Sjómannablaðið Nútíðin - 01.12.1934, Síða 6

Sjómannablaðið Nútíðin - 01.12.1934, Síða 6
6 N Ú T í Ð T N f f f Almennar samkomur J á hverjum sunnudegi j kl. 8,30 e. h, — | Sunnudagaskóli kl. J 10 fyrir hádegi. — J | Júlasamkomur f {auglystar síðar. { \ I Jólin. Ekkert af viðburðum ársins hrífur kristna menn eins og jólahátíðin. Pað er eins og öll tilveran sé þá þrungin af friði gleði og ástúð. „Yfir hauður og höf breiðir helginnar tjöld með sinn dýrlega draum petta dulræna kvöld“. Og hvers vegna eru hugir manna svo gagnteknir af göfugum hugsun- um um jólin? Pað vita ailir. Koma Jesú Krists í heiminn var svo mikill og gleði- ríkur viðburður, að hann gieymist aldrei. Allir kristnir menn standa í svo óendanlega mikilli þakklætis- skuld við Jesú fyrir hin dýrmætu áhrif hans á mannlífið. Jólin eru eins og þyrnirunnurinn sem logaði en brann ekki. Hve mörg jól sem við lifum dvínar aldrei yiur þeirra og birta, Jólin eru hátíð fríðarins■ Jesús Kristur Iagði afar mikla áherzlu á friðinn. Og ekkert hefir þjáð mannfélagið eins og ófriður- inn. Ógrynni fjár er árlega eytt til herkostnaðar. Þjóðirnar stynja undir hernaðarútgjöldunum. Engin lýsing, hvorki munnlega eða á prenti getur útmálað allar þær voðalegu hörm- ungar, sem blóðug stríð valda. Kristur heilsaði oft lærisveinum sínum með þessum orðum: »Frið- ur sé með yður«. Undir þessi orð eigum við æfinlega að taka og breyta eftir því. Mennirnir eiga í allt of miklum deilum. Menn reið- ast af litlu og fyrirgefa sumir seint eða aldrei. Pað er ljótt. Á hverjum jólum hljómar friðar- boðskapur Jesú Krists til okkar með nýjum krafti. Og sál okkar verður friðsamari en aðra tíma. Við elskum jólin öllu heitar, sem alitaf boða frið á jörð, vor andi gðus þá eiukum leitar með innilegri þakkargjörð. í kofa og höllum heyrum vér, hve himnesk jólagleðin er. Jólin er hátíð gleðinnar. Þá er ýmislegt gert til þess að gleðja menn. Þeir fá betri mat en vanalega, eitthvað nýít til að klæð- ast í, eða hafa sér til skemmtunar. Þeir heimsækja vini og vandamenn, ef hægt er, og skemmta sér á ýms- an hátt. Eg man hve glaður eg var á jólum, er eg var barn. Hve hrifinn eg var af því að koma í kirkju og sjá þar prúðbúið fólk, með frið- samlegan og glaðlegan svip. Það er sagt að mikili máttur sé fólginn í hugsunum vorum. Helgi Péturss heldur því fram, að sam- stilltir hugir margra þúsunda gætu e. t. v. stöðvað eldgos og hafís, Ýmsir brosa kannske að því. En líklegt er, að hinar göfugu hugsanir sem streyma út frá mörg hundruð miljónum manna á jólunum geri tilveruna þó unaðslegri. Jólin er hátíð Ijósanna. Á jólunum er kveiktur fjöldi Ijósa. Menn vilja lýsa upp öll skot og afkirr.a. Menn láta ljós lifa nótt- ina helgu. Ljósin hafa göfgandi áhrif. Við erum glaðari þegar bjart er í kring um okkur. Umhverfið hefir afar mikil áhrif á okkur. Oleði okkar og hamingja er svo mskið bundin vsð birtu og yl. Hið illa þrífst ekki vel í birtu, Flestir glæpir stórborganna eru framdir í skuggahverfum þeirra. Vsö íslendingar erum farnir að nota birtuna meír en áður. Eða eyða meiru fé iii þess að hafa góða birtu. Við sjáum að það er nauösynlegt. Híð andlega líf okkar verður feg- urra í björtu umhverfi. En mismun- urinn á jóiunum nú og fyrátímum er töluverður. Þá var lífið hvers- dagslega svo fátæklegt hjá ílestum, að jólin báru svo miklu meira af en nú. Jólin eru hátíð kærleikans. „Hvorki gripir né gull skapa gleðileg jól. pað er ástúðin ein sem er eilífðarsól". Margir verða hjálpsamari á jól- unum en aðra tíma. Pað er sagt um eldspýtnakónginn Kretiger, að hann gæfi aldrei beiningamönnum- En á einum jólum kom maður og baðst beininga. Hann æilaði að vísa honum á burí án þess að víkja honum neinu. En þegar þjón- ustustúlkan benti honum á að það væru jól, gaf hann fátæka mannin- um 10 krónur. Þannig verka jólin á flesta til hins betra. Aðalkjárninn í kenningu Krists var kærleikurinn. Að elska Guð og náungann var aðalboðorð hans. Allt líf hans var lofsöngur til kær- leikans og sannleikans. Óg jólin minna oss bezt á Jesú og kenn- ingar hans. Menn bjóða hver öðrurn gleðileg jól. Það er fallegur siður. En mikið hefir það að segja, að það sé sagt af heiium hug. Innantóm ý : .. * ii -r, .jú' y'y, ■ v /•' :,í'í i' < i’v.' I Hattabúð Akureyrar fæst margt hentugt og faliegt til jólagjafa. Sigrlður Kristjánsdóttlr. 'jomannasongur fkýding úr ^fNorsku eftir <Ziafd, Z). Snœvarr. Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu Frelsarinn góður gaf — ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrlegum, ljósum löndum par lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr, og bræðra samfygld þá hlj?t ég; og kjölfars hinna, er fóru fyr, án fyrirhafnar þá nýt ég. í sólarljósi er særinn fríður; og sérhver dagurinn óðar líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má í ofsarokinu berjast, Úá skellur niðadimm nóttin á, svo naumast hægt er að verjast. Ég greini’ ei vita né landið lengur, en ljúfur Jesús á öldum gengur um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi’, er Jesús má vei'ja. Hans vald er sama sem var það áður; því valdi’ er særinn og stormur háður. Hann býður: Verði blíðalogn! Pá hinsti garðurinn úti er ég eygi land fyrir stöfnum, og eftir sólfáðum sæ mig ber að sælum, blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja og hersing Ijósengla Drottins syngja: Velkominn hingað heim til vor! Lát akker falla — ég er í höfn! ég er hjá Frelsara mínum. Far vel, þú æðandi, dimma dröfn! vor Drottinn bregsl ekki sínum, Á meðan akker í ægi falla ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. orð eru lítilsvirði. Allt hjaðnar sem blekking sé hjartað ei með sem undir s!ær. Sá sem óskar öðrum heilla af hjarta breytir vel við náunga sinn. Hann veldur ekki úlf- úð og sundurlyndi, kemur ekki illu af stað, öfundar ekki aðra, níðist ekki á öðrum. Jólin hafa alltaf góð áhrif á kristna menn- Þau eru eins og útsjónarhæð tii ónumins skínandi Iands. Því mennirnír hafa ekki ennþá fest var- anlega byggð í ríki friðar, gleði og kærleika. Jóhann Scheving. ' Sími 333. Ekkert jólabord 1 má vera án rjóma- tertu og deserz frá T ryggva-bakaríi. lllf er bezt að kaupa hjá B. /. Ólafssyni, málara- Sími 333. Beztu kaupin á brauðum og kök- um til jólanna er í Tryggva-bakaríi. Ath ; Aílt sent heim.

x

Sjómannablaðið Nútíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Nútíðin
https://timarit.is/publication/868

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.