Barnadagurinn - 22.04.1937, Qupperneq 3
BARNADAGURINN 1937
8
Ra d d i r.
Ritstjóri „Barnadagsins lagði eftirfarandi spurningu fyrir nokkra
menn, sem gegna ábyrgðarmiklum störfum fyrir þjóðfélagið:
Hvað álítið þér um störf ,,Sumargjafar“?
Hér á eftir fara ummæli þeirra, sem svöruðu spurningunni:
Frú Aðalbjörg SigurSardóttir:
Eg lít svo á, aS ,,Sumargjöfin“ leysi af hendi hið mesta
nauðsynjastarf hér í Reykjavík. Þörfin á dagheimilum fyr-
ir börn verður meiri með hverju árinu sem líður, og mun
nú viðurkennt af flestum. Nokkrir áhuga- og hugsjóna-
menn og konur bæjarins sáu þessa þörf löngu á undan öðr-
um. Mundi það sjálfsagt hafa dregist lengi enn, ef beðið
hefði verið eftir því, að hið opinbera tæki sig fram um að
koma slíkum heimilum á stofn. En því sjálfsagðara sýnist
það þá, að bær og ríki hjálpi áhugamönnunum, sem brotið
hafa ísinn í þessu máli, til þess að geta aukið starfsemina
sem mest. Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Ásgeir Ásgeirsson, frœðslumálastjóri:
Barnavinafélagið „Sumargjöf“ er eitt af beztu og fram-
takssömustu félögum þessa bæjar. Það heldur uppi þjóð-
þrifastarfsemi af miklum dugnaði. Félagið miðlar fátæk-
um bæjarbörnum af gæðum sumarsins. Það léttir þungum
áhyggjum af mæðrum, sem vinna utan heimilis. Félagið á
skilið að l’á stuðning allra góðra manna.
Ásgeir Ásgeirsson.
Eysteinn Jónsson, f jármálaráðherra:
Álít að Barnavinafélagið ,,Sumargjöf“ hafi nú þegar
unnið merkt brautryðjandastarf í þágu uppeldismálanna,
og árangurinn af starfi þess eigi þó eftir að koma enn
greinilegar í ljós en orðið er.
Meðal annars fyrir starf þessa félags er nú komin á
hreyfing víðsvegar um landið, til þess að koma upp aðset-
ursstöðum fyrir þau börn, sem helst þurfa aukinnar að-
hlynningar við.
Eysteinn Jónsson.
Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri:
Starfsemi Sumargjafar er voryrkja í bæjarlífi Reykja-
víkur. Hlutverk hennar er að vernda og verja viðkvæmasta
og dýrmætasta nýgræðinginn fyrir vorhretum, vanefna og
vanheilsu. Hugsjón hennar er að setja börnin sólarmegin
og gefa þeim gleði og hreysti í sumargjöf.
Freysteinn Gunnarsson.
Haraldur Guðmundsson, kennslumálaráðherra:
Hún er alls góðs makleg. Þeir sem starfa að bættum hag
og uppeldi barnanna, starfa fyrir framtíðina.
Haraldur Guðmundsson.
Hallgrímur Jónsson, skólastjóri:
„Hvað álíti þér um störf „Sumargjafar“?“
Gott eitt er um þau að segja. Og er þá komið nafni á að
svara spurningunni; en meður því, að mælginni sumir unna,
mun eg ei svona fáum orðum kunna.
Góðviljj forgöngumanna félagsins virðist vera mikill og
Bökunardropar
Áfeiigisverzlunar ríkisins
eru búnir til úr réttum
• - - , . j» • R ' P P!
efnum og með réttum
aðferðum.
Hárvötn
Áfengisverzlunar ríkisins
eru hin ódýrustu, sem
fást, en þó mjög góð.
Einkasala er á þessum
vörum.
Verzlanir snúi sér því til
Áfengisverzlunar rikisins
Reykjavík.