Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.2005, Qupperneq 66
REIKISTJÖRNURNAR
Á eftir hverjura mánuði í dagatalinu (neðst á bls. 7, 11 o.s.frv.) eru
töflur sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reiki-
stjörnurnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3. í töflunum
er hæð yfir sjóndeildarhring tilgreind í gráðum sem reiknast frá 0 við
sjónbaug upp í 90 í hvirfilpunkti. Ef reglustiku er haldið lóðrétt í út-
réttri hendi svarar hver sentimetri nokkurn veginn til einnar gráðu á
himninum.
Þótt fyrrnefndar töflur miðist við Reykjavík má yfirleitt nota þær
annars staðar á iandinu án mikillar skekkju. Tölurnar sem sýna hvenær
reikistjörnurnar eru í hásuðri verður þó að leiðrétta um 4 mínútur fyrir
hverja gráðu sem munar á lengd staðarins og lengd Reykjavíkur, sbr.
töfluna á bls. 61.
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 2005. Sólin er alltaf í hásuðri ki. 12 að
sönnum sóltíma hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum, sem báðir eru merktir með
„12“ og eru í rauninni sama línan). Á myndinni kemur fram hvaða af-
stöðu reikistjörnurnar hafa hver til annarrar á himinhvolfinu og hvar
þær eru miðað við sól. Þegar stjörnur eru vinstra megin á myndinni eru
þær á morgunhimni, en þegar þær eru hægra megin eru þær á kvöld-
himni. Ef reikistjarna er á svæði sem merkt er „dimmt“ sést hún á
dimmum himni. Sé hún á svæðinu sem merkt er „bjart“ er hún annað-
hvort mjög nærri sól eða kemur ekki upp í Reykjavík meðan dimmt er.
Ef markaltna svæðanna er brotin iína merkir það að einhver reiki-
stjarnanna sést betur eða verr en ætla mætti af afstöðu hennar til lín-
unnar. Svigar um stjörnutákn merkja að stjarnan komi ekki upp í
Reykjavík.
Éf við viljum vita hvaða reikistjörnur muni sjást í nóvember, tii
dæmis, lítum við á þann reit sem liggur þvert yfir kortið og afmarkast
af stöfunum NÓV til hægri og vinstri. Þá sjáum við að lengst tii vinstri,
þ.e. morgunmegin, er Júpíter. Hann er skammt frá sól, sérstaklega í
byrjun mánaðar. Næst kemur Satúrnus, sem er mun lengra frá sól. Þar
sem hann er til vinstri á myndinni sést hann betur á morgnana en
kvöldin. Næst kemur Mars, sem er nær miðri mynd og sést því mestan
hluta nætur. Til hægri við hann, á kvöldhimninum, er Venus, en hún
kemur ekki upp fyrr en seint í mánuðinum. Lengst til hægri er Merkúr-
íus, en hann er á svæði sem merkt er „bjart“ og sést því ekki. Við hægri
jaðar myndarinnar erum við aftur komin að sól.
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá Islandi á árinu
2005. Stjörnurnar eru: Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter og Satúrnus. Á
eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hinar daufari reiki-
stjörnur sem eru lengra frá sól: Uranus, Neptúnus og Plútó.
(64)
J