Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005
Fréttir DV
Nokkrirteknir
við Blönduós
Lögreglan á Blönduósi
sagðist hafa átt náðugan
dag í gær. Þó voru 6-8 öku-
menn teknir fyrir að stíga
fullþungt á bensíngjöfina.
Að sögn lögreglunnar var
þó ekki um alvarlegan
hraðakstur að ræða. Við-
mælandi DV lýsti því þann-
ig að ökumenn hefðu verið
„nokkuð spakir" þennan
dag. Fyrir utan þetta var
frekar rólegt í kringum
Borgarnes.
Ölvunarakstur
í Hafnarfirði
Ökumaður var tekinn
ölvaður undir stýri í um-
dæmi Hafnarfjarðalögregl-
unnar um kl. 15 í gær. Þá
voru þrír teknir fyrir of
hraðan akstur. Annars var
nokkuð rólegt að sögn lög-
reglunnar og umferðin
gekk áfallalaust fyrir sig. Þó
var eitthvað um útköll en
þá var einungis um að
ræða lítils háttar samstuð
bíla á bílastæðum bæjarins.
Smáleg
óhöpp
Lögreglan í Neskaupstað
stöðvaði fjóra ökumenn í
gær fyrir of hraðan akstur.
Að sögn lögreglunnar var
dagurinn rólegur þess utan
og telst nokkuð venjulegur.
Lögreglan á Egilsstöðum
hafði sömu sögu að segja.
Ekkert var um hraðakstur í
umdæmi hennar en eitt-
hvað um smávægilég
umferðaróhöpp. Að sögn
Egilsstaðalögreglunnar
urðu engin slys á fólki en
eitthvað var um tjón á bíl-
um. Þá tók lögreglan á
Hornafirði þrjá ökumenn
fyrir of hraðan akstur inn-
anbæjar og var einn þeirra
á 80 kílómetra hraða þar
sem hámarkið er 45 kíló-
metrar. í fyrradag voru fjór-
ir sektaðir við hefðbundið
eftirlit í Hornafirði fyrir
nota ekki öryggisbelti.
Sigurður Ingi Jónsson gengur aftur í Frjálslynda flokkinn og gefur kost á sér sem for-
maður ef á hann verður skorað. Hann segir tilvik, þar sem hann varð mannsbani á
hraðbraut í Kúveit, ekki vera til þess fallið að vekja neikvæð viðbrögð fyrir flokkinn.
Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður er ósáttur við að Sigurður hafi ekki upplýst
flokkinn um málið þar sem hann flúði réttvísina í Kúveit, rétt fyrir Persaflóastríðið.
Flúöi frá dómi í Kúveit
en nú til í formanns-
Gunnar Örlygs-
son I varafor-
marmsslag við
Magnús Þór.
Sigurður Ingi Jónsson sem leiddi Frjálslynda flokkinn í Reykjavik
norður í síðustu kosningum en gekk síðan úr honum, gekk aftur
í flokkinn í íyrradag og beitir sér nú af krafti fyrir breytingum á
stjóm flokksins. Hann segist ekki skorast undan ef skorað verður
á hann í formannsframboð og segir atvik þar sem hann varð
mannsbani á hraðbraut í Kúveit, ekki eiga að vinna gegn honum.
Sigurður Ingi segist hafa ákveðið
að ganga aftur í Frjálslynda flokkinn
eftir að það var dregið fram í frétt hjá
Ríkisútvarpinu að hann og Gunnar
örlygsson hefðu átt óuppgerðar sakir
sem þeir hefðu ekki upplýst stjórn
Frjálslynda flokksins um þegar þeir
fóru í framboð fyrir flokkinn. Sigurð-
ur Ingi styður Gunnar í varafor-
mannskjöri gegn Magnúsi Þór Haf-
steinssyni og segist ekki skorast und-
an ef stungið verður upp á honum í
formannsffamboð gegn Guðjóni A.
Kristjánssyni. „Ég er tiibúinn að
bretta upp ermarnar í samræmi við
hugsjónir þeirra sem stofnuðu þenn-
an flokk,“ segir hann og er ekki
ánægður með þá sem stýra nú.
Skelfilegt mál
Sigurður Ingi segir á heimasíðu
sinni að þangað sæki klárinn sem
hann er kvaldastur og því gangi hann
aftur í flokkinn. Hann skrifaði for-
manni og ffamkvæmdastjóra flokks-
ins bréf þar sem hann gerir grein fyr-
ir atviki sem gerðist í Kúveit fyrir
fimmtán árum. „Túlkun atviksins var
á þá leið, að þar væri um að ræða svo
skelfilegt mál, að það gæti hreinlega
riðið flokknum að fuilu, ef út
spyrðist," segir Sigurður í
bréfinu.
Keyrði á Kúveita
„Ég lenti í
óskemmtilegri lífsreynslu en kom
aldrei fyrir dóm þar,“ segir Sigurður í
samtali við DV. „Mér sýnist að með
því að draga þetta fram sé verið að
skjóta sendiboðann sem segir að
flokkurinn þurfi að líta í eigin barm
og hafa memað til að gera alvöru úr
því sem hann var stofnaður til."
í bréfinu tii formannsins segir Sig-
urður Ingi frá því þegar hann ók á
mann á hraðbraut í Kúveit. „Morgun
einn, daginn eftir að ég kom heim úr
vikulangri viðskiptaferð til Sádi-
Arabíu, þegar ég var að aka til vinnu,
þá hljóp maður í veg fyrir bíl minn á
sex akreina hraðbraut. Það skipti
engum togum að bíllinn lenti á
manninum, sem var fluttur á gjör-
gæslu, en lést nokkmm dögum síð-
ar.“ Sigurður var
dæmdur í órétti
og gert að greiða
bætur.
félagi um endurkröfu á bótagreiðsl-
rnn þar sem ökuskírteini hans hafði
runnið út þremur dögum fyrir slysið.
„Krafan hijóðaði upp á USD 40.000,
sem í þá daga var allnokkur fjárhæð.
Eftir að hafa ráðfært mig við kunn-
ingja mínaí Kúveit, þá ákvað ég að yf-
irgefa landið áður en málið yrði tekið
fyrir." Hann sá ffam á að vegabréf
hans yrði gert upptækt og ef hann
tapaði málinu fengi hann það ekki
aftur fyrr en hann væri búinn að
borga skuldina. Hann gæti síðan ekki
unnið vegabréfslaus í Kúveit. Sigurð-
ur óttast að ef hann hefði ekki yfirgef-
ið Kúveit, þá hefði hann orðið inn-
fyksa þegar her Saddams Hussein
réðist inn í landið stuttu síðar. „Þó
þessi lífsreynsla sé ekki eftirsóknar-
verð, þá er varla um að ræða atvik,
sem gæti.
valdið
Sigurður Ingi Jonsson
Ók á mann I Kúveit sem
dó en sá ekki ástæðu til að
segja formanni frjáls-
lyndra frá þvi.
Magnus Þór Hafsteins-
son Ósátturvið upplýs-
ingaskort frá Sigurði Inga
og Gunnari Erni.
Flúði land
Nokkru síð-
ar fékk Sigurð-
ur stefnu frá
trygginga-
neikvæðum viðbrögðum almennings
gagnvart flokknum," segir hann í
bréfi til formanns.
Áttu að upplýsa
Magnús Þór Hafsteinsson er ekki
á sama máii. „Það er mikið umhugs-
unarefrú að hvorki Sigurður Ingi né
Gunnar Öm hafi upplýst forystu
flokksins og kjósendur um fortíð sína
áður en þeir buðu sig fram til Alþing-
is og núna til æðstu metorða í stjóm-
málaflokki. Við megum ekki gleyma
því að við erum að vinna hér sem
þingmenn en líka sem stjómmála-
flokkur að lagasetningu, að setja
borgurum þessa lands lög tii að fara
eftir. Þá verður að gera kröfu um að
menn sem veljast til slíkra
trúnaðarstarfa hafi
ekki framið
aivarleg lög-
brot, svo ég
tali nú
ekkiumef
menn
hafi ekki
viljað
standa
reiknings-
skil gjörða
sinna,“
segir hann.
kgb@dv.is
Hús til sölu við heimskautsbaug
Gervihnattadiskur á Ijósastaur
Á Þórshöfn á Langanesi
er tii sölu einbýlishús á að-
eins 2,2 milljónir króna.
Um er að ræða þriggja her-
bergja íbúð, stofu og tvö
herbergi auk þvottahúss
sem í er sturta. Athygli vek-
ur að húsinu fylgir gervi-
hnattadiskur sem festur er
Langanesvegur
17 Einbýlishús fyrir
2,2 milljónir. Takið
eftir gervihnatta-
disknum tilhægriá
myndinni.
bær eigin fyrir réttan aðila."
næsta
ljósastaur og tengdur húsinu með
snúrum sem liggja ofanjarðar.
„Það er töluvert spurt um þetta hús
enda er útsýni úr því svo gott sem yfir
heimskautsbaug," segir Guðrún Gísla-
dótúr, fasteignasali hjá Fasteigna- og
skipasölu Austurlands. „Þetta er frá-
WMBSEM
Eigandi hússins er skráður fyrir-
tækið Steini stóri á Selfossi. Áhvílandi
skuldir á eigninni em 1,3 miiljónir sem
unnt er að yfirtaka. Húsið er byggt
1945 og í því er tvöfalt gler. Eða eins og
segir í auglýsingu: „Þetta er lítið og
notalegt hús með fallegu útsýni, smtt í
lax- og silungsveiði og ýmsa náttúm-
skoðun og útivist."
„Mér liggur á að undirbúa jarðveginn fyrir næsta haust en með aðgerðum slðustu daga er ég
byrjuð á að koma afstað ákveðnu ferti“segir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri um
þær breytingar sem eiga sér stað I starfsmannahópi leikhússins. Tinna segist ekki aðeins ætla
láta til sln taka á listræna sviðinu heldur muni hún endurskoða ýmislegt i rekstri leikhússins
og breyta þar sem hún sjái ástæðu til.
Sigurjón styður Magnús - eins og er
Kannski fleiri í
varaformannin
Þingmaður frjálslyndra, Sigurjón
Þórðarson segist á þessu stigi ekki
ætla að blanda sér í slag hinna þing-
mannanna um varaformannsstól-
inn. Eins og staðan sé í dag muni
hann styðja Magnús Þór Hafsteins-
son í varaformanninn og skilur ekki
hvað Gunnar Örlygsson er að fara.
„Það er samt ekki útilokað að það
verði fundinn þriðji kandídatinn í
varaformanninn tii að setja niður j
deilur,“ segir Sigurjón og útilokar j
ekki að hann geti verið sá sem sátt j
skapist um. „Það koma fleiri tilj
greina." Sigurjón segir ekki skipta ,
höfuðmáli hvort Frjálslyndi flokk-
urinn teygi sig til hægri eða
vinstri, heldur að hann taki á,
raunverulegum vandamálum í j
samfélag-
inu, lýð
ræðismál-
um ogútþ-
enslu rílds-
útgjalda,
Sigurjón Þórðarson
Ekki útilokað að fleiri komi
i varaformannsslaginn.