Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR I. NÓVEMBER 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjóran lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjórar. ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Hrafnhildi p Hagalín £ 1. Hvað hét fyrsta leikrit hennar? 2. Á hvaða hljóðfæri lærði hún lengi? 3. Hvað hét næsta leikrit hennar? 4. Hvaða leikrit hennar er nú sýnt í Þjóðleikhúsinu? 5. Hvaða kunni gítarleikari er sambýlismaður hennar? Svör neðst á síðunni Hver er munurinn á Kristni Björnssyni og Sigga sót? Siggi sót stofnaði fyrirtæki á föstudag- inn var og er sjálfur stjómarformað- ur og forstjóri. Með honum í stjórn em Óli undirhaka og Labbi landi og félag- ið hefur auk þess ráðið til sín þá Ragga rúðuskera og Kára krók. Þeir em allir virðulegir innbrotsþjófar hér í borg og fyrirtækið þeirra heitir Kúbein ehf. Starf- semi þess mun felast í innbrotum við hvert tækifæri og þjófnuðum og ránum hvers konar. Hingað til hafa þeir félagar stundað þessa starfsemi sem einyrkjar en niðurstaðan í rannsókn á samráði olíufé- laganna hefur sannfært þá um að miklu betra sé að hafa skráð félag í forsvari fyrir innbrotunum. Því þótt hafi allir tröllatrú á hæfileik- um sínum við innbrot og gripdeildir af öllu tagi, þá em þeir þó varkárir menn og gera ser grein fyrir því að svo kunni að fara að lögreglan hafi hendur í hári þeirra. Og þá munu þeir vísa tU þess við vörn sfna að öU refsiábyrgð í málinu hljóti að falla á Kúbein ehf. en þeir sjálfir séu laus ir aUra mála. Og hið opinbera muni því ekki hafa önnur úrræði en dæma Kúbein ehf. tU greiðslu sekta en einstaklingarnir sem skipa stjórn fyrirtækisins og teljast ráðnir í störf hjá því, þeir muni auðvitað ekki bera neina persónulega ábyrgð. Og í fljótu bragði er erfitt að sjá hvernig ætti að andmæla þessari vörn. Ef sú verður niðurstaðan að forráða- menn olfufélaganna beri sjálfir enga ábyrgð á þeim mUljarðaþjófnaði á fé al- mennings sem leiddi af ólöglegu sam- ráði þeirra og nú má heita sannað mál. Ulugijökulsson Þarflaust er vonandi að taka fram að þeir félagarnir í Kúbeini ehf. em tilbúningur leiðarahöfundar. En það em Kristinn Björnsson, Geir Magnússon og Einar Benediktsson hins vegar ekki. OHdlsntonirnlr ern aö slgra Stríðið Innrásin í England Árið 43 e.K[r. Rómverski keisarinn Kládíus ákvað innrásina og tók þátt í henni á síðari stigum en í________ reynd stýrði Álíus Plátíus hernaðinum. Fjórar legíónir með alls 20 þúsund manns lentu lfldega við Richborough í Kenjt. Einni hersveitinni stjórnaði Vespasían- us, sfðarkeis- ari. Keltneskir konungar vörðust af kappi en stóð- ust þrautþjálfuðum Rómverjum ekki snúning til lengd- ar. Einn þeirra var Cunobelin sem Shakespeare samdi síðar um leikritið Sym- belína. Kládíus sjálfur lagði undir sig höfuðborg hans (Colchester) þar sem stríðs- fflar Rómverja ollu miklum usla í liði kelta. Nokkur ár tók fyrir Rómverja að bæla niður alia andstöðu en að lokum var England orðið rómverskt að mestu. Kent Heimaboxari Um daginn auglýstum við eftir nýju (eða gömlu) til að nota yfir karlmenn sem berja eiginkonur sínar og eftir atvikum konur sem berja eiginmenn sína. Við höfum satt að segja ekki fengið neinar uppástungur (nema„makameiði“ sem við sögðum frá um daginn) en í blaðinu á laugar- daginn gripum við orðs sem að sögn hefur alllengi verið í umferð meðal fólks - ekki sfst. Það er orðið „heimaboxari" og spurning hvernig fólk kann við það I opinberu brúki. Orðið skýrir sig náttúrlega sjálft. Svörviöspumingum: 1. Ég er meistarinn - 2. Gítar - 3. Hægan Elektra - 4. Norður - 5. Pétur Jónsson Málið strAkurinn sem handrukkarar börðu svo illa að hann bíður þess aldrei bætur á lflcama og sál, þorði ekki að bera vitni gegn þeim í hér- aðsdómi fyrir helgina. Þá var hann búinn að lýsa því fyrir okkur á DV hvernig beinið á hendi hans hefði staðið út í loftið eftir að þrír nafn- greindir ofbeldismenn réðust á hann þar sem hann lá mjaðm- argrindarbrotinn á heimili sínu og horfði á vídeó. DRENGURINN LÝSTI LÍKA fyrir okk- ur að hann hefði fengið símtöl frá manninum sem lesendur DV hafa fengið að kynnast að undanförnu, Annþóri Kristjáni Karlssyni, þar sem hann lagði að honum að draga framburð sinn hjá lögreglu til baka. Faðir drengsins, sem kærði upp- haflegu árásina, reyndi að styðja drenginn til að bera rétt vitni, en allt kom fyrir ekki. í stað þess að segja satt og rétt frá í dómsal bjó strákurinn til fáránlega sögu um að hann hefði brotið hendina á því að falla í stiga og árás handrukkar- anna, eða kverktakanna, hefði ekki verið eins og hann lýsti hjá lög- reglu. Með þessum framburði, verður erfitt fyrir dómara að dæma of- beldismennina fyrir annað en minniháttar líkamsárás. Hótanir þeirra báru árangur og þeir geta varla fengið þann þunga dóm sem þeir ættu að verðskulda með réttu. Þetta verður niðurstaðan í einu af fáum málum þar sem ofbeldi kverktakanna er kært. Fæstir aðrir þora að kæra sem þýðir að ofbeldið viðgengst og verður fastur þáttur í íslensku samfélagi. UPPHAF UMFJÖLLUNAR DV um handrukkarana hófst eftir að landsþekktur maður, kvikmynda- leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson, varð fyrir hrottalegri árás á öldur- húsi af hendi þessa sama Annþórs. Okkur er ekki kunnugt um að Frið- rik hafi kært árásina en það síðasta sem við vissum var að hann þorði ekki að kæra. „Okkur er ekki kunn- ugt um að Friðrik hafi kært árásina en það síðasta sem við viss- um var að hann þorði ekki að kæra Fyrst og fremst f framhaldi af umfjöllun okkar byrjuðu ofbeldismennirnir að hóta starfsfólki okkar, við tókum málin traustum tökum og kærðum minnstu hreyfingar en þá höfðu mennirnir hótað ættingjum starfs- manna, eiginkonu eins og ömmu og afa annars. Þegar aðrir þekktir ofbeldismenn ruddust inn á rit- stjórn okkar kærðum við húsbrot og líkamsárás. Það mál er í vinnslu en á meðan kemst sá sem hafði sig mest í frammi upp með að ráðast á vegfaranda á þjóðvegi eitt. Við lýst- um því hvernig hann hefði brotið rúður í bfl mannsins og þrýst hon- um niður í glerbrotin. Kannski lög- reglan hringi aftur í hann til að heyra hans hlið. VW HÖFUM SA6T frá þvi upp á síðkastið hvernig menn hafa sloppið við refsingu fyrir að berja sambýliskonur og lögreglumenn. Við sögðum frá því að lögreglu- maður hefði ekki þorað að kæra það þegar þekktur ofbeldismaður brákaði á honum neflð í lögregiu- aðgerð vegna þess að félagi ofbeld- ismannsins hefði áður hótað börn- um lögreglumannsins. Engin kæra þýðir að ofbeldismaðurinn fær frelsi til að ganga um þjóðfélagið eins og ekkert hafi í skorist. MAÐUR SEM BARÐI annan lög- reglumann og braut í honum tönn fékk jafnþungan dóm og annar fékk fyrir að stela flugtímariti og oststykki. Þegar við kölluðum eftir viðbrögðum frá formanni Lands- sambands lögreglumanna sagði hann máiin öll vera á réttri leið og að engar áhyggjur þyrfti að hafa. Það eru fjarstæðukennd ummæli manns sem greinilega er ekki starfi sínu vaxinn. Lögreglumenn verða að búa við það öryggi að þeir þori að taka á ofbeldismönnum til að tryggja öryggi okkar hinna. Kannski finnst einhverjum þetta léttvægt en staðreyndir máls- ins eru þessar: í þjóðfélaginu vaða ofbeldismenn uppi og sinna sínum innheimtu- og ógnunarverkum án þess að nokkur hreyfi legg eða lið. Lögreglan er máttlaus og lætur sig engu skipta þegar þeirra eigin menn - menn sem eru á launum frá okkur skattgreiðendum til að halda uppi lögum og reglu og tryggja öryggi borgaranna - verða sjálfir fyrir barðinu á ofbeldis- mönnunum. VIÐHERADV höfum lagt okkar af mörkum að draga þessi mál fram í dagsljósið. Við höfum fengið gríð- arlegar viðtökur frá þeim sem hafa reynslu af verkum þessara manna en eygjum litla von til þess að nokkur sé að gera neitt til að breyta ástandinu. Á meðan eru ofbeldis- mennirnir að sigra og almenning- ur að tapa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.