Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 17
15. október 2004 lífiö ef tir v i n n u Pijsaslöngur i astalei1< Hugrakki hönk- inn og ijóskan hræöast ekki svo glatt. vakti spennu- myndin Anaconda _______________ nokkra lukku. Nú er framhaldiö mætt í bíó, Anacondas: The Hunt for the Blood Orchid. Myndin skartar ekki sömu leikurum og fyrirrenn- arinn, Jon Voight og Ice Cube eru fjarri góðu gamni. í byrjun myndar uppgötvar risalyfjafyrirtæki eiginleika blóms sem kallast blóðorkídean. Úr því er hægt að vinna lyf sem lengir líf fólks. Því er nokkrum vísinda- og ævintýramönnum safnað sam- an og þeir sendir til Borneó að fínna fleiri blóðorkídeur. I hópn- um eru nokkrar týpur: staðfasta konan, skelkaði tæknigaurinn, ljóskan, hugrakki hönkinn og RÍSiiMongurnw vormlíi lifsblomin WLLi " UÍ fi svikuli herramaðurinn. Á Borneó þarf hópurinn að vinna á ýmsu, eitruðum kóngu- lóm, krókódílum, vatnsfollum og auðvitað risaslöngum. Þvf þær búa í grennd við blóðorkídeurn- ar, borða þær og stækka fyrir vikið. Ekki bætir úr skák að hóp- urinn rambar inn á svæðið á þeim tíma árs þegar risaslöng- urnar stunda hópkynlíf til að við- halda stofninum. Vandamál mannanna verður því að komast burt, burt, burt. í aðalhlutverkum eru frekar óþekktir leikarar, Johnny Messner, KaDee Strickland og Matthew Marsden. Leikstjórinn einbeitir sér að sjónvarpsþáttum en gerði Murder at 1600 með Wesley Snipes fyrir nokkrum árum. Myndin er sýnd í Smárabíói. Telkmmyndir virðast alltaf verða vinsælli ocj vinsælli hjá bíóhúsagesturn. IJm helgma veröur ein slík frumsýnd, kvikmyndin Shafk 1 ale eða Hákarlasaga. Fjölmargai nlóistjöin ur Ijá persónum taddii oiuai og má sem dæmi nefna Will Smith, Renóe Zellwegnr. Ro bert De Niro. Jack Black, Angelina Jolie og Martin Scorsese. r ** <■ ** Tölvuteiknimyndin Shark Tale verður frumsýnd í kvöld í Sam- bíóunum. Myndin segir frá hinum málglaða Óskari sem er laginn við að koma sér í vandræði. Hann er stórskuldugur fiskur af smærri gerðinni sem vinnur á hvala- þvottastöð og þráir ekkert heitara en veröa ríkur og frægur. Allt er gott sem endar vel íbúar rifsins sem Óskar og félag- ar búa á lifa við stöðugan ótta við hákarla sem éta allt sem að kjafti kemur. Þegar hvít lygi verður þess síðan valdandi að Óskar verður að hetju sem heldur hákörlunum frá rifinu verður hann umsvifalaust ríkur og frægur. Yflrmaður hans sem var u.þ.b. að reka hann verð- ur allt í einu umboðsmaður hans og ríku og frægu gellurnar elta hann á röndum. En frægðin er hverful og því fær Óskar að kynn- ast. Hákarlarnir eru ekki alveg sátt- ir við þessa nýju hetju sem telur sig geta lamið hákarla eins og að drekka vatn auk þess sem gömlu vinir Óskars hætta að nenna að eiga samskipti við hann líkt og vill gerast þegar menn verða skyndi- lega frægir. Óskar þarf þess vegna að endurheimta vinina og forðast hákarlana en það hjálpar lítið til þegar allir komast að þvi að hann er ekki sannur hákarlabani heldur bara loddari. Hann tekur þess vegna höndum saman við saklaus- an en háttsettan hákarl sem er í sjálfskipaðri útlegð frá hinum hákörlunum og saman reyna þeir að bjarga málinu fyrir horn. Endalausar stórstjörnur Það er eins og teiknimyndir nútímans nái að laða að sér mun fleiri stjörnur en leiknar myndir og er Shark Tale engin undantekn- ing þar á. Will Smith fer með hlut- verk Óskars, Renée Zellweger leik- ur vinkonu hans úr hvalaþvottin- um, Robert De Niro leikur hákarl- inn Don Lino og Jack Black son hans, Lenny. Aðrir sem ljá persón- um raddir sínar í myndinni eru Angelina Jolie, Martin Scorsese, Ziggy Marley, Doug E. Doug, Michael Imperioli og Vincent Past- ore úr The Sopranos, Peter Falk og Katie Couric svo einhverjir séu nefndir. Þá koma Christina Aguil- era og Missy Elliott lítillega við sögu í lokin. Myndin er sérlega glæsileg í alla staði og sver sig nokkuð í ætt við Leitina að Nemó án þess þó að vera eftirlíking. Þetta er fyndin og skemmtileg mynd sem öll fjöl- skyldan getur hcift gaman af. Bæði er hægt að sjá myndina með íslensku og ensku tali en hún verður frumsýnd í Sambíóunum í kvöld. Kapítalistar fá á baukinn Jámennirnir halda fyrirlestra og blekkja forstjórana, þrátt fyrir að hvetja jafnvel til heilaþvottar á börnum. The Corporation, Yes Men, Bush Brain og Outfoxed. Þessar heimild- armyndir, sem rýna allar í spill- ingu, græðgi og aðra lesti margra Bandaríkjamanna, verða sýndar á Litlu kvikmyndahátíðinni í Há- skólabíói á næstu dögum. Allar hafa myndimar hlotið lof áhorfenda og gagnrýnenda. The Corporation skilur flesta eftir í sjokki þegar flett er ofan af starfs- háttum og miskunnarleysi stórfyr- irtækja. Hún er því íslendingum ekki óviðkomandi á tímum niður- skurðar, hagræðingar og samruna viðskiptalífsins. Yes Men er nýjust myndanna, var fnunsýnd fyrir tæpum mánuði í Bandaríkjunum. Tveir menn villa á sér heimildir, þykjast vera á veg- um Alþjóðaviðskiptastofhunarinn- ar. Þeim er boðið á fjölda fyrir- lestra, þar sem forstjóramir lepja vitleysuna úr þeim án grunsemda. Bush Brain er svipmynd af Karl Rove, spunameistaranum á bakvið velgengi núverandi forseta Banda- ríkjanna. Outfoxed kemur ekki síður við kvikuna en The Corporation. Hún varpar fram spurningum um eignarhald fjölmiöla. Gangverki fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch er lýst og það sett í sögulegt sam- hengi. Litla kvikmyndahátíðin er á veg- um Græna ljóssins - kvikmynda- dreifingar, sem segir tilefni hennar vera forsetakosningar í Bandaríkj- unum. □dýrastur í dag 149 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.