Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 Sport DV Njarðvíkingar hafa fyrstir liða unnið f]óra fyrstu leiki úrvalsdeildar karla með meira en 20 stiga mun og eru einir með fullt hús stiga í Intersportdeild karla. SÖGULEG BYRJUN Njarðvík er fyrsta liðið i 26 ára soyu úrvalsdeildar karia sem vinnur fyrstu fjóra leiki sina á timabilinu meö 20 stigum eða meira. KFÍ (heima) 21 stigs sigur, 106-85 Troy Wiley 29 stig, 11 fráköst Matt Sayman 19 stig, hitti úr6 af 9 skotum. Páll Kristinsson 15 stig Brenton Birmingham 11 stig, 6 stoösendingar Unnu fyrri hálfleik 54-35 ÍR (úti) 30 stiga sigur, 103-73 Brenton Birmingham 30 stig, hitti úr 11 af 12 skotum Páll Kristinsson 20 stig, 10 fráköst, 6 stoðsendingar, 5 stolnir Matt Sayman 18 stíg, 7 stoð. Friðrik Stefánsson 10 stig, 12 frá- kost, 6 varin Unnu 1. og 4. leikhluta samanlagt 59-25. KR (heima) 23 stiga sigur, 92-69 Páll Kristinsson 21 stig, hitti lOaf 14 skotum Friðrik Stefánsson 17 stig, 10 frá- kost Matt Sayman 14 stig, 10 stoðsend- ingar Jóhann Árni Ólafsson 14 stig, 3 stoösendingar á 17 mínúturm Unnu 4. leíkhlutann 28-9 Grindavík (úti) 23 stiga sigur, 87-64 Páll Kristinsson 30 stig, 15 frá- kost Matt Sayman 15 stig, 12 stoðs., 9 fráköst \ Brenton Birmingham 14 stig, 11 I fráköst Friðrik Stefánsson lOstig, 10frá- kost Unnu síðustu þrjá leikhlutana 70- Karlalið Njarðvíkur í körfubolta hefur gefið ákveðin skilaboð í upphafi tímabilsins. Liðið byrjaði á því að vinna Keflavík í meistarakeppninni með 26 stiga mun - fyrsta tap Keflavíkur á heimavelli í tvö ár og hefur síðan unnið fjóra fyrstu leiki sína í deildinni með sögulegum yfirburðum - alla með meira en 20 stiga mun. Njarðvík hélt Grindavík í 64 stigum í fyrrakvöldi sem er lægsta stigaskor Grindvíkinga á heimavelli í 14 ár. Það stefnir því í fengsælt tímabil hjá Njarðvíkingum í vetur. Einar Árni Jóhannsson er á sfnu fyrsta ári sem þjálfari meistara- flokks karla hjá Njarðvík og hann hefur ekki stigið feilspor í haust. Liðið er gríðarlega jafnt og sterkt, með stóra og sterka menn inni í teig, frábæra leikstjórnendur og unga og fríska stráka sem eru ólmir í að sýna sig og sanna. „Við mættum vel undirbúnir til leiks í vetur. Við vorum búnir að spila þó nokkuð mikið af æfingaleikj- um og við fórum góða fer til Dan- merkur sem hjálpaði okkur gríðar- lega mikið. Þessi ferð gerði liðinu mjög gott og þá fyrst og fremst fé- lagslega. Ofan á þetta fengum við síðan flottan körfubolta úti í Dan- mörku, spiluðum á móú sterkum lið- um og unnum sigur," segir Einar um ástæðuna fyrir góðri byrjun. Fyrsta alvöru prófið Njarðvíkingar fengu fyrsta alvöru prófið í Grindavík í fyrrakvöldi og stóðust það með miklum sóma. Grindavík hefur ekki skorað færri stig í úrvalsdeildinni á heimavelli í rétt tæp 14 ár eða síðan Njarðvík hélt þeim í 60 stigum í leik liðanna 28. október 1990. „Með hverjum sigurleik eykst sjálfstrausúð. Þetta var kannski erf- iðasú deildarleikurinn til þessa hjá okkur gegn Grindavík, þó að það verði nú alltaf talið til stærri leikja vetrarins þegar við fáum KR í heim- sókn. Þetta var stærsta prófið til þessa og mínir strákar stóðust það með stakri prýði," segir Einar. Brenton Birmingham er enn í að- alhlutverki í Njarðvíkurliðinu þótt hlutverk hans sé ekki jafhstórt og áður. Þess í stað eru súgaskor og framlög að koma frá mörgum. Páll Krisúnsson hefur leikið frábærlega og leikstjórnandinn Matt Sayman virðist vera mikill happafengur, enda alltaf að og vinnur markvisst að því að gera félaga sína að betri leik- mönnum. Sayman hefur sem dæmi gefið 22 stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum en tekið sjálfur bara 18 skot en er engu að síður með 29 súg í þessum tveimur leikjum. „Matt er einstakt eintak. Það er ekki nóg með að hann er fr ábær leik- maður heldur er hann einstakur drengur og það er gaman að hafa svona mann í sínu liði. Hann er frá- bær fyrirmynd fýrir aðra leikmenn í liðinu því hann er rosalega duglegur og æfir gríðarlega mikið. Það er ekki hægt að segja að hann æfi tvisvar eða þrisvar á dag því hann æfir meira og minna allan daginn," segir Einar. Mikið af hraðaupphlaupum Páll Kristinsson nýtir sér vel þjón- ustu Sayman sem sendi sem dæmi fimm stoðsendingar á hann í Grindavík og það er ljóst að hraða- upphlaup liðsins eru flestum liðum of stór bita að kyngja. Njarðvíkurlið- ið skoraði 20 súg úr hraðaupphlaup- um í Grindavík og þar af var Páll með helminginn. Tólf hraðaupphlaups- stiganna voru í öðrum leiMúuta sem Njarðvík vann með 18 súgum, 27-9, liðið lokaði þá vöminni og stakk heimamenn greinilega af. „Góður varnarleikur skilar okkur mörgum hraðaupphlaupum og auðveldum körfum. Það er vissulega lykillinn að velgengni eins og er,“ segir Einar Árni, en hann hefur eins og áður sagði þjálfað yngri flokka lengi í Njarðvík og veit vel hvað hann hefúr í höndunum. Einn leikmanna er Jó- hann Árni Ólafsson sem átú frábæra innkomu í Grindavík. Jóhann kom inn fullur af baráttuhug og afar ein- beittur í vörn. Þegar hann steig inn á völlinn var staðan 19-14fýrirGrinda- vík en þegar hálfleiksflautan gall 12 mínútum og 10 sekúndum síðar var Njarðvík komið 14 stigum yfir og vann því þennan kafla með 19 súg- um, 30-11. Það er ekki slæmt að geta gefið í þegar frískir menn koma inn afbekknum. „Éghefverið ánægastur með ungu strákana hjá mér, þeir hafa vaxið inn í sín hlutverk. Þeir hafa verið mjög duglegir í vörninni og heldur láúð leikinn kom til sfn frekar en að vera að sækjast eftir ein- hverju sóknarlega," segir Einar um innkomu ungra og efnilegra leik- manna en af þeim er nóg til í Njarð- vík nú sem endra nær. ooj@dv.is Góður varnarleikur skilar okkur mörgum hraðaupphlaupum og auðveldum körfum. Það er vissulega lyk- illinn að velgenginni eins og er. Darrel Lewis var 24 stigum undir meðalskori sínu Darrel Lewis var búinn að spila frábærlega fyrir Grindavík fyrir leik- inn gegn Njarðvík í fyrrakvöld, hafði skoraði 39 stig að meðaltali, tekið 10 fráköst og nýtt 60 % skota sinna. Hin geysisterka NJarðvíkurvörn lokaði hins vegar á einn besta leikmann deildarinnar sem skoraði „aðeins" 15 stig en hann hefur einungis þrisvar sinnum skorað minna í 46 úrvalsdeildarleikjum sínum til þessa. Lewis tók auk þess aðeins þrjú fráköst og nýtti 41% skota sinna og samkvæmt tölfræðinni hefur hann aðeins einu sinni skilað minna til Grindavíkurliðsins í einum leik. „Við lögðum ekki neina áherslu á að reyna að loka alveg á Lewis í leiknum. Þetta var frekar hugsað þannig að Lewis og Justin Miller myndu skora eitthvað af stigum og Páll Axel sömuleiðis en aðaláherslan væri að stoppa hina. Auðvitað var það þó markmiðið að Lewis myndi skora sína 30 súg í sem flestum skot- um. Menn voru duglegir að hjálpa til í varnarleiknum og hjálparvörnin var virkilega öflug. Hann var með 39 stig að meðaltali fyrir ieikinn og við vissum að þeir myndu reyna að láta hann gera mikið fýrir sig og þeir myndu treysta mikið á hann. Okkar leikur byggist meira á því að allir fimm sem eru inni á ógnandi," segir Einari Árni þjálfari Njarðvíkur um hvernig NJarðvikur- liðið stoppaði Darrel Lewis. ooj&dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.