Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Page 10
10 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV Eiríkur er hress og skemmti- iegur og hefur lifandi og öfl- uga framkomu. Hann segir skemmtilega frá. Hann er ör- uggur og hefur fastar skoðan- ir á mönnum og málefnum. Hann er Isfirðingur. Hann er vakandi fyrir nýjungum í list- um og menningu sama hvað- an þær koma. Eiríkur getur verið oforð- hvatur og hreinskilinn og fer þviýmislegt sem hann segir fyrir brjóstið á fólki. Hann á það til að tala of mikið og gleymir þá oft við- mælendum sínum þegar hann veður áfram í frá- sögnum. Hann gengur um með frekar Ijótan hatt. „Eiríkur talar mikið og er vel máli farinn. Hann er ófeiminn og er einkar hress með vini en er líka alveg ágætur edrú. Það sem ég heflesið eftir hann er afar gott og hann er hæfileikarikur. Gallarnir við hann eru líklega þeirað stundum getur hann talað of mikið, það veður áhonum og hann tekur frammi fyrir fólki. Svo er hann stór og hávaxinn og með alltofmiklar handa- hreyfingar." Sigurður Gunnarsson, sagnfræðinemi og Ijósmyndari. „Einn helsti kostur Eiriks er að hann er óþægilega hreinskilinn og er það einnig hans helsti löstur. Hann gengur líka alltaf um með hatt. Hann hefur mikinn áhuga á menn- ingu og listum og hefur góðan smekk á tónlist og skáldverkum. Hann hefur það fyrir lífssýn að segja alltaf það sem honum finnst og finnst þá kannski eitt eina stundina og annað hina. Hann er þvi óhræddur við mótsagnir og stendur með sínu." Haukur Ingvarsson, skáld og félagi. „Eiríkur er mjög hæfileikarikt skáld. Hann hefur sterkar vest- firskar skoðanir og elskar sína heimabyggð. Við erum góðir vinir og ég þekki hann vel og ætla því ekki að hrósa honum um ofþvi ég veit að hann á það til að láta það stíga sér til höf- uös." Mugison, tónlistarmaður og vlnur. Eirikur örn Norðdahl er fæddur 1JÚI11978. Hann eralinn upp á Isafírði. Hann útskrif- aðist frá Menntaskólanum á Isafírði. Næstu ár ferðaðist hann um og bjó íýms- um löndum um allan heim. Hann býrálsa- fírði og starfar sem næturvörður á hóteli og sem skáld. Bók hans, Hugsjónadruslan, er væntanleg I verslanir í vikunni. Sýndu ekki Private Ryan í vikunni minntust Bandaríkjamenn fallinna hermanna og stóð til að 225 sjónvarpsstöðvar á vegum ABC sýndu Óskarsverð- launakvikmyndina Saving Private Ryan. AUt að 65 stöðvar þorðu ekki að sýna myndina því þar tala menn oft ósæmilega og eðli mynd- arinnar samkvæmt ber nokkuð á ofbeldi. Kennarar eru ævareiðir vegna lagasetningar um kennaraverkfall og margir treysta sér ekki til að mæta í vinnu að nýju. Búist er við að margir kennarar skrái sig veika í dag. Skólastjórnendur eru uggandi um framtíðina. „Kennarar eru bugaðir. Fólki líður mjög illa, þegar lagasetningin var sett brotnuðu margir hreinlega niður og hágrétu, fólk fékk bara vægt taugaáfall." sagði Jón Pétur Zimsen, kennari í Réttar- holtsskóla, þegar DV hafði samband við hann í gær. „Sumir eru fljótir að jafna sig á áföllum og sumir ekki. Miðað við h'ð- an flestra tel ég það ekki vera óeðlilegt að einhverjir hringi sig inn veika á morgun. Til að sinna kennslu þarf fólk að vera í góðu andlégu jafhvægi og eflaust eru margir sem eru nú í engu ástandi tíl að kenna. Mér líður bölvanlega sjálfum og myndi ekki treysta mér tú kennslu eins og er. Ég Þóra Elfsabet Kjeld „Þetta eru sorglegir tímar. Ég hefenga ánægju afað vera Is- lendingurídag." veit ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér né hvort líðanin mun skána." Sorglegir tímar Jón Pétur neitar því að samantek- in ráð séu á milli kennara í sínum skóla um að tilkynna veikindi. „Það eru ekki skipulagðar aðgerðir af neinu tagi. Fólk gerir svona hluti algerlega upp við sig sjálft." Aðspurður um hvort kennarar hyggi á fjöldaupp- sagnir vegna málsins segir Jón Pétur að margir hafi talað um það eða lýst því yfir. „Maður veit ekki hvort fólk kemur svo til með að standa við það en þegar níðst er á heilli starfstétt get- ur allt gerst." Þóra Elísabet Kjeld, kennari í Ár- bæjarskóla, tekur í sama streng. „Fólk er virkilega í sjokki, því h'ður illa og er mjög reitt. Það hafa ails kyns tilfinn- ingar gert vart við sig og margir líkja þessu hreinlega við áfallaröskun. Kennurum finnst engin virðing vera borin fyrir starfinu sfnu. Óánægjan er mikil og fólki h'ður bara eins og það sé í fangelsi. Það er erfitt fýrir kennara að segja upp því ef það verða hópupp- sagnir þá má framlengja uppsagnar- frestinn þar sem stéttin er í hættu og ef þú mætir ekki þá má beita þig fjár- sektum. Hvað á fólk að gera? Þetta eru sorglegir tímar. Ég hef enga ánægju af að vera íslendingur í dag.“ Upphafið að hnignunarskeiði Guðrún Magnúsdóttir, skólastjóri í Hjaflaskóla í Kópavogi, segist ekki hafa skipulagt neinar aðgerðir ef svo fari að kennarar mæti ekki til vinnu. „Við ætlum að sjá hvemig dagurinn fer af stað og ákvarðanir verða svo teknar í framhaldi af því. Það eru ekki jákvæðir straumar í loftinu og þetta Jón Pétur Zimsen kennari „Maður veit ekki hvort fólk kemur svo til með að standa við það en þegar níðst er á heilli starfstétt getur allt gerst. “ Veiðimenn brjóta rjúpnabann Bjóða bannaða rjúpu „Mér hafa verið boðnar íslensk- ar rjúpur á 2.500 krónur stykkið en þáði ekki. Ég hef líka heyrt að menn bjóði rjúpur frá því í hittiðfyrra en held að það sé aðeins fyrirsláttur til að fela að þær séu nýjar," segir Úlfar Finnbjörnsson, matsveinn og mikill rjúpnaaðdáandi. í fýrra var nokkuð um að menn væru með til sölu rjúpur frá árinu áður og alls ekki hægt að sanna að svo væri ekki. Það fór þó hljótt og rjúpurnar voru hvergi tif sölu í verslunum. Úlfar segir að sjálfur hafi hann fengið rjúpur á pelann þegar hann var barn og aldrei fifað jól án rjúpu. „Ég freistaðist eigi að síður ekki til að kaupa þessar rjúp- ur sem mér voru boðnar en er að reyna að fá grænfenskar rjúpur. Þær gefa þeim íslensku ekkert eftir enda um sömu rjúpuna að ræða. í fýrra voru þær seldar á 1500 krón- ur. Þær skosku er prýðilegar en ná ekki villibragðinu sem við viljum hafa af rjúpunni. Úlfar segist ekki vita hve mikið sé um að menn séu að skjóta en menn fari leynt með það sem þeir skjóta. „Þeir skjóta með riffium með hljóðdeyfi en rjúpan er svo spök að það er ekki mikið mál. Ég sagði þessum veiðimönnum að skammast sín. Ég held samt að ekki sé mikið um að þeir sem eru að skjóta séu að bjóða rjúpurnar til sölu heldur hafi þær til eigin nota,“ segir Úlfar. Láta sér ekki segjast Óforskammaðir veiðimenn brjóta rjúpnaveiðibann og skjóta rjúpur með riffli með hljóðdeyfi. „Mér líður bölvanlega sjálfum og myndi ekki treysta mér til kennslu eins og er," segirJón PéturZim- sen. ö leggst ekki vel í mig ef fer sem horfir. Það er trúnaðarmannafundur síðar í dag og þá munu málin skýrast. Ég hef ekki heyrt af neinu samráði á milli kennara um að mæta ekki. Ég held að hver og einn þurfi bara að taka sína ákvörðun og bera ábyrgð á sínum gjörðum." Hilmar Hilmarsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, sat á fundi með nokkrum skólastjómendum þegar DV hafði samband við hann í gær. „Menn em bara að ræða almennt þá stöðu sem er komin upp í skólakerf- inu. Fyrst og fremst hafa menn áhyggjur af framtíðinni, ekki bara morgundeginum. Það er ekki bjart framundan í skólamálum á íslandi. Ég óttast að þetta sé upphafið að hnignunarskeiði." toi@dv.is Ríkinu stefnt vegna löggæslu Ungmennafé- lag íslands hefúr stefnt fjársýslu rflásins vegna löggæslumála á unglingalands- mótum. Málið er á dagskrá Hér- aðsdóms Reykja- vflcur í dag. Björn B. Jónsson, for- maður UMFI, sagði í samtali við DV í gær að málið snerist um prinsipp en ekki krónur og aura - en félagið var rukkað vegna lög- gæslukostnaðar á ísafirði sumarið 2003. „Við viljum koma þessu máli á hreint þannig að við verð- um ekki rukkaðir vegna löggæslu. Við erum með hundruð sjálfboð- aliða á okkar landsmótum og telj- um okkar mót ekki heyra undir opinberar útíhátfðir," sagði Bjöm og bætti við að töluverðar líkur væm á að sátt næðist í málinu strax í dag. Sú sátt felur þá í sér að UMFÍ þurfi ekki að greiða fyrir löggæslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.