Barnadagurinn - 22.04.1937, Qupperneq 9
BARNADAGURINN 1937
9
DAGSKRÁ BARNADAGSINS, framh. af 1. síðu.
KI. 5 í K. R.-húsinu :
1. Barnasöngur (telpur) : Jón ísleifsson stjórnar.
2. Barnadansar og step: Dansskóli frú Rigmor Hanson.
3. Harmonikuleikur: Jóh. Jóhannesson.
4. Leikfimi (12 ára drengir) : Stjórnandi: Hannes M.
Þórðarson, fimleikakennari.
5. Gamanvísur: Jóhann Finnbogi Guðmundsson, 13 ára.
6. Einsöngur: Einar Sigurðsson, söngvari.
7. Skátar skemmta: Skuggamyndir (,,Hjá lækninum“),
útvarp o. fl.
Kl. 8 í Iðnó:
TVEGGJA ÞJÓNN. Comedia í 3 þáttum eftir Goldoni.
Leikin af Menntaskólanemendum.
Leikendur:
Speranza, kaupmaður: Þór Guðjónsson.
Clementína, dóttir hans: Guðrún Gísladóttir.
Doktor Lombardi, málafærslum.: Adolf Guðmundsson.
Silvio, sonur hans: Helgi Bergs.
Beatrice Rasponi frá Torino: Geirþrúður Sívertsen.
Florindo Aretusi, unnusti hennar: Gísli Ólafsson.
Roberto Brighella, gestgjafi: Árni Hafstað.
Smeraldína, þerna Clementínu: Drífa Viðar.
Trifolio: Skúli Thoroddsen.
Þjónn: Anna Magnúsdóttir.
Burðarkarl: * * *
Leikurinn fer fram í Venezíu á 16. öld.
Þýðandi og leikstjóri: Bjarni Guðmundsson.
Búningar og tjöld: Lárus Ingólfsson.
Lengst hlé eftir 2. þátt.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó á miðvikudag kl. 4—7 og
frá kl. 1 á sumardaginn fyrsta. Verð kr. 2,00 yfir allt hús-
ið niðri, en kr. 2,50 á svölum, stæði kr. 1,50.
KI. 10 í K. R.-húsinu:
DANS t i! kl. 3.
Hljómsveit K. R.-hússins.
Húsinu lokað kl. 11 Vz-
Aðgöngumiðar að öllum skemmtununum verða seldir í
anddyrum húsanna frá kl. 11 í Bíó-húsunum og frá kl. 1
í Iðnó og K. R.-húsinu.
Aðgöngumiðar kosta eina krónu fyrir börn að öllum
skemmtununum (kl. 3 í Bíóunum, kl. 414 í Iðnó og K. R.-
húsinu), en fyrir fullorðna kr. 2,00 að Bíóskemmtununum
og kr. 1,50 að Iðnó og K. R.-húsinu. Að dansinum kr. 2,00.
Merki harnadagsins verða seld frá kl. 9 árdegis.
HAPPDRÆTTI SUMARGJAFAR.
Um þessar mundir efnir ,,Sumargjöf“ til happdrættis,
og heitir nú á alla félaga sína og aðra velunnara að að-
stoða við sölu miðanna. Félagið hefir einu sinni áður efnt
til happdrættis, en það var vorið, sem Grænaborg var
byggð. — Nú er enn efnt til happdrættis í sambandi við
byggingu hins nýja dagheimilis að Grund, og er það von
félagsstjórnarinnar, að eigi takist ver til með þetta fyrir-
tæki en í hið fyrra skipti, og að ágóði happdrættisins verði
verulegur hluti af stofnkostnaði hins nýja dagheimilis. —
Happdrættið er eitt hið allra besta þessarar tegundar, er
efnt hefir verið til hin síðari ár; 15 vinningar frá 100 'til
400 kr. virði.
CABESO
hinn nýi gosdrykkur, fer
sigurför um allan lieini.
CABESO
inniheidur mjólkur^ýru,
sem styrkir liff ærin.
CABESO
hefir 1 júf f engan og
svaiandi súran keim.
CABESO
hefir með réttu verið
nef nt heilbrigtii i flöskuni
CABESO
er aðeins framleift
hér á landi hjá:
H.f. Ölgerðin
Egill Skallagrímsson
R e y k j a v í k.
Simi 1390. Símn.: Mjöður
enJaipni;