.“
9HF simon@dv.is
w
Femínistar æfir vegna Paradísarhótels á Popp-Tíví
Norðurljós hunsa femínistamótmæli
Talskona Femínistafélags íslands
segist hcifa sent forsvarsmönnum
Norðurljósa bréf vegna sýninga
sjónvarpsstöðvarinnar Popp-Tíví á
þáttunum Paradise Hotel. Þættirnir
vom í síðusm viku auglýstir með
orðunum „Popp-Tívi passar í verk-
fallinu".
Að sögn Katrínar Guðmunds-
dóttur talskonu Femínistafélagsins
þótti félagsmönnum full ástæða til
að benda auglýsanda og sjónvarps-
stöðinni á að þátturinn væri ekki
ætlaður börnum vegna klámfeng-
inna atriða sem varað er við í sjálf-
um þættinum. Þykir femínistum
vera ábyrgðarlaust að sýna slíkt efni
á miðjum degi og beina því
gagngert að grunnskóla-
börnum eins og gert er í
auglýsingunni.
„Mér finnst þetta
nú furðulegt í ljósi
þess að á hvert heimili er
að verða komin nettengd
tölva sem gefur börnum
möguleika á að komast í
mun verra efrii en
Forstjóri Norðurljósa Siguröur G. Guö-
jónsson segist ekki ætla að hætta sýning-
um á þáttum eins og Pardise Hotel. Segir
nettengdar tölvur á flestum heimilum
veita aðgang að mun grófara efni.
þarna er á boðstólnum. Það er þó
alla vega varað við þessu í byrjun
þáttarins," segir Sigurður G.
Guðjónsson forstjóri Norður-
ljósa.
Hann segist ekki ætla að
mælast til þess að þættir sem
þessir verði teknir af dagskrá í
ffamtíðinni, en endursýning-
á Paradísarhótelinu er
nú lokið.
„Nei ég ætla ekki að
hætta því enda hefur
enginn kvartað undan
þessu nema þær,“
segir hann.
helgi@dv.is
Hlaut ítölskverð-
laun
Ómar
Ragnars-
son vann
aðalverð-
launin á
kvik-
myndahátíðinni í Canavese á Ítalíu
í gær fyrir mynd sína um Kára-
hnjúkavirkjun. Mynd Ómars heitir
In Memoriam? og er byggð á mynd-
inni Á meðan land byggist, sem
sýnd var í Sjónvarpinu í fyrra. Út-
gáfan sem Ómar sýndi á hátíðinni
var gerð sérstaklega fyrir ítalskan
markað en hann vinnur nú að nýrri
alþjóðlegri heimildarmynd um
svæðið norðan Vatnajökuls. Ríflega
eitt hundrað myndir kepptu til
verðlauna á hátíðinni.