Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2004, Blaðsíða 31
UV Slðast en ekkl sfst MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 31 Jf* Einn flokkur, ein skoðun, einn íslenskt foringjalýöræði hefur nú náð nýjum hæðum. Halldór Ás- grímsson flytur í dag stefiiuræðu sína og allur Framsóknarflokkurinn mun marsera í takt við hina einu réttu skoðun. Liðsheildin er trygg, enda Kristinn H. Gunnarsson í fiystiklefanum og Jónína Bjartmarz í ískápnum með annan fótinn. Hali- dórsæskan gengur glöð til verka og hlýðir foringjanum með bros á vör. Heill Halldór! Eftir róstursamt sum- ar hefur röð og reglu verið komið á í Framsóknarflokknum. Halldór Ás- grímsson er ekki sfðri foringi en Davíð Oddsson. Sterapólitík Strákaklíkan sem nú virðist hafa tekið yfir Framsóknarflokkinn þrífst í sérstakri tegunda af stera-pólitík. Sannir stjómmálamenn taka djarfar ákvarðanir og láta mótmæli sem Strákaklíkan sem nú virðist hafa tekiö yfir Framsóknarflokkinn þrífstí sérstúkríteg- und af stera-pólitík. Sannir stjórnmála- menntaka djarfar ákvarðanir og láta mótmæli sem vind um eyruþjóta. Birgir Hermannsson fjallar um sterapólitlk Halldórs Ásgrlmssonar. Kiallari vind um eyru þjóta. Á máli frarn- sóknarmanna heitir þetta að þora að takast á við erfið mál. Uppfullir af testósteróni voru þeir stoltir af því að svíkja öryrkja og setja (nánast í skjóli nætur) lög um lífeyrisréttindi ráðherra. Þetta viðhorf til stjórn- mála hefur á síðustu árum gegnsýrt Framsóknarflokkinn. Boðvaldið ræður, formaðurinn stjómar. Fjölmiðlamálið var því ekki ein- hver tilviljun eða geggjun í Davíð Oddssyni. Framsóknarflokkurinn ber á því sömu ábyrgð og Sjálfstæð- isflokkurinn. Málið var keyrt áfram með sama hætti og önnur mál ríkis- stjómarinnar. í þetta sinn steytti það á skeri almeimra mótmæla, sem sterapóhtíkin ætlaði eins og áður að láta sem vind um eyru þjóta, uns forsetinn greip inn í málið. Fram- sóknarmenn virðast ekkert ætla að læra af þessum mistökum og því má búast við áframhaldandi valdapóli- tík af þeirra hálfu. Veikleiki Halldórs Á bak við stálgrímu valdsins kraumar þó óánægjan í Framsókn- arflokknum. Með því að nánast reka Kristinn H. Gunnarsson úr þing- flokknum og senda varúðarkort til Jónínu Bjartmarz, vildi Halldór sýna styrk sinn. Væntanlega hefur hann þó fremur sýnt veikleika sína, ein- sýni, óþolinmæði og þumbarahátt. Kristinn, sem oft á tíðum rekst illa í flokki, tók tíðindunum af hógværð og benti á að hans skoðanir í fjöl- miðlamálinu og varðandi Íraksstríð-' ið væru í betra samræmi við skoðan- ' ir almennra flokksmanna en skoð- anir formannsins. Skítt með það! Hvaða ógn stóð Halldóri af Kristni? Hún er vandfundinn. Eina skýringin á framgangi Halldórs er sú að Kristinn hafi í tveimur erfiðum málum tjáð skoðanir alls þorra framsóknarmanna, að ekki sé nú minnst á þjóðarinnar almennt. Sér- viskulegar skoðanir eiga rétt á sér á Alþingi og á stundum hefur Kristinn verið fulltrúi þeirra. Yfir slíkum skoðunum má andvarpa þeytulega, en þær á að umbera. Að þessu sinni var ekkert sérviskulegt við skoðanir Kristins, heldur var hér á ferðinni hið almenna viðhorf sem Halldór Ásgrímsson þumbaðist við að skilja. Þettá var glæpur Kristins og Jónfnu að einhverju leyti. Vöðvarnir sýndir! j Steravæðing Framsóknarflbkks- ins borðar ekki gott fyrir lýðræðið í landinu. Vöðvarnir eru sýndir og gagnrýnisröddum innan Framsókn- arflokksins sendur tónninn. Kvennahreyfing flokksins og aðrir sem líkar ekki strákaklíkan vífa nú hvað til síns friðar heitir. Sannur liðsandi ríkir nú í Framsóknar- flokknum, Dagnýarvæðing flokksins er nú fúllkoniin. Einn flokkur, ein sköðun, einn foringi! Hvað segir !■ mamma j „Ég er mjög ánægð með strák- inn og hef lesið allar bækurnar hans," segir Camilla Einarsdóttir, móðir Einars Kárasonar rithöf- undar. „En nú er ég farin að missa sjón svo ég hlusta á bæk- urnar í staöinn. Þetta fylgir aldr- inum. Er 79 ára gömul og ekki al- veg heil heilsu. Annars er ég mjög ánægð að Einar fékk menningar- verðlaunin hjá ykkur. Honum hefúr gengið vel alveg frá upp- hafi. Þegar hann var lítill ætíaöi hann strax að veröa rithöfundar. Var ákveðinn frá byrjun. Ég veit samt ekki hver er uppáhaldsbók- in mín eftir hann. Mér hafa fúnd- ist þær misjafnlega góðar. Sumar frábærar en aðrar eiga ekki eins við mig.“ Einar Kárason er með ástsælustu rithöfundum þjóðarinnar. Á fimmtifdaginn fékk Einar menn- ingarverðlaun DV i bókmennta- flokki fyrir bók sina Stormur sem kom út um jólin og fékk góðar við- tökur.Einar hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferli sínum. Með- alannars bókmenntaverðlaun Norðurlanda fyrlr Engla alheims- ins. i • Mikiðerrættí flugheiminum um fyrirhugaða samein- ingu flugfélaganna Atíanta og íslands- flugs á næstunni. Það kemur ekki svo á óvart þar sem Magnús Þorsteinsson er aðaleig- andi beggja félaga. Verði af samrun- anum má gera ráð fyrir breytingum á yfirstjóm og er talið að Ómar Benediktsson, nú- verandi forstjóri ís- landsflugs, muni stýra daglegum rekstri hins samein- aða félags. Hafþór Hafsteinsson, for- stjóri Atíanta, kvað ekki á förum heldur verður honum falið annað starf innan sam- steypunnar eftir því sem sögur herma... Lifi frelsi ungu kynslóðarinnar P.inn sem segist tólfára skrífar: Hæ lesendur Ég er 12 ára og loksins get ég lifað lífinu að vetri til. Ég þarf ekki að koma heim fyrr en ég vil. Ég þarf ekki að vakna fyrr en ég vil. Eg geri það sem ég vil á daginn; leik mér Lesendur með þeim sem ég vil - enginn sem böggar mig - ég er frjáls. Ef ég verð svangur þá fer ég og vinir mínir heim og borðum alla pakkana sem búið er að pakka inn merkta klukkan hvað á að borða hvað, en það skiptir okkur engu. Ef við verðum svo svangir seinna þá förum við bara heim til einhvers vin- ar og klárum klukkumatinn þar. Stundum bjóðum við stelpum með í átið. Alltaf er mér hrósað á kvöldin fýrir hvað ég sé duglegur að redda mér að borða. Ég passa mig á því að við borðum alltaf fyrst heima hjá mér, þar hittumst við á hádegi. Við erum ekki í neinu rugli. Við fílum þetta frí bara í botn. Þetta er ekki sumar-jóla-páska frí, þetta er óvænt sem fullorðna fólkið skilur ekki. f guðanna bænum leyfið kennur- unum að fá auka frí svo þeir hafi tíma til að skoða söfn (þá fara þeir saman og kynnast innbyrðis og verða kannski vinir) því þegar upp er staðið þá eru kennarar bara krakkar eins og við. Okkur finnst óþægilegt að skrifa undir með nafni ef það skyldi semjast og þetta dásemdarh'f riðlast. Kennarara geta verið hefnigjarnir. Hópur 12 ára. Lengi iifi frelsi ungu kynslóðar- innar. HOTEL KLAUSTUR 260 KM TIL REYKJAVÍKUR » t » IJ % s : ■■ ^ • ■ 1; 1 !>'•> b 'i, llHii j A P $ 1 '' ’fSjiBmimlll *■ jBrwét, i I STÓRKOSTLEG NÁTTÚRUFEGURÐ ÆVINTÝRALEGIR FEROAMÖGULEIKAR Hótel Klaustur er nýlegt og glæsilegt hótel með aðstöðu sem hentar fyrir hvers kyns mannfagnað, hvort sem það eru róðstefnur, vinnu- fundir, órshótíðir eða rómantískar helgarferðir. Vertu velkominn! Sími: 487 4900 www.icehotels.is Nordica • Loftleiðir • lcelandic Tourist Board www.icetourist.is Flughótel • Flúðir IH ICELANDAIRHOTELS | KLAUSTUR • Rangó • Klaustur • Hérað f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.