Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 14
74 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Hómer í forsetastól Bretar telja að Hómer Simpson yrði besti forseti Bandarfkjanna ef velja þyrfti úr sjónvarpsstjörnum. í út- varpskönnunum sem Radio Times stóð fyrir þar í landi og tvö þúsund hlust- endur tóku þátt í var spurt hvaða sjón- varpsstjarna yrði besti forsetinn. Hómer varð í fyrsta sæti, Josiah Bartlet sem Martin Sheen leikur í The West Wing-þáttunum lenti í öðru sæti og dr. Fras- ier Crane náði þriðja sæt- inu. Athygli vekur að á topp tíu listanum varð Tony Soprano í níunda sæti. Elvis græðir á tá og fingri Elvis Presley græðir enn á tá og fingri, 27 ámm eftir að hann lést. Elvis er á toppinum yfir tekj- uhæsta fræga, látna fólkið með árlegar tekjursemnema22 milljónum punda eða 2,5 milljörðum króna. Aðdáendur Elvis halda áfram að kaupa ýmislegt tengt nafni Eivis, einkum á búgarði hans, Graceland. Það var tímarit- ið Forbes sem tók saman lista yfir tekjur hinna látnu og í öðm sæti varð Charles Schultz sem skóp Smáfólk- ið eða Peanuts-teikni- myndaseríuna. Tekjur Elvis renna til dóttur hans, Lisu Marie. Bill Clinton blandar sér í forsetaslaginn í Bandaríkjunum. Er enn í hópi þungavigt- armanna í bandarískum stjórnmálum og talinn geta skipt sköpum í baráttunni um Hvita húsið. Þrátt fyrir að Clinton sé enn veikur og þreytulegur eftir hjartaaðgerð náði hann að heilla fólk upp úr skónum á kosningafundi. Eins manns riddaralið kemur til hjálpar Kerry Bill Clinton er byrjaður að blanda sér í forsetaslaginn í Banda- ríkjunum til hjálpar John Kerry. Það eru aðeins sjö vikur síðan hann gekkst undir viðamikla hjartaaðgerð og þrátt fyrir að hann sé enn veikur og þreytulegur eru gömlu töfrarnir enn til staðar. Clinton átti ekki í neinum vand- ræðum með að heilla fólk upp úr skónum á kosningafundi með Kerry í Philadelphiu í upphafi vikunnar. Clinton er enn þungavigtarmaður í bandarískum stjórnmálum og er jafnvel talið að hann geti skipt sköp- um fyrir Kerry í baráttunni. í grein á vefsíðu BBC sem Adam Brooks fréttaritari þeirra í Wash- ington skrifar undir heitinu „Clinton- áhrifin" kemur fram að þótt Clinton hafi ekki látið mikið á sér bera und- anfarin fjögur ár, utan að skrifa í meðallagi góðar æviminningar, gátu þeir sem mættu á kosningafundinn enn séð leiftur af hinum gamla Clint- on sem talinn var einn af hæfustu og áhrifamestu baráttumönnum í kosn- ingum í Bandaríkjunum. „Ef þetta er ekki gott fyrir hjarta mitt þá veit ég ekki hvað er það,“ sagði Clinton í stuttu ávarpi. Þykir heillandi innanlands sem utan Það getur verið að Clinton sé fyrr- verandi forseti sem einkum er minnst fyrir kvennafar á skrifstofu sinni meðan hann var í embætti en hann getur enn heillað fólk bæði inn- anlands og utan og Demókrataflokk- urinn tekur honum fagnandi í barátt- unni nú. Markmið flokksins er eink- um að Clinton minni fólk á þá góðu tíma sem ríktu er hann var við stjórn- völinn í Hvíta húsinu, þegar íbúða- verð hækkaði, fátækt minnkaði og afgangur var í ríkiskassanum. Atkvæði fólks af afrískum ætt- um í öðru lagi, og það er ekki síður mikilvægt, er fylgi Clintons meðal fólks af aftískum ættum og kvenna. Þegar litið er á stöðuna í þeim fylkj- um þar sem mjótt er á munum miúi Bush og Kerrys er ljóst að atkvæði blökkumanna og kvenna, ef hægt er að fá þessa tvo hópa á kjörstað, í mikl- um mæli getur skipt sköpum fyrir Kerry. í fylkjum á borð við Flórída, Michigan, Ohio og Pennsylvaníu em stórir hópar blökkumanna. Sérfræðingar benda á að þátttaka blökkumanna í þessum fylkjum muni að öllum líkindum ráða því hver sest í Hvíta húsið eftir kosningamar. Hataður eins og pestin Margir repúblikanar hata bæði Clinton og Hillary konu hans eins og pestina. Sumir þeirra hafa sagt að það að nota Clinton nú sé eins og demókratar séu að endurtaka baráttu sína í síðustu forsetakosn- ingum. Repúblikanar óttast einnig þá staðreynd að heimurinn var Banda- ríkjamönnum mun einfaldari og auðskiljanlegri fyrir 9/11 þegar Clinton var við völd. Kerry gefur nú í skyn að hann geti fært samlöndum sínum þessa góðu tíma aftur. Catrine kattasandur Nú er búið að leysa vandamálin með kattasandinn! Catrine kattasandurinn hefur mikla ísogshæfileika og kögglast einstaklega vel. Auk þess inniheldur sandurinn lyktarheftandi efni. Dagleg umhirða Catrine kattasandsins stuðlar að ánægjulegum samskiptum katta og eiganda þeirra. Blóð er þynnra en olía í Texas Ættingjarnir eru á móti Bush forseta „Gjörið svo vel að kjósa ekki frænda okkar!" Þannig hljóma skilaboðin á vefsíðu sem sjö ættingj- ar George Bush hafa komið á fót. Blóð er þynnra en olía í Texas ef marka má þessa vefsíðu því þessir frændur og frænkur forsetans segja öll að þau styðji John Kerry í komandi kosning- um. Ættingjarnir láta þess getið að þau hafi aldri liitt þennan þekkta frænda sinn en þau eru alfarið á móti þeim skoðunum og sjónarmiðum sem hann stendur fyrir. „Ég tel að við séum ekki að svikja Bush," segir Sheiía House, ein af frænkun- um. „En ég viðurkenni að við notum fjölskyldu- tengslin til að fá fólk til að ræða pólitík." Ættingjarnir sjö eru öll barnabörn Mary Bush House sem var systir Prescotts Bush sem aftur er faðir Bush eldri fyrrum forseta Bandaríkjanna og afi núverandi forseta. Frábært tilboð á Catrine • 7,5 kfló kr. 1.300 • 7,5 kfló og sandkassi kr. 2.300 • 7,5 kfló og sandkassi með húsi kr. 2800 Einnig tilboð á HILLS hunda og kattafóðri Einstök samsetning náttúrulegra hráefna að viðbættum vítamínum, steinefnum og öðrum fóðurbætiefnum. Dagflnnur læknar dýrin stór og smá. Skólavörðustígur 35 • Sími: 552 3621 • dagfinnur@dagfinnur.is • Opið virka daga 9-18 Ekki Schwarzenegger-stytta í Austurríki Líkar ekki að Arnie styðji Bush forseta Áform um að reisa 24 metra háa styttu af Arnold Schwarzenegger í hlutverki Terminators í heimabæ hans í Austurrfki hafa verið blásin af þar sem hann styður Bush í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Styttan átti að vera úr stáli og áformin vöktu mikla athygli í fyrra þegar hug- myndin var kynnt. En íbúar í borginni Graz er nú svo reiðir í garð þessa frægasta son- ar borgarinnar fyrir að styðja Bush og stríðið í írak að þeir hafa ákveð- ið að hætta við allt saman. Herwig Hoeller, helsti talsmaður þess að styttan yrði reist, segir að áformin njóti ekki lengur stuðnings bæjar- búa. „Raunar held ég að ég sé sá eini í borginni sem vill að styttan rísi,“ viðurkennir Hoeller. Hugmyndin að styttunni kom í Styttan Styttan átti að grnefa yfir styttur aföðr- um þekktum bæjarbúum, eins og Wolf- gangAma- deus Mozart og keisaranum FranzJosef. kjölfar kosningasigurs Scwarzen- eggers í ríkisstjórakosningunum í Kaliforníu. Styttan átti að gnæfa yfir styttur af öðrum þekktum bæjarbú- um eins og Wolfgang Amadeus Mozart og Franz Joseph keisara. Einnig hafa komið upp háværar raddir um að endurskýra Arnold Schwarzenegger-fótboltavöllinn í borginni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.