Barnadagurinn - 22.04.1937, Qupperneq 4

Barnadagurinn - 22.04.1937, Qupperneq 4
4 BARNADAGURINN 1937 RÍKISPRENTSMIÐJAN GUTEN BERG REYKJAVÍK Þingholtsstræti 6. Pósthólf 164. Símar (3 linur). 2583, 3071, 3471. Prentun, Bókband. Pappír. Vönduð vinna Greið viðskipti Þær vörur, sem fást á hverjum tíma reynast alltaf vel hjá VERZLUNIN BJÖRN KRiSTJÁNSSON ^ JÓN BJÖRNSSON & CO, A O. FL. HAMPVÖRUR H.F. HAMPIÐJAN R EYKJAV í K Sími 4390. Slmn.: Hampiðja einlægur. Kennir mannvits og fyrirhyggju í félagsstarfsem- inni. — Forsjón félagsins hefir verið sýnt um að afla fjár, en ekki hefir það fé hrokkið til, því að forustumennirnir eru stórhuga. Meira fé vantar, ef framkvæma á það, sem nú kallar að. •— Margir borgarbúar, ungir og gamlir, hafa lagt þessu félagi lið, enda hefir eftir því verið gengið. Er það sagt foringjunum til hróss. Aðsóknin að dagheimilum félagsins sýnir ljósast, hve rík er þörf hjálpar þeirrar, sem félagið veitir. — Of-fullt var í fyrra á báðum stöðum, Grænuborg og selstöðinni, sj ómannaskólahúsinu. Eg hefi löngun til að þakka félagsstjórn og forstöðu- konum heimilanna, er eg hefi sem barnaverndarmaður leit- að til félagsins og beðið um að taka við börnum, sem lítið eða ekkert væri hægt að greiða með. Forstöðufólkið gerði æfinlega meira en það í raun og veru gat. En til þess að félagsstjórnin geti sýnt þá rausn, sem henni er í blóð bor- in, þá verður að leggja fyrirtækinu meira fé, bæði frá borg og ríki. Án fjárframlaga geta verkin ekki talað. — Formaður félagsins, Steingrímur Arason, þreytist ekki á að reyna að finna nýjar leiðir heppilegar til að afla fé- laginu fjáiúns. Og á formaður hauk í horni, þar sem ísak er Jónsson, þessi frábæri dugnaðarhamur. Og svo hafa báðir þessir menn kringum sig úrvalslið. Án þessa hefði félaginu ekki orðið svo ágengt, sem raun ber vitni. Dagheimilum þarf að fjölga. Borgin er dreifð, og örð- ugt að sækja langt fyrir lítil börn. Vér þurfum að eignast barnaheimili, sem taka við börn- um allt árið. Vér, sem í barnaverndarnefnd erum, þreifum á þörfinni, að koma fljótlega fyrir börnum, um lengri éða skemmri tíma, ýmsra ástæðna vegna; en frá ríkis hálfu og borgar blasir auðnin við, enn sem komið er. — Starf „Sumargjafar" er oss ómissandi. Félagið er að reyna að bæta úr allsleysi og vanrækslu. Ætti öllum, sem geta, að vera Ijúft að leggja því lið. Hallgrímur Jónsson. Hermann Jónasson, forsœtisráðherra: Þegar ég fékkst við lögreglu- og réttarrannsóknir hér í Reykjavík, um nokkur ár, bæði sem bæjarfógetafulltrúi og lögreglustjóri, sannfærðist ég um það, að fátt, jafnvel ekkert, er jafn hættulegt fyrir íslenskt þjóðlíf og uppeldi barna á götunni. Þess vegna álít ég, að með stofnun dag- heimilisins Grænaborg hafi verið stigið mjög þýðingar- mikið spor í uppeldismálum Reykjavíkur. — Við þurfum að eignast fleiri dagheimili lík Grænuborg. Hermann Jónasson. Jón Þorsteinsson, íþróttakennari: Barnavinafélagið „Sumargjöf" hefir byrjað á því nauð- synlegasta til þess að efla líkamshreysti barnanna. Fyrst með því að veita þeim holla fæðu, og í öðru lagi með því að gefa þeim kost á að hreyfa sig og njóta sólarljóssins í hollu umhverfi. Þetta eru undirstöðuatriði allrar líkams- menntunar, og heilbrigð sál býr í hraustum líkama. Jón Þorsteinsson. Katrín Thoroddsen, læknir: Þetta er mjög þörf starfsemi. Eg hefi kynnst börnum, sem hafa dvalið á dagheimilum félagsins, og fylgst með

x

Barnadagurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.