Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 20
20 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 Sport DV Milan Stefán Jankovic, Keflavík „Ég lofaöi sjálfum mér að koma hingað aftur og vinna eftir að ég tapaði bikarúrslitaleiknum fyrir tíu árum sem leikmaður Grindavíkur. Nú hefur það ræst og þetta er fal- legasta stundin sem ég hefátt á íslandi Atli Sveinn Þórarinsson, KA „ Við berum hins vegar höfuðið háttog erum stoltir. Það er engin tilviljun að við komumst í bikarúr- slitaleikinn og með því að komast þangað held ég að við höfum sýntað við getum unnið öll lið á góðum degi." Ronni Hartvig, KA „Kristinn Jakobsson hefur verið duglegurað dæma á mig vlta- sþyrnur i sumar en ég held að þessi hafi verið réttlát. Þetta var klaufa- og heimskulegt hjá mér en ennþá klaufalegra hjá öllu liðinu að láta manninn komast þetta langt. Það er erfitt að fá á sig mark svona snemma og ég held að leikurinn hefði þróast öðruvísi efþeir hefðu ekki skorað svona snemma." DV-mynd Vilhelm Jakob Jónharðsson, Keflavík „Við vorum með myndbönd og fleira frá því að Keflavík vann bikarinn síðast 1997 og sýndum strákunum hvað þetta eræðis- leg stund. Þeir hafa greinilega tekið vel eftir og fá því að upplifa þetta núna." Scott Ramsey, Keflavík „ Við erum með ungt og gott lið og það verður mjög fróðlegt að fylgjast með hvað það gerir á næsta tímabili." Haraldur Guðmundsson, Keflavík „Við vorum algjört jó-jó-lið í deildinni en við vorum að koma uþþ, náðum fimmta sætinu og bætum núna bikarnum við þannig að ég er alveg fyllilega sáttur við sumarið." Þórarinn Kristjánsson, Keflavík „Það er erfitt aðfinna betri dag en þennan. Ég hefði getað skor- að þrennu en maður var fljótur að gleyma því þegar bikarinn var kominn í hús." Takkfyrir stuðninginn Leikmenn Keflavíkur- liðsins þökkuðu stuðningsmönnum sinum fyrir hvatninguna eftir leikinn. DV-mynd Vilhelm jEir f ar ■«"Éi Ajg# s, Iggg : ■Hp 1 ’■ - Wtk 4 81 ■L 1 Maður dagsins Þórarinn Kristjánssoh fagnarhérseinna marki sínu ásamtþeim Jónasi Sævarssyni, besta manni vallarins. og Hólmari Erni Rúnarssyni sem lagði markið upp. Fyrir neðan má myndir afþviþegar Þórarinn skorar mörkin sin sem komu bæði á stu 25 minútum ieiksins. DV-myndir E.ÓI. Nýliðar Keflavíkur urðu aðeins aðrir nýliðar sögunnar til að vinna bikarkeppnina og þriðja liðið á fyrsta ári íslenskri knattspyrnu. Keflavík vann KA 3-0 í úrslitaleik VISA-bikars karla á Laugardalsvelli á laugardag. Tvö mörk frá Þórami Kristjánssyni á fyrstu 25 mínútum bikarúrslitaleiks Keflavíkur og KA á Laugardalsvellinum á laugardaginn fóm langt með að gera út um leikinn þótt meira en klukkutími væri óspilaður. Nýliðar Keflavíkur urðu aðeins þeir þriðju til þess að vinna stóran titil á sínu fyrsta ári meðal þeirra bestu og unnu sannfærandi og ömggan 3-0 sigur. Keflavíkurliðið sýndi sínar bestu hliðar á laugardaginn og þetta unga og efnilega lið naut örugglega góðs af því að vera að spila þriðja leikinn sinn í röð á Laugardalsvellinum því strax frá fyrstu mínútu var það ljóst að þetta yrði á brattann að sækja fyrir norðanmenn sem höfðu lagt tvö efstu lið Landsbankadeildarinnar á leið sinni í úrslitaleikinn. KA-menn þurfa nú að sætta sig við að fara tómhentir niður um deild líkt og hin fjögur fail-liðin sem höfðu komist í bikarúrslitin á undan þeim. Liðið átti ekki svar við frískum og leiknum Keflvíkingum sem gerðu þungum og Sigurinn tryggður Varamaðurinn Hörður Sveinsson skoraðiþriöja mark Keflavíkur og gull- tryggði sigurinn og fagnaöi með þvlað hlaupa útafvellinum og leggjast upp á verðlaunapall- inn þar sem hann var geymdur fyrir framan stuðningsmenn Keflavíkur sem fögnuðu grlðar- lega I stúkunni fyirr ofan. Félagar hans I liðinu voru líka fljótir á staðinn. DV-mynd Vilhelm seinum vamarmönnum KA-manna oft lífið leitt. Þórarinn Kristjánsson skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu á 11. mínútu eftir að Ronni Hartvig hafði fellt Scott Ramsey sem var mjög ógnandi á vinstri vængnum. Þórarinn bætti öðru marld við á 25. mínútu eftir glæsilega sókn og sendingu Hólmars Amar Rúnars- sonar. Lokamarkið skoraði vara- maðurinn Hörður Sveinsson á loka- mínútu leiksins eftir stungusend- ingu fyrirliðans Zorans Daníels Ljubicic sem tók síðan við bikamum í leikslok. Þórarinn Kristjánsson var klaufi að innsigla ekki þrennuna auk þess sem Keflavíkurliðið fékk mörg góð færi til viðbótar þeim tveimur dauðafærum sem þessum snjalla markaskorara bauðst til að verða fyrsti leikmaðurinn í sögu bikar- keppninnar sem skorar þrennu í venjulegum leiktíma í úrslitaleik. KA-menn ógnuðu mest eftir sendingar Deans Martin úr auka- spymum og homspymum en liðið þurfti að sætta sig við sitt annað bikarsilfur á aðeins þremur árum. Keflavíkurliðið er vissulega fram- tíðarlið í íslenska boltanum en til þess að liðið geti stigið næsta skref er mikilvægt að forráðamenn félagsins hafi lært af reynslu síðustu ára en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Keflvíkingar em með efnilegt knatt- spyrnulið. Liðið hefur vantað stöðugleika í sumar sem sést vel á því að liðið fær á sig flest mörk í deildinni er verður jafnframt hið fyrsta til að halda hreinu í gegnum allar fimm umferðir bikarkeppn- innar. Nú er allt í hendi til þess að gera Keflavík að stórveldi í íslenskri knattspymu og fyrsti bikarinn af mörgum gæti því verið farinn suður með sjó. ooj@dv.is Allt út um allt Keflvíkingar fagna uppi á verðlaunapallinum með því að sprauta vatni hver á annan. DV-mynd Vilhelm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.