Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 10
Hljómsveitin hjálmar gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Hljóðlega af stað. Nafn plötunnar er þó ekki lýsandi fyrir undirtektirnar því sveitin er á allra vörum. Tónleikar hennar eru fjölsóttir og stuð- miklir, um síðustu helgi er t.d. talið að aðsóknarmet hafi verið slegið þegar hjálmar tróðu upp á Grand Rokki. Tónleikadagskrá hjálma er stíf þessa dagana en törninni lýk- ur um næstu helgi. Þá halda Steini og Petter tii Svíþjóðar. svarið eftir Þorstein Einarsson greið er leiðin, lindin tær ógnin er farin, vatniö þvær hvítþvegið hliöið, dagur nýr hér er kveðið, óttinn flýr í hyldýpið sting mér ólgandi hraunið, eilíföarhver Gagnrýnendur og aðrir tónlistar- spekídantar ausa lofi á hjálma. Bæði platan og tónieikar fá toppeinkunn hjá blaðamönnum dagblaða og tíma- rita. „Þetta byrjaði bara sem tilraun hjá okkur Sigga og Kidda,“ segir Kristinn Snær Agnarsson trommu- leikari. „Við vildum ná ákveðnu reggísándi. Kindin Einar var fyrsta lagið sem við bjuggum til. Steini sver það af sér,“ segir hann og lítur yfir til Þorsteins Einarssonar söngv- ara, sem er einn aðallagahöfundur hjálma. sögn Kristins, líf sitt á „hold“ á með- an plötunni er ýtt úr vör. Hann vinnur um þessar mundir í Geim- steini og vekur mikla athygli Kefl- víkinga. hygli fyrir kúreka-útgáfu sveitar- innar og Steins Ármanns Magnús- sonar á lagi Sigur Rósar, Flugufrels- aranum. Það kom fáum á óvart að hjálmar skyldu taka upp í Geimsteini. Kiddi er meðeigandi hljóðversins, auk þess sem Siggi er heimalningur þar og íhlaupaspilari. Þeir tveir stjóm- uðu upptökum á Hljóölega af staö. Afraksturinn er alvöru, íslensk reggíplata. Ekki einungis vegna reggí-takts- ins, tilfmningin er einnig ekta. kannski þú spyrjir, en svarið þaö er frá örófi alda, allt sem er er til handa mér og þér fjalliö að fjöru skríður eldur í jörðu þíður ef aö þvi kemur syndaflóð mannfólkið sefur, heyr þinn óð Ekki mannsnafn og skrifað með litlu h-i „Ég vil skrifa hjálmar með litlu h-i. Ég geri það alltaf,“ segir Siggi, Sigurður Halldór Guðmundsson hljómborðsleikari, sem mætir örlít- ið seinna en hinir í viðtalið. „Hið akademíska kortér. Það er venjan hjá Sigga,“ segir Steini rólega. Nafn sveitarinnar vekur jafhan misskilning. Margir telja vera um mannsnafnið Hjálmar að ræða en svo er ekki. „Okkur finnst þetta skemmtilegur ruglingur," segir Kiddi. Annar ruglingur sem bólað hefur á er að hjálmar séu einskorðaðir viö reggi, þar sem platan fylgir þeirri stefnu. „Viö erum á móti svona „labelum". Þau geta farið illa með hljómsveitir," segir Kiddi. „Það var hálfgert slys að platan varð reggí í gegn,“ segir Siggi. „Næsta plata gæti orðið allt öðruvísi. Þessi var mjög jákvæð. Næsta gæti orðið mjög ... nákvæm?" ir eða algjörlega ömurlegir." „Þið eruð ágætir, strákar. Hafið ekki áhyggjur af þessu," segir Steini. kannski þú spyrjir, en svarið það er .. innra með þér Petter grúvar hina í kaf Tónleikadagskrá hjálma er stíf þessa dagana en törninni lýkur um næstu helgi. Þá halda Steini og Pett- er til Svíþjóðar. „Pásan verður von- andi okki of löng, ehem,“ segir Siggi og lítur yfir til Steina. „Kannski splæsum við flugmiða á þá. Eða fáum sponsor til þess,“ segir Siggi en tekur orð sín fljótt til baka. Tek- ur skýrt fram að hjálmar vilji ekki vera kostaðir af einum eða neinum, hvorki á plakötum né í háloftum. Steini ætlar að snúa sér að frekari upptökum í Svíþjóð. Meðal annars á sólóplötu sem hann er búinn að ganga lengi með í maganum. „Ég beið með bestu lögin fyrir sjálfan mig. Er egóisti í tónlist og viður- kenni það fúslega." Hinir virðast sammála þessu. Segja Steina verða alvarlegan þegar hann klárar sólóin sín. Þá sé sviðs- ljósið ekki lengur hans. Petter tekur völdin. „Allt bandið fólnar í samanburði við Petter. Þvílík sviðsframkoma." bréflð eftlr Elnar Georg Einarsson vandræöa- skáld, fööur Þorsteins söngvara ég skrifa bréf þótt skaki vindar hreysi og skrifta fyrir þér ég tíunda mitt eigið auðnuleysi og allt sem miöur fer Rúni Júl vel slakur Rúnar Júliusson er búinn að fylgj- ast með hjálmum frá fæðingu. Hann var jafnan staddur í Geimsteini um leið og þeir að spila skák í tölvunni sinni. „Svo skaut hann stundum inn hausnum á æfmgum og sagði: „Þetta er vel slakt, strákar." Þetta hljómar kannski ekki vel úr allra munni en frá Rúna var það frábært," segir Siggi. Talið berst nú að upptökum fyrir Sjónvarpið á næstu dögum. Siggi nennir ekki aö taka Hammondinn með fyrir upptökur á Ópi. „Við tök- um þetta með gítörum." Hljómborð- ið fær hins vegar að fljóta með þeg- ar þeir mæta í Gísla Martein, sem verður sendur út á morgun. því hafin yfir hversdagsieikann gráa ert þú hjartans vina mín ég Ijósiö slekk og langt I fjarskann bláa leitar hugurinn til þín svo ber ég eld að bréfkominu mínu þá batnar vistin hér því fölur loginn fyllist brosi þínu sem að fýrirgefur mér og þannig brúar þessi litla skíma þagnarinnar hyl þú huldumey sem handan rúms og tíma heföir getaö verið til Fálkarnir og Geimsteinn hjálmar eru gamlir og góðir vinir. Kristinn og Steini eru að austan, kynntust í Hallormsstaðaskóla. Þeir stofiiuðu fyrsta bandið sitt saman, Gulu gardínumar, og voru, eins og áöur kom fram, saman í tónlistar- námi í Svíþjóð. Kiddi gítarleikari, Guðmundur Kristinn Jónsson, og Siggi eru hins- vegar báðir frá Keflavík. Þeir eru báðir meðlimir í Fálkum frá Kefla- vík. Fálkarnir gáfu út plötuna Ástar- kveöja frá Keflavík og stuttskífu samnefnda sér, sem vakti mesta at- mött er hin meyrasta eftir Sigurö Halidór Guömundsson Brjáluð mött er hin meyrasta taug meöulin óhæf til bótar í myrkrinu dufla við draug dragandi fjötur án fótar grá veður, grugguga laug gisti ég foröum og skemmti skrattanum, skellti og flaug slóttugur frá því sem henti tónleikastemning Kröftugar undirtektir fylgdu hjálmum frá fyrstu tónleikum. Þó- nokkur aðdáendahópur myndaðist fljótt. Kjaminn mætir á alla tónleika og syngur hástöfum með. Strákamir undrast það hversu fljótt áhorfendur hafa lært lögin. „Þetta er furðulegt. Það er ekki nema mánuður síðan platan kom út,“ segir Siggi og bætir við að þeir þakki hljómsveitinni Lokbrá hluta stemningarinnar. Hún sjái um „krád kontról" á tónleikum. „Heyrið! Gaurinn sem er byrjaður að mæta alltaf, þessi með dredd- ana,“ skýtur Steini inn i. „Hann vill endilega hjálpa okkur og tók að sér að dreifa plakötum." Ekki eru hins vegar allir hrifnir af hjálmum. Strákamir fá sinn skerf af neikvæðum kommentum. Mörg- um finnst þeir ömurleg hljómsveit. Kristni er óánægður æskuvinur minnisstæður: „Hann sagði okkur vonlausa. Sá reyndar eftir því þegar hann fræddist um meðlimina." „Það er gott,“ segir Siggi. „Að fólki finnist við annað hvort frábær- Remix-plata í bígerð hjálmarnir stressa sig ekki mik- ið á framhaldinu. Líklegast hittast þeir næsta vor og setja sig í stell- ingar fyrir upptökur á annarri plötu. Áður en það gerist er á teikniborðinu plata með endur- hljóðblöndunum af Hljóölega af staö. Ampop og Delphi vilja vera með á henni. Gus Gus langar einnig að gera housemix af Varúö. „Varúö væri annars fint lag í aug- lýsingu fyrir Umferðarstofu: „Var- úð! Það er svo hált - og vesenið út um allt.“ Það væri flott. Að hvetja fólk til að fara varlegar: hjálmar eru nauðsyn," segir Siggi að lokum og hlær. Fyrir þá sem vilja kynnast hljóm- sveitinni enn betur má benda á tón- leika hennar á Kapital í kvöld, í Stúdentakjallaranum á morgun og á Airwaves næstu helgi. Þá fæst gæða- platan Hljóðlega af stað í flestum plötuverslunum. en óð fluga vappar um velsæmið mitt og vendir sér síðan að drottni hendir sér flöt upp í hásætið sitt heygður, hún segir hann rotni hjálmar í fimmta gír „Svo leið rúmt ár. Við vorum sátt- ir, ætluðum ekkert endilega að gera meira. Þá byrjuðum við að vinna með Steina og Bréfiö og Varúö, sem er okkar útgáfa á Caution eftir Bob Marley, urðu tfi,“ segir Kristinn. Með innkomu Steina varð at- burðarásin hröð. Lögin fóru í spilun á Rás 2. Freyr Eyjólfsson útvarps- maður hreifst af þeim og bókaöi tón- leika á Grand Rokki. „Það var spark í rassinn,“ segir Steini. „Þá vildum við fara í Geimstein og klára plöt- una.“ Hann og Kristinn ákváöu að fá bassaleikarann Petter Winnberg, félaga þeirra úr tónlistarnámi i Sví- þjóð, með í sveitina, sem var loks orðin fullmönnuð. Petter býr í Svíþjóð en setti, að menn eru meinsemdar grey markleysur hafa við Ijótar truflaðir, trúa því ei að tímann og sálimar mótar tarfur sem telur sig mann en maöurinn telur sig drottinn brennlr og brýtur sinn rann brosir svo efstur og montinn en ástin mun rísa og fljðta hér fram og fylla loks hjartaö kalda þó fenni í sporin, hún lifir áfram um eilífö og aldir alda Hljóölega afstað fær toppdóma, jafnt hjá óbreyttum hlustendum sem gagnrýnendum. hljómar Guöm. Kristlnn Jónsson gítar- leikari. Hljóömaður á RÚV og einn meðeigenda Geimsteins. Kristinn Snær Agnarsson trornmu- leikari. hjálmar byrjabi sam til- raun hans, Sigga og Kidda. Siguröur Haildór Guömundsson hljómborösleíkari. Syngur einnig tvö lög á plötunni. Þorsteinn Einarsson söngvarf. Semur flest lög og texta á plötunni. Hljómsveitin hjálmar er ekki gömul í hett- unni. Hún var fyrst fullskipuö viö upptökur k í Geimsteini í sumar. í kvöld spilar hún á \ Kapital, á morgun í Stúdentakjallaran- \ um og um næstu helgi á Airwaves. Tö" f Ó k U S 15. október 2004 TT 15. október 2004 f ókus > r*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.