Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Qupperneq 17
DV Fréttir MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 17 r bókabúðum en hægt er að kaupa hana með afslætti á femin.is og kost- ar hún 7.260 krónur. • Vefurinn sykurlaust.is er sniðugur fýrir þá sem vilja draga úr sykumeysl- unni en borða samt sælgæti og kökur. Á sykurlaust.is er hægt að kaupa ýmsan sykurlausan vaming, svo sem sósur og grauta. Þeir sem panta vörur fá þær sendar heim. • Matreiðslubókin Létt og freistandi, eftir naumabelginn og sjónvarpskokkinn Nigellu Lawson, fæst nú með 30% afslætti á vef Eddu, www.edda.is. Nigella er fræg fyrir að búa til einfalda ogljúf- fenga rétti semallir eiga að geta leikið eftir í eld- húsinu. Sjúklega gaman í badminton „Mér finnst sjúklega gaman að spila badminton. Ég upp- götvaði þessa (þrótt síðastliðið vor þegar ég fékk að hlaupa í skarðið fyrir vinkonur minar sem stunda þessa iþrótt," segir Inga Lind Karlsdóttir, sjónvarpskona á Stöð 2. „Ég byrjaði svo að æfa af krafti nú i haust og æfi þrisvar (viku Ég æfi vikulega með vinkonum mfnum, vikulega með eigin- manninum og svo spilum við saman tvfiiðaleik við vini okkar. Þetta gæti ekki verið betra og ég er orðin svo forfallin að ég er farin að frysta fjaðurboltana eins og atvinnumenn gera. Þeir endast bet- ur ef þeir eru geymdir (frysti á milli æfinga. Ég reyni Ifka að fara i i ræktina nokkrum sinnum (viku en það jafnast ekki á við skemmtunina f badminton," segir Inga Lind Karlsdóttir. Opið alla daga kl. 8-24 Lyfja Lágmúla og Lyfja Smáratorgi Cb LYFJA Landlæknir hvetur eldra fólk og sjúka til að láta bólusetja sig strax gegn árlegri inflúensu. Inflúensan nálgast landið og hef- ur þegar stungið sér niður í Noregi og Svíþjóð. Flensan er handan við hornið Hinn árlegi inflúensufaraldur fer brátt að herja á landsmenn en þær fregnir hafa borist að inflúensan hafi þegar stungið sér niður í Sví- þjóð og Noregi. Landlæknisemb- ættið hvetur fólk til að láta bólu- setja sig gegn flensunni. Bólusetn- ingin er þó ekki 100% vörn gegn því að fá flensu og alltaf eru dæmi um að einhverjir fái flensu þrátt fyrir sprautuna. Haraldur Briem sótt- varnalæknir segir bólusetninguna ekki 100% vörn gegn því að fólk fái flensu. „Hún dregur hins vegar mjög úr útbreiðslu faraldursins auk þess sem einkennin verða oftast vægari hjá þeim sem fá flensuna. Við hvetjum fólk til að láta bólu- setja sig,“ segir Haraldur. Heilsugæslustöðvar um allt land eru hvattar til að kalla inn fólk sem er í áhættuhópum þegar inflúensa er annars vegar. Þeir sem teljast í áhættuhópi eru alhr þeir sem eru eldri en sextíu ára, öll börn og full- orðnir sem þjást af langvinnum hjarta, lungna, nýrna- og lifrarsjúk- dómum, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdóm- um. Þá segir Haraldur Briem að sér- stök áhersla sé lögð á að starfsmenn sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana láti bólusetja sig þannig að það beri ekki smit. Bólusetningar gegn inflúens- unni hafa færst mjög í vöxt og í fyrra höfðu um 55 þúsund manns látið bólusetja sig á þessum tíma árs. Al- gengast er að in- flú- Arsenik hvítblæði Vísindamenn viS Læknaháskól- ann í Teheran i íran segja aömeð- ferð við hvitblæði með lyfi sem unnið er úr eitrinu arseniki gefí góða raun. Arsenik-lyfið var reynt á sextíu og þremur sjúklingum og eftir tvær meðferðir var heilsufar 90% þeirra mun betra. Sjúkling- arnir hafa verið á lyfinu í tæp þrjú ár og eru 88,5% þeirra sem hófu iyfjameðferðina enn á lífi. Arsenik-lyfið hefur einnig verið reynt í Kína með góðum árangri. Marqir múslimar ial< östumánuði Ivfiaiausir i WS TOS1 j Músiimar á bæn 1 Margirþeirra I hætta að taka lyf- I in sln í Ramadan. Meirihluti múslima sem tekur lyfvið ýmsum sjúk- dómum hættir að taka þau eða breytir lyfjatökunni í föstumánuðin- um Ramadan. Föstumánuðurinn hefst 15. októ- ber og samkvæmt reglum Islam mega sanntrúaðir ekki setja neitt inn fyrir sinar varir frá sólarupp- rás til sólarlags. Aldraðir, mæður með börn á brjósti, ófrískar konur og þeir sem eru veikir eru undan- þegin föstu. Samkvæmt nýrri könnun kom i Ijós að 60% ibúa Marokkó breyta lyfjatöku vegna föstunnar og flestir hættu alveg að taka lyfin sín. I Kúvæt reyndust tveir þriðju breyta lyfjatökunni og einn afhverjum fimm tók dag- skammtinn sinn einu sinni á sólar- hring. Málsmetandi múslimar í mörgum löndum eru uggandi yfír niðurstöðunni og hvetja þá sem eru á lyfjum til að fara eftir fyrir- mælum lækna. Bólusetning. Hvatt er til þess að eldri borgarar láti ekki hjá líða að fara í bólusetningu. Sama gildir um börn og fullorðna sem þjást afiangvarandi og erfiðum sjúkdómum. Myndin er úr safni. wm ;egn »ru- hálskrabba Hollenskir vísindamenn hafa undanfarin misseri prófað lyf gegn krabbameini í blöðruhálskirtli á tilraunamúsum og gefur það góða raun. Lyflð sem framleitt er á til- raunastofum og líkist efninu sem gefur tómötum rauða litinn dreg- ur úr vexti æxlisins um ailt að helming. Ef E-vítamíni er blandað saman við fyfið dregur það enn úr vextinuin. Krabbamein í blöðru- hálskirúi er algengasta meinið sem karlmenn fá. í Bretlandi greinast árlega um tuttugu þús- und karlmenn með það og krabbameinið dregur um tíu þús- und manns til dauða á hvetju ári. ensufaraldurinn hefjist í nóvember og standi fram í mars en í fyrra kom flensan óvenju snemma, eða í októ- ber, og hugsanlegt að það gerist aft- ur nú. Hægt er að lesa um bólusetn- inguna og almennt um innflúensu á vefnum landlaeknir.is. Hvernig vinn ég bug á frunsu? !«=SSS?!5 konur - ANDLITSMEÐFERÐ - karlar BETRI EN BOTOX ! ? Árangur kemur strax! GJAFABRÉF Snyrtisetrid ehf HÚÐFEGRUNARSTOFA -sími 533 3100 Domus Medica, inngangur frá Snorrabraut „Að vinna bug á frunsu á vör er auðvelt ef maður bregst við um leið og tilfinning- in fyrir henni kemur," segir Sigrfður Jakobs- dóttir iyfjatæknir f Lyfjum og heilsu f JL-hús- inu. „Það er til frunsulyf sem á að setja á um leið og hún fer að myndast. Ef frunsan er komin og farin að blómasta vel þá eru einnig til breiðvirk- ari frunsulyf. Frunsum á vörum veidur veiran Herpes simplex virus 1 og einkennist af litlum klösum af vökvafylitum blöðrum. Oft er þrýstingur ( frunsunni og viðkomandi svæðí verður aumt. Blöðrurnar gróa en hafa til- hneigingu til að koma aftur. Hjá sumum einstaklingum myndast margar frunsur (einu og þá borgar sig að leita til læknis. Annars veita lyfjatæknar og lyfjafræðingar i lyfjabúðum þeim sem fá frunsur leiðbeiningar og tilsögn." Lífi - þar sem þú getur treyst á gæðin - YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 ður undan að láta verði til slímhúðarpokar. Pokarnir geta verið án einkenna árum sam- an en þegar þeir bólgna fer gaman- ið að kárna. Verkir koma í kviðinn, hægðir geta breyst, hiti hækkar og við skoðun er kviðurinn aumur viðkomu. Blóðsökkið hækkar og hvítum blóðkornum fjölgar svo blóðprufa er gagnleg í því skyni að staðfesta greininguna. Blætt getur skyndilega og sársaukalaust frá ristlinum og lífhimnubólga getur verið fylgifiskur. Það er því mikil- Katrín Fjeldsted svararspurningu um verki í kvið. vægt að fara til læknis í tæka tíð. Meðferð felst í sýklalyfjum, hvíld og suma þarf að leggja inn á sjúkrahús en veikindin uppgötvast til allrar hamingju oft það snemma að hægt er að meðhöndla fólk utan spítala. Huga þarf að frekari rann- sóknum svo sem því að spegla ristilinn og/eða mynda svo stað- festa megi greininguna og útiloka aðrar ástæður. Pokar á ristli algengir Talið er að rangt mataræði sé helsta orsökin og þess vegna hefur hver og einn það að miklu leyti í hendi sér hvernig fer. Pokar á ristli er ótrúlega algengir og hrjá hátt í þriðjung fólks yfir sextugu í hinum vestræna heimi. Já, það er nokkuð margt sem þú getur gert sjálf. Efst á blaði er mataræðið. Þú segist hafa tekið þig verulega á hvað það varðar og er það gleðilegt en það er þó ekki þar með sagt að mataræði þitt sé ákjósanlegt eða rétt. Án efa hefur læknir þinn haft í huga að ræða um það þegar þú kæmir aftur til hans. Þú þarft fyrst og fremst að huga að því að í fæðunni sé nóg af trefjum en þær er meðal annars að finna í grófu brauði, ávöxtum og græn- meti. Einnig þarftu að sjá þér fyrir nægum vökva og ekki má gleyma að hreyfa sig. Enn og aftur rekum við okkur á það hve mataræði og hreyfing skipta miklu. Matargerð á heimil- um og þekking á því hvaða matar við þörfnumst hefur alltaf skipt máli. í skyndibitaveröld nútímans þar sem fremur er hugsað um að seðja sig með hraði en að í magann fari valin fæða er ekki nema von að eitthvað láti undan. Maðurinn er jú það sem hann borðar, ekki satt? Katrín Fjeldsted Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 BIRKIASKA Gjöf frá náttúrunnar hendi Aloe Vera drykkir \MP Sjálfstæður dreifingaraðili Forever Living Products. Guðmundur A Jóhannsson. Sími. 662 2445. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.