Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 10
1 0 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005
Fréttir DV
Andri er ótrúlega hugmynda-
ríkur, góður vinur og skiln-
ingsríkur á mannlegt eðii
Dálítið upptekinn afsjáif-
um sér og einarður stuðn-
ingsmaður Fylkis
„KostirAndra eru fjöl-
margir. Hann er til að
byrja með alveg ótrúiega
hugmyndarikur og nask-
ur á það að koma hug-
myndum sínum I framkvæmd
enda ákveðinn. Hann er við-
ræðugóður og trúverðugur tals-
maður náttúruverndar. Sé ekki
neina sérstaka galla nema að
hann vegna kosta sinna eransi
upptekinn og maður sér hann
ekki nógu oft. En helsti galli
hans er hins vegar einarður
stuðningur við Fylki sem kastar
stundum appelsínugulum
skugga á vináttu okkar."
örn Úlfar Sævarsson, almanntengsla-
ráögjafi og vinur
„Einn afkostum Andra er
að koma manni stöðugt
á óvart, þegar hann virð-
ist t.d. ekki vera að hlusta
á mann en heyrði síðan
ekki bara það sem maður sagði
heldur man og minnist jafnvel á
þremur árum síðar. Þá er hann
hugmyndaríkur, góður vinur I
raun og hefur góðan skilning á
mannlegu eðli. Eini gallinn sem
ég gæti talið upp er að hann er
dáiitið upptekinn afsjálfum sér
sem er þó finnst mér kostur fyrir
hann sem rithöfund og angrar
mig ekki á nokkurn hátt."
Ármann Jakobsson, íslenskufrædingur
og vinur
„Andri er hinn vænsti
maður. íofanálag er
hann lika ótrúlega hug-
myndaríkur og býryfir
einstakri færni á að koma
hugmyndum sínum frá sér.
Hann er í raun almennilegur í
alla staði, og svo almennilegur
að ég get bara ekki séð neina
galla á manninum."
Sigtryggur Magnason,
útvarpsmaður á Rás 2
Andri SnærMagnason rithöfundur er fædd-
ur 14.júlí árið 1973.Hann er Árbæingur í
fjórða lið sem rekurættir sínar til Melrakka-
sléttu. Andri er kvæntur Margréti Sjöfn Tort
og eiga þau börnin Hlyn og Kristlnu Lovlsu.
Andri hefur gefið út barnabókina Sagan af
bláa hnettinum og skáldsöguna LoveStar,
auk Ijóðabóka og smásagna.'
Vondir
við nýbúa
Lýðræðis-og jafnréttis-
nefnd Hafnarfjarðar ákvað
á síðasta fundi að greiða
250 þúsund krónur af
kostnaði vegna upplýsinga-
bæklings fýrir íbúa af er-
lendum uppruna í bænum.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í
nefndinni lýsti við það
tækifæri „enn og aftur"
furðu sinni á starfi meiri-
hluta Samfýlkingarinnar
vegna málefna nýbúa.
Samfylkingin bókaði á móti
að markvisst hefði verið
unnið að málefnum nýbúa
á kjörtímabilinu eins og
ákvörðun nefndarinnar
leiddi í ljós.
Gráglettni örlaganna varð til þess að blaðamaðurinn Friðrik Þór Guðmundsson
lenti i bílslysi við Kópavogshálsinn á þriðjudaginn. Engin meiðsl urðu á fólki en
bíll Friðriks skemmdist töluvert. Aníta Harðardóttir, lögreglukona sem kom á stað-
inn, segir að blessunarlega hafi farið betur en á horfðist.
„Þetta sýhir líka bara hve erfið
gatnamót þetta eru. Þetta
hefði vel getað farið verr."
- V"' '
Plllll liÉtÉl
Vettvangur slyssins Aníta Harðar-
dóttir lögreglukona stendurmeð
númeraplötu Friðriks Þórs íhendinni.
gr. < W 1 B 1 1 1
ss
„Það meiddist sem betur fer enginn og það er aðalatriðið," segir
blaðamaðurinn Friðrik Þór Guðmundsson sem lenti í árekstri við
Kópavogshálsinn á þriðjudaginn. Friðrik var að keyra frá grænu
ljósi þegar svínað var fyrir hann og í örvæntingarfullri tilraun til að
forðast árekstur klessti hann á ljósastaur. Staurinn féll svo á kyrr-
stæðan bíl sem beið á rauðu ljósi. Engin slys urðu á fólki.
„Svona getur lífið verið erfitt í
umferðinni," segir Friðrik Þór sem
stundar nú nám við Háskóla ís-
lands í fjölmiðlafræði og hefur í
gegnum tíðina skapað sér nafn og
virðingu sem öflugur rannsóknar-
blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum.
„Þó að maður reyni sjálfur að gera
rétt ræður maður ekki hvað aðrir
gera. Þetta sýnir líka bara hve erfið
gatnamót þetta eru. Þetta hefði vel
getað farið verr."
Lögreglukonan
Aníta Harðardóttir lögreglukona
var á slysstað. Á myndinni sést hún
halda á númeraplötu Friðriks Þórs
sem losnaði af bflnum hans við
áreksturinn. Hún segir bfl Friðriks
hafa skemmst töluvert en blessunar-
lega hafi engin slys orðið á fólki.
„Hann var að reyna að forða
árekstri og endaði á ljósastaur sem
féll á bfl sem var stopp á rauðu
ljósi," segir Aníta og lýsir hetjudáð
Friðriks. Ef hann hefði ekki sveigt
frá hinum bílnum er ljóst að um
mun alvarlegra slys hefði verið að
ræða.
Kaldhæðni örlaganna
Sjálfur segir Friðrik að þarna hafi
kaldhæðni örlaganna spilað inn í.
„Mínútu fyrr hefði ég tekið ranga
beygju í smá hugsunarleysi. Ég æd-
aði að fara allt aðra leið en að þess-
um ljósum. Ef ég hefði farið þá leið
hefði þetta trúlega aldrei gerst," seg-
ir Friðrik og minnist á að höf-
uðstöðvar dráttarbflafýrirtækisins
Króks séu aðeins um fimmtíu metra
frá slysstað. Þannig hefði náðst að
koma bflnum í burtu á afar skömm-
um tíma.
Heilsan skiptir mestu
Bflstjóri bflsins sem sveigði fyrir
Friðrik var gamall maður. Friðrik
segist hafa verið í rétti en tekur fram
að hann beri engan kala til hins bfl-
stjórans.
„Nei, mestu skipti að bæði ég,
farþegi minn og ökumaður kyrr-
stæða bílsins gengum heilir frá
þessu. Það er það eina sem skiptir
máli því hitt er bara blikk og málm-
ar. Svo er ég sáttur við að bæði bfll-
inn minn og öryggispúðar stóðu sig
sem skyldi. Það er gríðarlega mikil-
vægt að öryggisatriðin séu í lagi."
Friðrik segist jafnvel vera sáttur
við að hafa klesst á umferðarljósið
því annars hefði hann farið beint
inn í bflinn fyrir aftan umferðarljós-
ið.
„Það hefði getað farið illa," segir
blaðamaðurinn Friðrik Þór.
simon@dv.is
Stef svarar ásökunum Radíó Reykjavík um fj árkúgunarstarfsemi
Meint kennitöluflakk fer fyrir dóm
„Við erum ekki að beita neinni
fjárkúgun. Bara þeim rétti sem við
höfum," segir Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Stefs.
Jón Hlíðar
Rúnarsson, eig-
andi Radíó Rey-
kjavíkur, hefur
kært Stef til rík-
islögreglustjóra
fyrir að beita
stöðina fjárkúg-
unum. Ástæðan
er sú að útvarps-
Eiríkur Tómasson stöðin skipti um
framkvæmdastjóri kennitölu en
Stef og lagapró- Stef neitar að
fessor Segir Radló gera samning
Reykjavík vera að um flutning tón-
gefa Stefi langt nef. Jistar nema
skuld gamla félagsins sé borguð.
„Við viljum ekki samþykkja að
menn geti fyrirvaralaust skipt um
kennitölu og skilið eftir skuldir en
haldið áfram rekstri eins og ekkert
hafi í skorist," segir Eiríkur um
þessa deilu. Hann segir að Jón Hlíð-
ar, núverandi eigandi Radíó Reyk-
javíkur, hafi keypt gömlu stöðina og
rekið í um mánuð áður en hann rifti
kaupsamningnum og keypti tæki
og tól og nafn stöðvarinnar og hóf
rekstur á ný.
„Þetta er bara kennitöluflakk,"
segir Eiríkur og telur að nýja stöðin
sé að nýta sér viðskiptavild gömlu
stöðvarinnar með nafninu og tón-
listinni sem er spiluð.
„Þetta stenst ekki lög og við
munum krefjast skaðabóta fyrir
það tjón sem þeir hafa valdið. Það
er líka afar ósanngjarnt að menn
skemmi svona fýrir öðrum á sama
markaði. Við höfum verið í góðu
samstarfi við samkeppnisyfirvöld í
þessu máli og munum halda því
áfram."
Eftir að Radíó Reykjavík byrjaði
aftur var nafni gamla félagsins
breytt í Fets sem er Stef afturábak.
„Jú, þeir eru að gefa okkur langt nef
en á endanum munu dómstólar
skera úr um hver hafi rétt fyrir sér,“
segir Eiríkur.