Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Blaðsíða 39
DV Síðasten ekki sist FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 39 m Frelsið eryndislegt! í ljósi vafasamra viðskiptahátta íslenskra „stór‘‘-fyrirtækja síðustu misserin hlýtur maður að spyrja sig hverju sæti. Hvernig í hoppandi stendur á því að menn sem njóta virðingar í samfélaginu, hafa kom- ið sér vel fyrir og er treyst fyrir gríð- arlegri samfélagslegri ábyrgð með rekstri stórra fyrirtækja á litlum markaði í litiu hagkerfi geta verið svona óheiðarlegir? Nægir þar að nefna stjórnendur olíufélaganna, tryggingafélaganna, viðskipta- bankanna, og nú síðast, bygginga- verktaka. Reyndar er kannski vægt til orða tekið að tala um óheiðarleika. Það gefur til kynna minniháttar svik sem ekki valda neinum meiriháttar samfélagslegum skaða. Nær væri, í ljósi þeirrar samfélagslegu ábyrgð- ar sem þeim er treyst fyrir að axla - í nafni frelsisins - að tala um hreina siðblindu. Eða hvað? Þegar litið er til áhrifa þessara myrkraverka á verðlag og verð- bólgu í landinu, með tilheyrandi margfeldisáhrifum á síhækkandi skuldir heimilanna, erum við ekki að tala um einhverjar smávægi- legar yfirsjónir. Að ekki sé minnst á síendurtekin skila- boð þessara svikahrappa út í samfélagið um að svik og prettir borgi sig á endanum, þrátt fyrir allt. Hvað gengur þessum mönnum eiginlega til? Kunna þeir ekki að skammast sín? Hallelúja! Sífellt er að koma betur og betur í ljós hversu illa þessir menn eru að höndla frelsið. Gallinn á frelsinu er vitaskuld sá að því fylgir ábyrgð í orði en ekki á borði. Það virðist engu skipta hversu oft eða ákveðið menn eru minntir á ábyrgð sína af stjórn- málamönnum - meira að segja formönnum stjórnar- flokkanna (þeir mega þó eiga það), ekkert gerist. Hvar endar þetta? Svo virðist sem þessir mógúl-1 ar, sem sjálfir hagnast um milljarða á öllu saman Ðavíð Sigurþórsson segir skuldir heimilanna vinda upp á sig í takt við athafnir siðblindra og óábyrgra kaupahéðna Kiallari með stokk-obsjónum og Guð má vita hverju, skilji ábyrgð sína sem svo að hún beinist eingöngu gegn hluthöfunum, s.s. þeim sjálfum. Arðsemi ofar ábyrgð - hallelúja! Ojbara! Það þarf enda ekki að skrapa mikla skán af skítahaugnum til að fnykurinn gjósi upp. Skemmst er að minnast ábendinga Hjálmars Árnasonar og Ögmundar Jónas- sonar á ítrekaðar tilraunir bank- anna til að kreista líftóruna úr íbúðalánasjóði, svo þeir geti nú notið frelsisins til að víla og díla með fjöregg landsmanna í friði. Guð forði okkur frá því. Svo neita þeir náttúrulega öllu saman og henda bara þeim mun hærri upphæðum í að „Svo neita þeir náttúruiega öllu saman og henda bara þeim mun hærri upphæðum í að dæla vellyktandi ímyndar- og auglýsingaúða upp í vit landsmanna til að kæfa stinkinn og halda aftur afógleðinni." dæla vellyktandi ímyndar- og aug- lýsingaúða upp í vit landsmanna til að kæfa stinkinn og halda aftur af ógleðinni. Og kaupa sér bara fleiri háskólakennara og fræðimenn til að koma fram fyrir sína hönd og halda því fram að allt sé í himna- lagi miðað við einhverjar hókus- pókus-forsendur. Kommon! Það sér hvaða þöngulhaus sem er í gegnum þessi ódýru partítrix. Og þó að bönkunum hafl að mestu tekist - hingað til! - að halda sig réttum megin við lögin, sem geta náttúrulega verið teygjanlegri en Húbba Búbba á heitum degi, þá eru þeir óravegu frá því að geta tal- ist heiðarlegir í samfélagslegu samhengi. Skamm! Samkvæmt lögmálum annarra landa um afleiðingar siðblindu í viðskiptum ættu sumir þessara manna í það minnsta að vera bún- ir að vera í íslensku viðskiptalífi, ef ekki hreinlega kippt úr umferð. All- ar kröfur um að þeir axli siðferðis- lega ábyrgð af glæpum sínum gegn þjóðinni hrökkva af þeim eins og Dom Perignon af gæs. Enda sér maður þá valsa um, glaðbeitta með glott á vör, milli stjórnarfunda úr einni fyrirtækjasamsteypunni í þá næstu, sönglandi með Nýrri danskri: „Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil. Skyldi mað- ur verða leiður á því til lengdar að láta sem ekk- ert sé?“ Skamm! V * ■•■W Talstöðin FM 90,9 ALLT & SUMT MEÐ HALLGRÍMI THORSTEINSSYNI OG HELGU VÖLU HELGADÓTTUR L Alla virka daga kl. 15. Sandkorn Eirikur Jónsson • Uppi varð fótur og fit í höfuðstöðv- um Icelandair í New York í byrjun síðasta mánaðar þegar þangað hringdi heimsfrægur miðill og lýsti áhyggjum sínum. Sagði miðillinn að hann hefði vonda tilfinningu fyrir dag- setningunum 7., 17. og 27. febrúar. Þetta væru dagar sem flugfélagið þyrfti að vara sig á. I fýrstu tók starfsfólk þetta ekki alvarlega en fiskisagan flaug og þegar dagarnir runnu upp voru allir á tánum. Flugfreyja sem flaug frá New York 7. febrúar seg- ist aldrei hafa kynnst öðrum eins taugatitringi hjá áhöfhinni og það sama gilti um aðrar sem flugu 17. og 27. febrúar. Allt fór þó vel... *■ • Ogmeiraum Flugleiðir, Ragnhild- ur Geirsdóttir sem nýlega var ráðinn forstjóri félagsins átti sér þann draum fyrir nokkrum árum að verða flugfreyja. Fór hún í flugfreyju- próf en féll. Hún var þó nógu klár til að verða forstjóri félagsins... • Uppsagnir Tinnu Gunnlaugs- dóttur í Þjóðleikhúsinu hafa mælst vel fyrir og ekki síst hjá þeim sem sagt var upp. Spaug- stofumennirnir Randver Þorláksson, Sigurður Siguijóns- son og Pálmi Gests- son höfðu þó vit á því að segja sjálfir upp frekar en að láta reka sig. Mun Tinna hafa gert þeim ljóst að ekki dygði að vera frá tvo daga í viku hverri við upptökur á Spaugstofunni þegar menn væru í fullu starfi við Þjóðleikhúsið... • Spaugstofan er nú á sínu þrett- ánda ári í Ríkissjónvarpinu og ef þeir félagar hafa tekið tvo daga í hverri viku yfir vetrarmánuðina til að vinna við upptökur vegna skemmtiþáttarins geta allir reiknað hversu marga daga þeir hafa verið frá samningsbundnum störfum sínum í leikhúsi allra skattgreið- enda. Munu annir þeirra við Spaugstofuna hafa komið niður á æfingaferli fjölmargra leikrita sem þeir tóku þátt í. Þykir Tinna Gunn- laugsdóttir hafa sýnt skörungs- skap, stjórnvisku og kjark þegar hún lét til skarar skríða gegn því fáránlega vinnulagi sem tíðkast hefur í Þjóðleikhúsinu... • Björk Guðmundsdóttir kann vel við sig á nýju heimili við Ægisíð- una í Reykjavík. Segist hún nú vera að hugsa um að kaupa sér trillu til 'tiö hafa I flæðarmál- inu fyrir neðan húsið sitt. Gæti hún þá róið til fiskjar á góðviðrisdögum og jafnvel alla leið yfir til forsetans á Bessastöðum þegar samkvæmum er slegið þar upp...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.