Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 Fókus DV Nauðsynlegt tæki? Hlutverk lyginnar í pólitík Sagnfræðingafélagið heldur áfram hádegisfundum sínum í Nor- ræna húsinu á morgun, þriðjudag, og verður þar fram haldið umræðu um valdið. Gagnmenntaður heim- spekingur, Jón Ólafsson, talar þá um „Vald og stýringu. Um hlutverk lyga í stjórnmálum." Jón hefur á undan- fömum misserum tekið nokkrum sinnum til máls um pólitískt ástand og alltaf fundið önnur sjónarhorn en þá sem flestir hópast á. Stutt ágrip af erindi hans er svohljóðandi: „Við lif- um við þá undarlegu mótsögn að lygar em hvort tveggja í senn nauð- synlegt tæki stjórnmálanna og at- hæfi sem allir stjórnmálamenn, og þeir sem með völdin fara hverju sinni, hafiia. Það að stjórnmála- menn geta beitt lygum og beita þeim sýnir okkur að vald ræðst ekki nema að hluta af veruleikanum hverju sinni. Það ræðst einnig af væntingum sem skapa má með þeim sem stjómað er. Lygar em meðal þeirra stýringartækja sem stjórnmálamaðurinn getur illa neit- að sér um. I margbrotnu samfélagi nútímans verður meðferð lyginnar hins vegar sífellt flóknari og áhættu- samari." í fyrirlestrinum verða rædd nokkur dæmi um viðhorf heimspek- inga til lyga í opinbem lífí og endað á hugleiðingu um stöðu lyginnar í samtímastjórnmálum. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega kl. 12.05 ■»» Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is BÚIÐ er að velja Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson sem framlag okkar til Ósk- arsverðlauna Ideildinni fyrir kvikmyndir ú öðrum tungumálum en ensku. Kay Pollak er leikstjórinn framlags Svia, Sð som i himmelen - Svo á himnum -sem er framleidd fyrir sænska og danska pen- inga. Norðmenn völdu mynd Erik Poppe Hawaii, Oslo sem ersögð minna á amer- Iskar blómyndir á borð við Short Cuts og Magnolia. Danska framlagið er veriö að sýna hér á Dönskum dögum en það er mynd þeirra Jargens Leth og Lars von Tri- er, De fem benspænd eða Fimm hindran- ir. KVIKMYNDAHÁTÍÐIN iReykjavík mun vera staöráðin f að halda rekstrinum áfram þó styrkur borgar og ríkis renni nú til einkafyrirtækis, Alþjóðlegu kvik- myndahátiðarinnar I Reykjavik. Verður gaman að sjá hvernig sá slagur verður og ekkislður hvaða afstöðu Flugan opninberir starfs- menn og stjórn- málamenn taka til þeirrar stöðu sem komin er upp Irekstri hátíðanna. Sam- kvæmt jafnræðisreglu ættu báðar hátlðir að njóta jafn hárra styrkja frá hinu opin- bera. SINFÓNlAN heldur opinn fund I kvöld þar sem rætt veröur um stöðu hljóm- sveitarinnar. Umræðurum verkefnaval, einkum hlutfall innlends efnis, voru fyrirferðarmiklar á síð- um Moggans eftir ágætar ádrepur Jónasar Sen bæði I Mogg- anumogeinsl TMM, en fáir þorðu aðsegja nokkuðsemá vartakandi. Þorkell Helga- son stjórnar- formaður Sinfó bar ILesbók, undir lokin. Vonandi geta menn leyst afsér keflið og talað frjálslega um stöðu Sinfó I kvöld. Einkum verður fróðlegt að heyra viðhorf Þrastar Ólafssonar fram- kvæmdastjóra sem hefur tekið á sig stöðu listræns stjórnanda grúppunnar. Hann skrifar til dæmis formála að glæsi- legum bæklingi hljómsveitarinnar um verkefnaskrá vetrarins. Fundurinn erkl. 201 Iðnó. LEIÐARI Moggans á föstudaginn var tek- inn upp I vefriti Lands og sona, enda ekki nema eðli- legt. Rltstjórn- arstefna blaðsins heimtarí fyrsta slnn ,gagnrýnin augu“ástefnu sjónvarpsstöðva um hlut Islenskra heimildarmynda I dag- skrárstefnu þeirra. Vonandi ná sjónarmið Moggans og margra íslenskra kvik- myndagerðarmanna inn I frekari umræðu um leyfisskilyrði fyrir sjónvarpsstöðvar. En tilvitnunin hljóðar svo:„Þau tækifæri verða þó tæpast til nema hér verði til við- unandi markaður fyrir sllkar myndir, þ.e.a.s. hjá Islenskum sjónvarpsstöðvum, sem hingað til hafa ekki verið mjög öflug- ir kaupendur að sllku efni; i það minnsta ekki eftekið er tillit til þess hversu mikið er nú framleitt afþvi hérá landi. Kaupstefna sú, sem er hluti afNordlsk Panorama, skiptir kvikmyndaheiminn á Norðurlönd- um miklu máli, Islenskan kvikmyndaheim ekki slður en þann erlenda, enda hitta kvikmyndagerðarmennirnir þar fyrir þá sem sjá um úthlutanir úr opinberum sjóð- um, fjárfesta og þá sem kaupa inn fyrir sjónvarpsstöövarnar. Með aukinni grósku I Islenskri kvikmyndagerð er full ástæða til að horfa gagnrýnum augum á hlutverk sjónvarpsstööva, sem ættu að sýna mun meira aflslensku efni en raun ber vitni.“ Arthur Miller er aö verða níræður og enn hafa menn mestan áhuga á sambandi Að klára kvikmynd hefur stundum reynst mönnum erfitt. Fræg- ar eru sögur af einni síðustu kvikmynd Marilyn Monroe sem var tekin í eyðimörkinni við Reno í Nevada. Það var þurrt sumar. Með henni á setti voru Clark Gable, en þetta reyndist einnig vera hans síðasta mynd, Montgomery Clift, önnur brotin stórstjarna, og þáverandi eiginmaður hennar, leikskáldið Arthur Miller. Kvikmyndin hét The Misfits, leik- stjórinn var John Huston. Myndin greindi frá hópi fölks sem hraktist saman í skjóli éyðimerkurinnar. Gable, gamaíU kúreld, Monroe, frá- skilin kona á þvælíngi. Handritið var eftir Miller. Hjónaband þeirra Mon- roe var komið í strand. Tökur gengu erfiðlega og aðalleikkonan var oft for- fölluð. Nýtt leikrit frumsýnt í Chicago Nú hefur Miller öðru sinni snúið sér að stuttu hjónabandi þeirra Mon- roe. Nýtt leikrit eftir hann, sem sækir sýnilega í dapurlegan endi hjóna- bands þeirra í eyðimörkinni, verður frumsýnt í Chicago og leikur Matt- hew Modine þar ungt leikskáld sem er fast í kvikmyndatökum með stjömu sem er að gefast upp í lífsbar- áttunni. Ég hef syndgað... Fyrra verk Millers sem vísaði beint í hjónaband þeirra Monroe skrifaði hann 1964 og kallaði After the Fall eða Eftir syndafalliö eins og það kall- aðist á íslensku. Það er martraðar- kennd lýsing á lífi rithöfundar sem er í senn plagaður af samviskukvölum vegna svika sinna fyrir opinberri rannsóknarnefnd þar sem hann hef- ur vitnað gegn vinum sínum, og ekki síður þjáður af svikum við eiginkonu sína, breyska sál í fögrum líkama. Syndafallið hefur aldrei þótt í hópi bestu verka Millers en fékk þó, fyrir nokkrum árum, ágætar undirtektir þegar það var tekið til sýninga á ný í London og víðar. Nær níræðu Miller er 88 ára og er enn í fullu íjöri, skrifar samkvæmt venju og hef- ur átt ágæt verk á fjölnum. Haft er eft- ir Modine að nýja verkið sé eins og eftir ungan mann. Þar ræðst Miller harkalega að Strasberg-hjónunum en þau vom kennarar Monroe frá New York og ráðskuðust mikið með hana. Strasberg var byltingarsinnaður leikhúsmaður í sinni tíð og þjálfaði marga merka leikara á síðari hluta tuttugustu aldarinnar; Newman, Pacino og margir fleiri voru nemend- ur hans. Sjálfur lék hann frægt hlut- verk í Guðföðurnum öðrum hluta, Hyman Roth. Miller er sem sagt að gera upp reikningana. Gamansamt verk Miller segir verkið vera grín um kvikmyndabransann. Modine segir það blöndu gamans og alvöm. Hvað er hægt að gera þegar stjarnan á sett- inu vill ekki leika lengur en það em átta dagar eftir af tökuplaninu? Sýningin verður leikin í borg vind- anna fram eftir hausti en síðan flutt til New York. Þaðan stendur til að flytja hana til London þar sem Kevin Spacey ætlar að sýna verkið, Að klára kvikmynd - Finishing the Picture, á Old Vic sem hann stýrir þessi misser- in. Á annarri hæð Þjóðarbókhlöðunnar er lítil en snotur sýning- araðstaða í fordyrisrýminu við hlið kaffistofunnar. Þar stendur nú yfir sýning í tilefhi hundrað ára sögu hljóðritunar á íslandi. Sýningin var opnuð þann 25. september og verður uppi fram í miðjan nóvember. I sýningunni er stiklað á stóru í sögu hljóðritunar á íslandi. Sýningin er hönnuð af Ólafi EngÚbertssyni og er sett upp á stóra fleka en á þeim er margvíslegt grafi'skt efhi. Þetta er tækni sem Ólafur hefur beitt nokkuð lengi í ýmsum sýningum, bæði á vegum Leikminjasafns og einnig Smekkleysu-sýningarinnar sem víða hefur farið. Fyrir neðan flekana eru sýningarkassar með minjum frá hundrað ára sögu, plötum, tækjum og prentefni. Galli er hversu lítil sýningin er: hér vantar til dæmis frumritunina frá seinni tfmum: tveggja rása og fjögurra rása segulbandið, marg- rása böndin eins og þau þróuð- ust. Sögukver I tengslum við sýninguna er ugestum gefin lítil kver sem rekja þessa merkilegu sögu. Þar segir af vaxhólkum, hljómplötunni þegar hún kom til og hvernig hún þró- aðist. Ekki er minnst á sögu Stjörnu- plötunnar, enda ólíklegt að nokk- uð af þeim sé lengur til, en fróð- legt væri að vita hvort heimildir eru til um hversu margir notuðu þá tækni til hljóðritunar á rödd- um sínum upp úr 1930. Þá er ekki sagt frá hversu margvíslegt efni var hljóðritað hér sumarið 1930. Er einhvers staðar til platan með lestri Mörthu Kalman á ævintýrum? Skortur á heimildum Þessi litla sýning er himin- hrópandi merki um skort á út- gefnum heimildaritum um þessa sögu og minnir um leið á að löngu er orðin þörf á að þjóðin hafi aðgengi að þessum afritunum á netinu. Eitthvað má finna um þetta efni í riti Gunnars Stefánssonar um Ríkisút- varpið og á netinu er hægt að lesa stórmerka doktorsrit- gerð Bjarka Sveinbjörns- sonar um tón- listarstarf í landinu á síðustu öld. Undarlegt er að þessi ritgerð skuli ekki komin á prent með eðlilegri og sjálfsagðri myndlýsingu. Hvar er RUV? En hvar er Ríkis- útvarpið á þessu af- mæli? Hvar er hryggjarstykkið í dagsláá afmælisárs- ins; Vikulegur þáttur sem gerir grein fyrir þróun hljóðritunar og flyt- ur okkur alla bút- ana, högtin og stökkin í þessari merkilegu sögu? Enn má ná f margar heimildir áður en þær skríða inn í gleymskuna. En á meðan getum við skoðað prýði- lega sýningu sem er áminning um ritunarhátt sem er alltaf að verða mikilvægari í sjálfs- vitund okkar. álkum til geisladiska au(»i (tob • HíitóUA"1*1 og 1 RflÚMÍtvaipinu J5. „pumbci - 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.