Bræðrabandið - 01.02.1979, Qupperneq 16
Helge Andersen
í skráningu atkvæðisbærra manna
nýlega kom fram sú staðreynd að loo
milljónir manna búa í Nígeríu. í
systursambandinu, Vestur-Afríku, sem
nær yfir 8 lönd: Benin, Gambíu, Ghana,
Síerra Leone,FÍlabeinsströndina,
Líberíu, Togo og Efri-Volta, eru yfir
50 milljónir manna.
Hugsið ykkur eitt augnablik: í
trúboðssvæðunum tveim, Nígeríu samband-
inu og Vestur-Afríku sambandinu, sem
bæði heyra til Norður-Evrópu og Vestur-
Afríku deildinni, er íbúatalan 150
milljónir. Tala safnaðarfólks er yfir
80.000 og yfir 180.000 sækja hvíldar-
dagsskóla. Hvernig hefur söfnuðinum
tekist að annast um hið geysivíðlenda
svæði langt í burtu frá höfuðstöðvunum?
Svara má spurningunni á eftirfarandi
hátt:
Helge Andersen er
sambandsms.
formaðut b
1. Settir hafa verið á stofn barna-
skólar og gagnfræðaskólar. Miklu hlut-
verki hefur æðri skóli Vestur-Afríku
gegnt, Adventist Seminary of West-
Afríka, (ASWA).
2. Trúboðar svo og stjórnarmenn deild-
arinnar eru sannfærðir um það að préd-
ikun fagnaðarerindisins þarf að vera
framkvæmd af innfæddum mönnum.
3. Ungir innfæddir menn hafa verið
hvattir til að sækja æðri skóla safn-
aðarins (Adventist Seminary). og búa
sig undir prestsþjónustu.
4. Ungum innfæddum mönnum er gert
kleift að taka að sér leiðtogastörf í
söfnuðum, samtök\am og samböndum.
í dag er fátt um erlenda trúboða í
Vestur-Afríku. Ástæðurnar eru margar.
Heimamenn sjálfir hafa tekið á sínar
herðar að ná til milljónanna í löndum
sinum. Þeir eru ekki aðeins í fram-
línunni sem bóksalar, prestar, svæðis-
◄-----14
Frjósöm garðlönd við ASWA