Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Page 21
DV Sport MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 21 M t í efstu deild sem vinnur stóran titil í AF SPJÖLDUM BIKARSÖGUNNAR Keflavík varð fyrsta liðið til að halda hreinu út alla bikarkeppnina síðan liðin fóru að þurfa að fara í gegnum flórar eða fleiri umferðir til þess að hampa bikarnum. Keflavík spilaði í 450 mínútur gegn Völsungi, Fram, Fylki, FIK og KA án þess að fá á sig mark en Keflavfkurliðið var samt það lið f Landsbankadeildinni sem fékk á sig flest mörk. Aldrei hafa komið færri áhorfendur á úrslitaleik bikarkeppninnar síðan hann fór að fara fram á Laugardalsvelli. Aðeins 2049 manns mættu á leikinn á Laugardaginn en metið átti áður leikur Vals og Keflavfkur árið 1988 þegar 2432 mættu á úrslitaleikinn sem endaði með 1-0 sigri Vals. Nýliðar f deildinni hafa aðeins einu sinni áður unnið bikarinn en Eyjamenn afrekuðu það fyrir 26 árum síðan þegar þeir unnu b-lið KR-inga, 2-1, í úrslitaleiknum á Melavellinum 1968. Skagamenn, 1992, eru sfðan einu nýliðarnir sem hafa orðið meistarar og því hafa bara þrjú lið á fyrsta ári unnið stóran titil. Þórarinn Kristjánsson varð fyrsti leikmaðurinn í 19 ár sem kemur sínu liði í 2-0 í bikarúrslitaleik. Sfðastur á undan honum til að koma sfnu liði f viðlfka lykilstöðu var Framarinn Pétur Ormslev skoraði tvö fyrstu mörkin í 3-1 sigri á Keflavík 1985. Best í sumar Hér sést besta og efnilegasta knattspyrnufólk landsins. Frá vinstri Heimir Guöjónsson, bestur, Emil Hallfreðsson, efnilegastur, Margrét Lára Viðarsdóttir, efnilegust, og Laufey Ólafsdóttir, best. DV-myndir Palli íslandsmeistararnir tóku stærstu verðlaunin í hófinu Heimirog Laufey valin best Líkt og á íslandsmótinu voru það lið FH og Vals sem tóku stærstu verðlaunin með sér heim af lokahófi Knattspymusambandsins sem haldið var á Broadway á laugardalskvöldið. Heimir Guðjónsson var valinn bestur af körlunum en hann átti frábært tímabil á miðju meistaranna, vann langþráðan fslandsmeistaratitil og bætti nú við mestu viðurkenningu sem knattspymumaður hér á landi getur hlotið. FH-ingar áttu einnig besta leikmanninn í fýrra þegar Allan Borgvardt var kosinn bestur. Félagi Heimis og Allans í FH- liðinu, Emil Hallíreðsson, var kosinn efnilegasti leikmaðurinn og er þetta í fyrsta sinn sem FH-ingar hljóta þessi verðlaun. FH-ingar áttu einnig besta þjálfarann í Ólafi Jóhannessyni. FH- liðið átti að lokum fimm af 11 leikmönnum í úrvalsliði sumarsins. Efnilegust annað árið í röð Valskonan Laufey Ólafsdóttir var kosin best hjá konunum en hún átti mjög gott tímabil með Hlíðarendaliðinu sem vann sinn fyrsta íslandsmeistaratitil í 15 ár. Margrét Lára Viðarsdóttir 18 ára stelpa úr ÍBV var valin efiiilegust annað árið í röð en hún hlaut einnig gullskóinn sem markahæsú leik- maður Landbankadeildar kvenna. Eyjamenn fengu reyndar báða KVENNALIÐ ÁRSINS Markifi: Guðbjörg Gunnarsdóttir Valur Vörnin: (ris Andrésdóttir Valur Pála Marie Einarsdóttir Valur Guðrún Sóley Gunnarsd. KR Málfríður Sigurðardóttir Valur Miðjan: Karen Burke ÍBV Laufey Ólafsdóttir Valur Edda Garðarsdóttir KR Hólmfrlður Magnúsdóttir KR Sóknarmenn: Margrét Lára Viöarsdóttir ÍBV Nlna Ósk Kristinsdóttir Valur gullskóna því Gunnar Heiðar Þor- valdsson var markahæstur í Lands- bankadeild karla. Eh'sabet Gunnarsdóttir var kosin besti þjálf- arinn hjá konunum. Þá var Garðar Öm Hinriksson kosinn besti dóm- arinn í fyrsta sinn. ooj@dv.is KARLALIÐ ÁRSINS Markifi: Bjarni Þórður Halldórsson Fylkir Vörnin: Freyr Bjarnason FH Sverrir Garðarsson FH Gunnlaugur Jónsson (A Tommy Nielsen FH Miðjan: Atli Sveinn Þórarinsson KA Heimir Guðjónsson FH Bjarnólfur Lárusson (BV Emil Hallfreðsson FH Sóknarmenn: Gunnar Heiðar Þorvaldsson (BV Grétar Hjartarson Grindavík Hver heldur eiginlega með Grimsby? f síðustu viku var ég snupraður af knattspymu- ddmara - gallhörðum Vík- ingi. Einhverju sinni hafði ég nefnilega misst það út úr mér í sjónvarpi að góð vinkona mín væri eini stuðningsmað- ur Grimsby Town á íslandi. „Við erum þrjátíu sem höld- um með Grimsby," upplýsti dómarinn og bætti því við að Bolta bullið eftir Stefán Pálsson hann héldi nákvæma skrá yfir söfnuðinn. Að þijátíu íslendingar skuli halda með miðlungsliði í gömlu fjórðu deildinni er í sjálfu sér rann- sóknarefiii. Ef til vill má skýra þetta með samviskubiti þjóðarinnar eftir sigrana í þorskastríðunum, sem lögðu Grimsby í rúst? Ætli Hull City eigi þá ekki líka dyggan hóp aðdáenda hérlendis? Níutíu sérvitringar? Segjum sem svo íslenskir stuðningsmenn sjóaranna frá hafharbænmn fylli þriðja tuginn, hversu margir ætli fylgismenn ný- liðanna þriggja í úrvalsdeildinni séu þá? Skjótum á svona tuttugu WBA-menn og eitthvað svipað hjá Norwich. Crystal Palace var mikið í sviðsljósinu fyrir nokkrum árum og Hermann Hreiðarsson lék þar við góðan orðstír. Talan fjörutíu gæti því verið nærri lagi. Út frá þessari tölfræði ættu ekki nema 90 manns að hafa áhyggjur af þeirri staðreynd að liðin þrjú, sem komu upp úr fyrstu deildinni í fyrra hafi ekki unnið einn einasta leik fyrr en komið var fram í október. Verður að telja líklegt að ný- liðamir þrír fari allir beina leið niður aftur, í fyrsta sinn síðan 1998 þegar Bolton, Bamsley og Crystal Palace máttu bíta í það súra epli. Þeir ríku verða ríkari En staðan á botni deildarinnar segir okkur meira en að nýliðamir séu með slappasta móti. Hún er angi af stærra vandamáli - gjánni sem myndast hefur milli ensku úr- valsdeúdarinnar og deildanna þar fyrir neðan. Gjá sem fer stöðugt breikkandi. Helsta tekjulind knatt- spymuliða á okkar tímum em greiðslur fyrir sjónvarpsrétt. Áætl- að er að neðstu liðin í efstu deild hali inn tífaldar sjónvarpstekjur á við toppliðin í deildinni þar fyrir neðan. Þau lið sem komið hafa upp í úrvalsdeildina og náð að pluma sig þar skiptast í tvo hópa. Annars vegar félög með vellríka bakhjarla sem dæla peningum í kaup á leik- mönnum. Hins vegar em það félög á borð við Chariton eða Bolton, sem hafa náð að spila skynsamlega úr litlu, en njóta nú ávaxtanna af sjónvarpsgróðanum. öll lítil félög í Englandi dreymir um að verða eins og Charlton, komast í efstu deild og þrauka meðal þeirra bestu. Því miður er líklegra að slík ævintýri endi með ósköpum, falli niður um deild og miklum fjár- hagsvandræðum - líkt og Swindon, Barnsley, Bradford og Úlfamir mátm reyna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.