Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2004, Page 3
DV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 1. NÓVEMBER 2004 3 Það er frekar rólegt í Kringlunni enda sunnudagur og flestar búðir lokaðar. Örfáar hræður sjást ganga þungum skrefum út úr Bónus með innkaupapoka og Stjörnutorgið er þokkalega vel setið. „Ég er búin að vinna hérna síðan í byrjun sumars," segir Kna|BHrnNpnBBrtPB| Lena Rúnarsdóttir í ísbúðinni. KV A # lUlLn l.\ J Lena stundar nám í Mennta- skólanum við Sund og er þar á öðru ári. „Eigum við ekki bara að segja að það gangi ágætíega í skólanum, flestir vinir mínir fóru þó í Versló en ég ákvað að fara í MS.“ Hinar stelpurnar í ísnum eru að gera allt klárt fyrir daginn og kona á miðjum aldri kaupir barnaís með ídýfu fyrir strákinn sinn. En hvernig er það er fólk að kaupa mikinn ís í öllum þess- um kulda? „Já, það er svolítið mikið að gera, traffíkin byrjar samt yfir- leitt ekkert fyrr en um kaffileytíð á sunnudögum," segir Lena og heldur áfram að þurrka af glerinu sem hylur ljúffengan ísinn sem er í öllum regnboganslitum. Að því er Lena segir kaupir fólk mest venjulega ísinn. Þó fari svolítíð af svokölluðum Smoothies sem sé hollur og hressandi drykkur. Hún segist ætía að vinna með skólanum í allan vetur enda lfki henni vinnan þokkalega vel. „Það er mjög gaman að vinna hérna og svo er þetta líka ágætlega borgað,“ segir Lena Rúnarsdóttir. Spurning dagsins Treystirðu olíufélögunum? Búnir að svíkja okkur í mörgár „Nei það geri í ekki. Eru þeir ekki búnir að vera að svíkja okkur í mörg ár? Ég held að það sé alveg á hreinu og þess vegna treysti ég þeim alls ekki." Hafsteinn Hafsteinsson „Nei, engan veginn. Þeireru búnir að sanna að þeim er ekki treystandi út af samráðinu á sínum tíma þannig að ég treysti þeim alls ekki." Helgi Helgason „Hefur maður um nokkuð annað að velja. Þetta virðist allt vera á sama borði. Ég get nú samt ekki sagt að ég treysti þeim eitthvað sérstak- lega mikið vegna þess sem á undan er gengið." íris Sigurðardóttir „Veistu það að ég hefmjög litlar skoðanir á þessu, ég er ekki einu sinni með bíl eða neitt." Rúna Lind Jóhannsdóttir „Verður maður ekki að gera það. Ég heflít- ið sett mig inn íþetta en verðum við ekki að segja að ég treysti þeim." Ingibjörg Ragnarsdóttir Olfufélögunum var í síðustu viku gert af Samkeppnisstofnun að greiða milljarða í skaðabætur vegna ítarlegs samráðs. Tapa Bush-feðgarnir báðir eins og Adams-feðgarnir? George Bush Bandaríkjaforseti 1989- 1993 og George W. Bush núverandi forseti eru náttúrlega feðgar. Einu feðgarnir sem fram að þvf höfðu setið báðir á forsetastóli vestra eru þeir John Adams forseti 1797-1801 og John Quincy Adams 1825-1829. Margt er svipað með feðgunum. Til dæmis voru bæði John Adams og Ge- orge Bush eldri varaforsetar f átta ár áður en þeir náðu sjálfir í forsetastól- inn. Adams var varaforseti George Washington en Bush eldri varaforseti Ronalds Reagan. Báðir féliu svo f forsetakosningum eftir aðeins fjögur ár í embætti. Adams féll fyrir Thomas Jefferson en Bush fyrir Bill Clinton. Feðgar á forsetastóli Eftir að forsetarnir Jefferson, James Madison og James Monroe höfðu allir gegnt embættinu f átta ár varð sonur Adams eldri, John Quincy Adams, kjör- ínn forseti. Það gekk þó ekki átaka- laust. Adams yngri fékk töluvert færri atkvæði í kjörmannasamkundu en helsti keppinautur hans, Andrew Jackson. Vegna þess að atkvæði dreifð- ust hins vegar óvenjumikið fékk Jackson ekki tilskilinn meirihluta f kjörmannasamkundunni kom málið til kasta fulltrúardeildarinnar. Þar naut Adams yngri meiri stuðnings en Jackson og varð hann forseti. Adams yngri var síðan fyrsti maðurinn sem féli f forsetakosningum sfðan faðir hans tapaði þegar Jackson gjörsigraði hann fjórum árum seinna. Ekki kostaði minni átök að koma Bush yngra f forsetastólinn en Adams yngra. Hann fékk sem kunnugt er minnihluta atkvæða en meirihluta kjörmanna. Það var þó mjög umdeilt en eftir miklar sviptingar komst Hæstiréttur Banda- rfkjanna að þeirri niðurstöðu að hætta bæri endurtalningu sem hefði getað tryggt Al Gore forsetaembættið. Falli Bush í kosningunum á morgun munu Bush-feðgarnir einnig eiga það sameiginlegt með Adams-feðgunum að falla báðir f kosningum eftir aðeins eitt kjörtfmabil. Leikritaskáldið og fréttamaðurinn Hrafnhildur Hagalln Guðmundsdóttir leikritaskáld og Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttamað- ur RÚV í Kaupmannahöfn, eru frænkur. Hrafnhildur er móðursystir Sigríðar. Sigriður Hagalín leikkona átti dótturina Kristínu með ÓlafiÁg. Ólafssyni áriö 1949. Kristín gift- ist Birni Vigni Sigurpálssyni, blaðamanni á Morg- unbtaðinu, og þau eiga tvö börn. Sigríður Haga- lín erhið eldra þeirra, fædd 1974. I millitíðinni hafði Sigríðgr Hagalín leikkona gengið að eiga Guðmund Pálsson leikara og þau áttu dótturina Hrafnhildi Hagalin árið 1965. Sigriður Hagalín leikkona er svo að sjálfsögðu dóttir Guðmundar G. Hagalín rithöfundar. Frábær verðtilboð á heilsársdekkjum/vetrardekkjum. 155/80R13 frá kr. 4.335 ^O' 185/65R14 frá kr. 5.300 195/65 R15 frá kr. 5.900 P.99Ö 195/70R15 8 pr.sendib.frá kr.8.415 JJvrOO EUBOCABD Léttgreiðslur Sækjum og sendum bílinnþinn! [BlL'AÞJVWltTURl isuwvMim ÍBIlKOj bilkoiis Betri verð! Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.