Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Blaðsíða 8
r ÞV SV VL Flytjandi Lag 1 1 9 SEETHER Broken 2 13 3 Joss Stone You had me 3 2 7 THE STREETS Dry your eyes 4 12 3 Destiny's Child Lose my breath 5 10 3 Britney Spears My Prerogative 6 3 8 Ashlee Simpson Peaces of me 7 8 5 Natasha Bedingfleld These Words 8 5 4 Danzel Pump it up 9 14 3 PIRATES You should really know 10 4 7 Nitty Nasty girl 11 20 3 Eric Pridz Call on me 12 NÝTT NÝTT Eminem Just loose it 13 7 9 O-zone Dragostea din tei 14 27 2 TWISTA Sunshine 15 30 2 Benassi Brothers Turn me up 16 6 4 Scooter Shake that 17 11 10 Nina Sky Move your body 18 18 4 Juvenline Slow motion 19 9 9 Mousse T Is it cause im cool 20 21 4 Brian McFadden Real to me 21 16 6 Keily Clarkson Breakaway 22 17 6 The 411 Dumb 23 15 10 Keane Everybody is changing 24 29 2 J-Kwon You and Me 25 19 5 Christina Mllian Whatever you want 26 NYTT NÝTT Quarashi Stars 27 NÝTT NÝTT Kalli Bjarni Vafinn 28 24 7 Igore Sumarsykur 29 NÝTT NÝTT Macy Gray Love is gonna get you 30 23 7 Shapeshifters Lola’s theme Seether feat. Amy Lee - Broken Seether var uppgvötuð af plötufyrirtæk- inu Wind up records og hófu þeir strax tónleikaferöalag þar sem þeir feröuðust mikiö og spiluöu víöa. Á þessum tíma var samband Shaun Morgan söngvara og Amy Lee, söngsírenu Evanescence, aö fara af staö og má segja aö þessar tvær hljómsveitir hafi hjálpaö hvor annarri aö ná þangaö sem þær standa i dag. „Broken" meö Seether og Amy Lee er einmitt afsprengi þessarar ástar. Twista - Sunshine Twista stimplaöi sig inn í bransann meö laginu „Po Pimp“ - singull sem seldist í platínu-upp- lagi. í kjölfar þess skrifaöi Twista upp á samn- ing viö Bigbeat/Atlantic og gaf út plötuna „Adrenaline Rush“ 1997 og ári selnna „Mobsta- bility". Á þriöju plötu sinnl, eftir aö hafa falliö í grýttan jaröveg frægöarinnar og nánast gleymst reis hann upp og söng meö artistum á borö viö Ludacris, Jay-Z og Bone Thugs N Harmony. Twista er í sæti númer 14 á íslenska listanum, meö lagið Sunshine. The Streets - Dry your eyes í lok ársins 2000 skaust The Streets upp á stjörnuhimininn þegar aöalsprautan, Mike, fékk Craig David og fleiri til aö syngja lagiö „Has it come to this?“ sem kom út á plötunni „Original Pirate Material". Þaö lag spýttist belnt upp á Topp 20 listann í Bretlandi. Enn þann dag í dag gerir hann það gott í tónlist- inni, enda hefur lagiö hans „Dry your eyes“ vakiö mlkla athygli í Evrópu. Pirates - You should really know Gamalt lag frá Enyu, í nýjum búningi. Meö þessu lagi eru krakkarnlr í hljómsveitinni Pirates ásamt hlnni bráðhuggulegu Shola Ama, aö svara laginu „I dont wanna know“ sem Mario Winans geröi þrusuvinsælt fyrr á þessu ári. Lagiö, er eins og flestir vlta, ekki nýtt af nálinni, en þessi útgáfa inniheldur nákvæm- lega sömu laglínu og upprunalega lagiö, og fara Shola Ama, Nalla Boss og Enya afskaplega vel meö lagið i þessum nýja búnlngi. Danir hafa ekki látið mjög mikið að sér kveða á tónlistarsviðinu und- anfarin ár. Það er þó að breytast þökk sé plötuútgáfunni Crunchy Frog, sem gefur út bæði The Raveonettes og Junior Senior. Tvær nýjustu sveitir útgáfunnar, Powersolo og Epo-555, halda tónleika á Grand Rokki annað kvöld. Trausti Júlíusson tékkaði á Crunchy. á landi eru hluti af Norður-Atlants- hafstónleikaferð þeirra. Sveitin kemur hingað beint frá CMJ-tón- listarhátíðinni í New York. Ólíkar sveitir Powersolo er tríó frá Aarhus, skipað bræðrunum og gítarleikur- unum Kim Kix og Atomic Child, og trommuleikaranum JC Benz. Kim, sem stofnaði Powersolo upphaflega sem eins-manns verkefni árið 1998, er líka aðalsöngvari sveitarinnar. Tónlistina sem þeir leika kalla þeir „Donkey punk“ (asna-pönk), en þetta er hrá og fersk rokkabiUý-keyrsla og þó að þeir séu bara þrír og trommusettið hans Jens Chief Benz sé ekki nema einn snerill, bassatromma og páka, þá er samt mikill kraftur í þeim. Fyrsta plata Powersolo fyrir Crunchy Frog-útgáfuna kom út í Hvað geturðu nefnt marga danska tónlistarmenn? Jú, Kim gamli Larsen hefur ailtaf átt sér einhverja aðdáendur hérlendis, europoppdúó dauðans, Aqua, átti einn ódauðlegan smell fyrir nokkrum árum, og dönsku nýbú- arnir í Outlandish hafa gert það gott að undanfomu með r&b-smell- um eins og Aisha, þó að það viti kannski ekki endilega allir að þeir séu danskir. Og svo má ekki gleyma offitusj úkl ingn um og dóna- rapparanum L.Ron Harald. Frekar magur listi, ekki satt? Crunchy Frog- liðið Undanfarið hafa danskar hljómsveit- ir samt verið að vekja á sér athygli í auknum mæli beggja vegna Atlantshafsins. Hið stílíseraða töffara- rokkpar The Raveo- nettes hefur vakið athygli fyrir tónlist sem sver sig í ætt við The Jesus & Mary Chain og Singapore Sling og gleðipinn- arnir í Junior Senior slógu rækilega í gegn með meist- araverkinu D-D-Don’t Stop The Beat sem blandar rokki, danstónlist og hip-hopi saman í pottþétta partí- súpu. Þessar ólíku sveitir eiga eitt sameiginlegt. Plötuútgáfuna Crunchy Frog. Á morgun spila tvær nýjustu stjömur hennar á Grand Rokki. Þetta eru Powersolo og Epo-555, en tónleikar þeirra hér mars á þessu ári. Hún heitir It’s Raceday ... And Your Pussy Is GUT og er í einu orði sagt frábær. Powersolo hefur þegar vakið nokkra athygli utan Danmerkur. Sveitin hefur spilað mikið á megin- landi Evrópu og í Skandinavíu og vakti töluverða athygli á South by Southwest-festivalinu í Texas i fyrra. Epo-555 er af allt öðru sauðahúsi. Þetta er nýbylgjusveit sem blandar saman jaðar-poppi, raftónlist, alt-kántrý og rokki. Hljómsveit- in var stofhuð í Kaupmannahöfn árið 2002 af trommu- leikaranum Ebbe Frej og gítarleikar- anum og söngvaran- um Mikkel Max Hansen. Ólíkt Powersolo nota þeir alls konar nýtísku- legar græjur í sinni tónlistarsköpun. Fljótlega bættust bassaleikarinn Jakob Nielsen og söngkonan Camilla Florenz í hópinn. Þau vöktu strax athygli þegar þau fóru að spila opin- berlega og gátu valið á milli plötu- fyrirtækja. Þau völdu Crunchy Frog sem gaf út fyrstu plötuna þeirra Dexter Fox í september síðastliðnum. Sem sagt spennandi tónleikar framundan og þeir sem ætluðu að taka því rólega fyrir Airwaves um næstu helgi ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir ákveða að sleppa þessu... Greatest Hits með Robbie Williams kemur út eftir helgina frá Robbie Þaö átti enginn von á aö það yrði mikiö úr Robbie Williams þegar hann sagöi skillö vlö strákabandiö Take That áriö 1995. Hinir meölim- Irnlr í bandinu geröu lítiö úr honum og ekki fékk hann mikla viröingu frá óörum tónlistarmónnum. Noel Gallagher kallaði hann t.d. „feita dansarann úr Take That'' og almennt séö var ekkl gert ráö fyrir aö mikiö yröi úr honum. En annaö kom í Ijós. Take That hætti tæpu ári eftir aö Robbie sagöi skiliö viö sveitina og eng- inn nema Robbie hefur eignast framhaldslíf. Hans vegur hefur leglö upp á viö alveg frá því aö fyrsta smáskífan hans, Freedom, kom út. í dag er hann langstærsta stjama EMI-útgáfunnar í Bretlandi. Hann á hann aö baki 17 smáskífur sem hafa fariö inn á Topp 10 þar i landí. Þær eru allar á safnplótunni Greatest Hits sem kemur út á mánudaginn og tvö ný lög aö auki. Þarna eru aö sjálfsögöu Angels, Let Me Entertain You, Millennium, No Regrets, Strong, She’s The One, Kids, Feel og Come Undone svo nokkrir smellir séu nefndir. Robbie hefur mikiö veriö á milli tannanna á fólki í Bretlandi altt frá því aö hann var í Take That og slúðurblöðin hafa ósjaldan velt sér upp úr einkalífi hans. Fyrir nokkrum vikum kom út sjálfsævisagan hans, Feel, sem þykir óvenjuopin- ská. Hún hefur vakiö mikla athygli í Bretlandi og hefur, eins og allt sem Robbie kemur nálægt, náö metsölu. f Ó k U S 15. október 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.