Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005
Menning DV
Sigurður Pálsson og Lilja
Nótt Parið sem veldur deilunum
t fjölskylduhni á hólmanum.
DV-mynd Hugleikur
Nú er að hefjast vertíð áhugamannasýninga í Reykjavík og víðar um land. Versló
sýnir fyrir fullu húsi í Loftkastalanum Welcome to the jungle, Snúður og Snælda
sýna Ástandssögur í Iðnó og Hugleikur frumsýnir á sunnudaginn nýtt íslenskt
verk, Patataz í nýju leikhúsi í Vatnagörðum, sem tekur á sambúð okkar við fólk af
öðrum uppruna.
lífi on sál
Starfsemi áhugamanna á sér
mörg skjól á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu utan skólanna,
en það eru leiksýningar í
undirbúningi þessa dagana í
öðrum hveijum skóla. Leikfélag
Kópavogs og Hafnarfjarðar hafa lengi
starfað, ekki síður en Leikhópurinn í
Mosfellsbæ, en Leikfélagið Hugleik
verður að telja dugmesta áhuga-
mannafélagið á suðvesturhorninu og
er þá á engan hallað.
Félagið kynnir óvenju glæsilega
dagskrá þessa vors en félagið setur
upp tvö frumsamin leikverk í vor og
verður hið fyrra, Patataz frumsýnt
sunnudaginn 6. mars. Það er eftir
Björn Margeir en leikstjóri er Bergur
Þór Ingólfsson.
Sumarbústaðardrama
Patataz gerist í sumarbústað
hjónanna Sigríðar og Þórmundar
sem stendur í hólma í íslenskri jök-
ulá. Von er á dótturinni Önnu Lilju
sem kynnir kærastann Youssouf fýr-
ir foreldrum sínum og bróður.
Kvöldið fer vel af stað og kærastinn
fellur þeim hjónum vel í geð en þeg-
ar fyrirætlanir þeirra skötuhjúa líta
dagsins ljós fer gamanið að kárna.
Þau hjónin reyna ýmislegt til að
komast hjá óþægilegum aðstæðum
og stinga m.a. upp á því að leika
hinn séríslenska fjölskylduleik Pata-
taz sem er ffábær blanda af spurn-
ingaleik, kapphlaupi og hjónaspili.
Það reynist grunnt á rasískum hug-
myndum þeirra hjónanna og þegar
Þórmundur reynir að stía þeim
Önnu og Youssouf í sundur fer leik-
urinn úr böndunum. Það er þó eng-
inn að tala um að drepa neinn,
„bara að stjórna því hverjir verða til“
eins og Þórmundur segir.
í verkinu er hugmyndum okkar
íslendinga um okkur sjálf sem þjóð
velt upp og þeim teflt saman við
íslam. Verkið fjallar því öðrum þræði
um þau straumskil sem eru að verða
í íslensku samfélagi með tilkomu fjöl-
menningar.
Vandamenn
Leikritið er þriðja leikrit höfund-
arins, Björns Margeirs en hið fyrsta
sem sett er á svið í fullri lengd. Berg
Þór Ingólfsson leikstjóra er óþarft að
kynna en hann hefur leikstýrt á ann-
an tug leiksýninga. Uppfærsla hans
á Ungum mönnum á uppleið hjá
Stúdentaleikhúsinu var valin áhuga-
leiksýning ársins 2001 og hann fékk
hinn eftirsótta tréhaus fyrir upp-
færslu sína á Glæstum ú'mum. Þá
vann Bergur Dansleikhússam-
keppni Leikfélags Reykjavíkur og ís-
lenska dansflokksins árið 2004.
Með hlutverk hjónanna Þór-
mundar og Sigríðar fara þau Rúnar
Lund og Júlía Hannam, sem eru
þrautreyndir Hugleikarar. Sigurður
Pálsson leikur Youssouf en hann
hefur leikið talsvert með Hugleik
undanfarin þrjú ár. Tveir nýliðar
slást í hópinn í þessarri sýningu, þau
Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Guð-
mundur Erlingsson sem leika syst-
kinin Baldur og Önnu Lilju þó þau
séu fráleitt nýgræðingar á leiksviði.
Leikritið verður sýnt í nýju leik-
húsi, Studíó 4 í Vatnagörðum 4 og er
fyrsta leikritið sem verður sett þar
upp en þrír athafnamenn úr leikhús-
heiminum hafa keypt kvikmyndaver
Sagafilm og hyggja á leikhúss- og
listarekstur þar í framu'ðinni.
V
Valgerður Sverrisdóttir mæt
ir sjálftil að ræða sölu Lands-
virkjunar hjá ReykjavtkurAkad-
emlunni á laugardag
Einkavæðing
Landsvirkjunar
Áhugamenn um haröa deilu geta enn
glaðst og tekið frá formiödaginn á laug-
ardag en þá heldur áfram fundarröð
ReykjavtkurAkademlunar um Virkjun
lands og þjóðar. Þessir fundir hafa reynst
á við spennandi fótboltaknattleiki á liðn-
um vikum og slær oft / brýnu þegar deilt
er um stór orkuverk og virkjun hugarfars-
ins: Verður Landsvirkjun seld? Hver vill
kaupa? Hver má kaupa? Er hún eigulegt
fyrirtæki? Verður grunnnetiö selt með?
Hvað verður um einkarafveitur sem geta
selt inn á netið? Hver ræður verði frá
þeim?
Fundurinn verður að venju haldinn
laugardaginn kemur kl.12.001 JL-húsinu,
Hringbraut 121 á fjórðu hæðinni I Aka-
demtunni. Steingrtmur Ari Arason fyrrver-
andi formaður einkavæðingarnefndar,
Sigurður Jóhannesson hagfræðingur,
Valgerður Sverrisdóttir iðnaöarráöherra
og Helgi Hjörvar atþingismaöur halda
stutt framsöguerindi. Á eftir ætlar Erna
Indriðadóttir framkvæmdastjóri Reykja-
vlkurAkademlunnar að hafa stjórn á um-
ræðum.
Mikils taugatitrings gætirnú hjá stórtenórunum Domingo
og Carreras sem veröa báöir meö tónleika á Islandi á næstu
dögum. Ekki vegna þess aö þeir óttist samkeppni hvor frá
öðrum heldur erþaö Tenórinn ílðnó sem er helsta áhyggju-
efni þeirra.
Eins og þjóöin veit.þá hefur leiksýningin Tenórinn gengiö
I tæp tvö leikár á fjölum hins rúmlega aldagamla sam-
komuhúss lönó viö fádæma ánægju áhorfenda, sem hafa
ýmist emjaö afhlátri eða stunið afsælu yfir kátlegum til-
buröum og háum tónum Tenórsins ásamt þvi aö dást aö
jafnaöargeöi undirleikarans.
Til stóö aö hafa sýningar helgina 11,- 13.marseneinmitt
þá veröa tónleikar Placido Domingo. Nú hefur umboðsmaö-
ur Domingos - eða Dommys, eins og Tenórinn kallar hann
yfirleitt - haft samband við hinn fslenska hetjutenór og farlð
fram á að hann veröi ekki með sýningar þessa umræddu
helgi því það gæti skemmt fyrir aðsókn hjá skjólstæðinga
hans. Þar sem þeir Dommy eru góðir kunningjar úr heims-
tenóraelítunni brástTenórinn Ijúflega við þessari bón og
hætti við sýningar I Iðnó umrædda helgi.
Vegna þessa, og mikilla anna á öðrum vígstöövum, veröur
þvíslðasta sýning á Tenórnum IIðnó sunnudaginn 6. mars
nk. Harmar leikhúsið aö söngaödáendur skuli þurfa að gera
upp á milli tveggja stórra listamanna þessa helgi, en hjá þvi
varö ekki komist.
Höfundur leikritsins erGuðmundur Ólafsson sem jafn-
framt fer með hlutverk Tenórsins. í hlutverki hins hægiáta og
þolgóða undirleikara er Sigursveinn Kr. Magnússon. Leik-
stjóri var Oddur Bjarni Þorkelsson. Höfundur leikmyndar kýs
að láta ekki nafns slns getiö. (Fréttatilkynning)
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 1 03 Reykjavík
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUB
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Frumsýning R5 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20,
Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20
HÍBÝLI VINPANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Cuðmundssonar
Fö 4/3 kl 20 - UPPSELT.
Lau 5/3 kl 20 - UPPSELT,
Su 13/3 kl 20 Fí 17/3 kl 20, Fi 7/4 kl 20, Fö
8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
eftir Helenu Jónsdóttur
í kvöld kl 20, Su 6/3 kl 20
Aðeins þessar sýningar
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Sýningar halda áfrani eftír páska.
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 6/3 kl 14 Siðasta sýning
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana.
Forsala aðgöngumiða hafin.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund f forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um ieikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseöill kvöldsins
K! 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FÝRIR SAL OG LÍKAMA - BÓKIÐ I TlMA
Bttrn 12 ára og yngri fá fritt i
Borgarleikhúsið f fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
NÝJA SVID/LITLA SVID/ÞRIÐJA HÆDIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 Id 20, Lau 19/3 kl 20,
Su 20/3 kl 20
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga ólafsson, Críman fyrir besta leik /
aðalhlutverki
í kvöld kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20,
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Lokasýningar
AUSA eftir Lee Hall
/ samstarfí við LA.
Su 6/3 kl 20 - Umræður á eftir
Su 13/3 kl 20 - Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif örn Arnarsson. í samstarfi við
Hið Irfandi leikhús. í kvöld kl 20,
Fö 11/3 kl 20, Lau 18/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson. í samstarfi við TÓBÍAS.
Fi 10/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAPUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Frumsýning Fö 4/3 kl 20 - UPPSELT,
Su 6/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Su 12/3 kl 20,
Fö 18/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖCN ehf. og LA
Lau 12/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
15:15 TÓNLEIKAR
CAMMERARCnCA - Lau 5/3 kl 15:15
AUSA OG GUDFRÆDIN
- umræður - Pétur Pétursson prófessor, Sr. Cuðný
Hallgrímsdóttir prestur fatiaðra, Sr. Bragi Skúla-
son sjúkrahúsprestur, Guðrún Ásmundsdóttir
stjómar umræðum.
Su 6/3 kl20:50 - á eftir sýningu______________
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgar!eikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan i Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- ug föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
Tryggvi Páll í Gallerí Fold
_______ DV-mynd Vilhelm
Uppboð verður í Súlnasalnum á sunnudagskvöldið og er
margt ágætra verka komið á skrá hjá Gallerí Fold.
Uppboð Gallerís Foldar hafa um
langan aldur verið helsta tækifæri til
að nálgast verk eldri og yngri mál-
ara, en Tryggvi Páll í Foldinni er
helsU uppboðshaldari á myndlist
hér á landi um þessar mundir.
Löngu liðin eru uppboð Sigurðar
Benediktssonar sem fræg voru og
þeirra hjá Klausturhólum. Rekstur
sölugallería hefur nokkuð breytt
endursölu verka og ekki fóru fölsun-
armál vel með markað myndlistar-
innar í landinu.
Á sunnudagskvöld kl. 19 verður
uppboð á vegum Tryggva á Sögu og
þar verða í boði mörg verk. Ails tek-
ur uppboðsskráin til 116 verka og
verður hægt að nálgast hana á net-
inu á morgun. Slóðin er
www.myndlist.is. Þá verður að
vanda sýning á uppboðsverkunum í
galleríinu á Rauðarársstígnum.
Kunnugir munu vita að hægt er að
bjóða í verk í gegnum sima en allar
upplýsingar um uppboðið eru á vef-
síðunni.
Það er óvenjulegt við þetta upp-
boð að þar verða til kaups fimm
verk eftir Jón Engilberts, eitt olíu-
málverk og fimm pappírsverk, en
verk þessa afkastamikla málara eru
ekki oft á ferðinni svo mörg í einu.
Hér er líka nokkuð safn mynda eftir
svokallaða naivista, alþýðumenn
sem unnu við myndlist í hjáverkum
eftir bamslegum minnum. Hér
verður boðið upp verk eftir Kristinn
Ágústsson, Jón Stefánsson frá
Möðrudal, föður Stefáns sem
seinna tók sér nafnið Stórval og er
einna þekktastur naivista seinni
ára. Þá er ein mynd eftir ísleif á
skránni.
Málmeftirsteypa, ein þriggja ein-
taka verður á uppboðinu eftir Ás-
mund Sveinsson sem gerist ekld oft
og ofiumálverk eftir Jóhönnu Krist-
ínu Yngvadóttur. Nánar verður fjall-
að um verkin á uppboðinu í helgar-
blaði DV en það er sem fyrr segir á
sunnudagskvöld og hefst kl. 19.