Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 40
T* f1 íl t £ ílj>J í 0 J Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
|jnafnleyndar er gætt. QQ Q iQ Q Q Q
SKAFTAHLÍB24,10SREYKJAVÍK [STOFNAÐ 7970] SÍMlSSO5000 5 690710 TÍT117
• Hólmfríður Karls-
dóttir, fyrrverandi
fegurðardrottning
íslands og Ungfrú
heimur, prýðir
opnu nýjasta heftis
tímaritsins Nýs Lífs.
Inni í blaðinu er
svo að finna langt viðtal við
hana um upplifunina í kringum
fegurðarkeppnirnar og hvað á
daga hennar hefur drifið síðan
það viðburðaríka ár. Þetta er í
fyrsta skipti í langan tíma sem
Hófí sést á opinberum vett-
vangi. Hún hefur alla tíð verið
trú leikskólakennslunni þrátt
fyrir að hafa verið kjörin fegurst
kvenna í þessum heimi á sínum
tíma. Þó hafa margir gleymt
þeirri staðreynd sökum þess
hversu glæsileg Hófí er. Jafnvel
enn glæsilegri en fyrir 20 árum
síðan...
Erum við hugsanlega í
Evrópusambandinu?
Jí idaác
Landflóna og húsnæðislaus Slóvaki
Gaf sig fram á Borgarbókasafninu
Ungur maður frá Slóvakíu sem er
búinn að vera hér á landi í sex daga er
farinn að örvænta enda virðast honum
allar bjargir bannaðar því hann fær ekki
atvinnuleyfi hér á landi.
Maðurinn sem heitir Rado og er frá
Bratislava kom til íslands í von um
vinnu. Hann segist hafa heyrt í Tékk-
landi að hér væri nóga vinnu að fá og
iaunin væru góð. Fljótlega hefur þó
komið í ljós að það væri ekki rétt. DV
frétti af Rado þar sem hann hafði leitað
ásjár í Borgarbókasafninu á Tryggva-
götu.
Rado segist nú fastur á íslandi með
h'tinn sem engan pening. Hrum hafi far-
ið til Rauða krossins og Félagsmála-
stofiiunar og enga hjálp fengið.
„Hann stóð í þeirri trú að það væri
h'tið mál að fá vinnu vegna inngöngu
Slóvakíu í Evrópusambandið," segir
Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvak-
íu á íslandi og bætir við að máhð sé
flóknara en svo. „Slóvakar eru þegnar
Evrópusambandsins en þeir hafa ekki
atvinnuleyfi hér. Þeir þurfa að bíða í tvö
ár eftir að öðlast fúll atvinnuréttindi í
sambandinu og em því í raun annars
flokks borgarar." segir hann.
„Ég hef engan samastað, ég get
hvergi sofið,“ sagði Rado þegar DV
ræddi við hann í gær með aðstoð túlks.
Rado talar enga ensku og það hefur gert
honum afar erfitt fýrir á þeim stutta
tíma sem hann hefur dvaiið hér. „Ég vil
ekki fara aftur heim til Bratislava, þar
bíður mín ekkert nema gatan. Ég vildi
koma hingað tO þess að vinna en mér er
sagt að ég megi það ekki."
Rado hefur gist hjá Hjálpræðishern-
um síðusm daga en segist ekki geta það
mikið lengur því sparifé hans fari þverr-
andi. Hann hefur ekki ennþá fundið
lausn á sínum málum en líklega mun
hann eyða allra síðusm krónunum stn-
um í flugmiða sem fer með hann aftur
heim tíl Bratislava.
„Ég vOdi bara komast á skip og sigla
um höfin," segir Rado að lokum áður en
hann kveður og heldur út í óvissuna.
I Rado„íg vildi bara komast á
| skip og sigla um höfín,'segir
Slóvakinn ungi sem á ekkert
nema rétt fyrir fargjaldinu aftu
heim til Bratislava.
Borgarstjóri fær sér borgara
HamborgarabúOa Tómasar
við Reykjavíkurhöfn hefur slegið í
gegn svo um munar. AOtaf fullt út úr
dyrum þann stutta tíma sem opið er
en Tómas selur borgara sína helst á
matmálstímum. í gærkvöldi sat þar
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri ásamt eiginmanni sínum og
Demi Moore Fékksér .
kannski borgara.
barni. Á næsta borði sat Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og á
því þriðja erlend fegurðardís sem
viðstaddir giskuðu á að væri Demi
Moore með nýja klippingu. Tommi
kann að trekkja þegar hamborg-
ararnir eru annars vegar.
Útvarp fyrir homma
Hommar og lesbíur eru komin
með sitt eigið útvarp. Útvarp sam-
kynhneigðra er kynnt á heimasíðu
Samtakanna 78 en einungis er hægt
að hlusta á það á netinu. Til þess
þarf sérstakan búnað sem nefndur
er Winamp Player.
Hommar og lesbíur sýna hug-
kvæmni þegar þau nefna nýju stöð-
ina Gayser með tOvísun í Geysi í
Haukadal og svo enska orðstofninn
„gay“ sem er samheiti yfir samkyn-
hneigða. Með útvarpsstöðinni Gays-
er hafa íslenskir hommar og lesbíur
skipað sér í hóp samkynhneigðra
um aOan heim sem víðast hvar hafa
Lesbía fagnar Nú getur hún hlustað á eigið
útvarp á netinu.
komið sér upp eigin útvarpsstöðv-
um fyrir löngu. Efni þeirra er sniðið
að sameiginlegum áhugamálum
samkynhneigðra sem spanna vítt
svið.
EGGERT ÞORLEIFSSON FEKK GRIMUVERÐLAUNIN FYRIR BESTA LEIK I AÐALH LUTVE RKI
4 Eggert Þorleifsson
Elleit A. Ingimundarson
Gunnar Hansson
J llrnur Kristjánsdótlir
Lokasýningar:
Rmmtudagur 3. mars
Föstuclagur 4. mars
Laugardagur 5. mars
Fimmtudagur 10. mars
Föstudagur 11. mars
Laugardagur 12. mars
cftir Braga Ólafsson Leikstjóri: Stefán Jónsson
BORGARLEIKHUSIÐ
Lcikfdag Rcykfavikur * Lisiabraul 3 • 103 Reykjavik
Miðasala 568 8000 • www.borgarleikhus.ls
Viltu seija? Viltu kaupa?
Global-tæki er ný tækjamiðlun sem sérhæfir sig í lausnum fyrir jarðvinnuverktaka.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa áralanga reynslu í sölu og kaupum á tækjum
um allan heim. Við getum útvegað eða selt vélar af öllum stærðum og gerðum
á sanngjörnu verði.
Global-tæki ehf
- þú ert með heiminn í hendi þér
Hæðasmára 6 ■ 201 Kópavogi ■ Simi 544 2090 ■ Bréfslmi 544 2091 ■ baldur@global-taeki.com ■ www.global-taeki.com