Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 9

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 9
FRE YR 35 3. mynd. P. & H. 150 við vinnu á Hvanneyri. Ljósm.: Á. G. E. fræðideild Bandaríkjahersins. Vélamaður- inn hjálpaði einnig til við að setja Árbæjar- gröfuna saman og búa hana til vinnu. Við flutningana að Hvanneyri voru auk Bandaríkjamannanna tveggja, þeir Eirík Eylands og Árni G. Eylands. Flutninga- tæki og menn voru komnir aftur til Reykjavíkur kl. 10 á fimmtudagskvöld, tæpum 33 tímum eftir að lagt var af stað frá Reykjavík. Vegna flutninga á gröfu norður í Svarf- aðardal, var grafan ekki sett saman á Hvanneyri og vinnubúin fyrri en 15. til 17. sept. Unnu að því auk Árna Eylands og Eiríks Eylands, Karl Auðunsson frá Akranesi og Theodór Kristjánsson frá Tjörnum á Staðarbyggð, er báðir hafa unnið tvö undanfarin sumur við ensku skurðgröfurnar, er keyptar voru 1942. Voru þeir við þetta á Hvanneyri til þess að kynnast þessari nýju gerð af skurð- gröfum. Mánudaginn 18. okt. var unnið lítilsáttar að greftri með gröfunni, annars var ekki unnið þar að greftri fyrr en 1. til 5. nóv., er skurðgrafan á Akranesi var hætt vinnu, grófu gröfumennirnir þaðan, Karl Auðunsson og Sigurður Sig- urðsson þá 310 lengdarm. er mældust um 1000 rúmm. Dagsafköst hafa því orðið um 200 rúmm. Kostnaður telst: Vinnulaun kr. 700,00 og olía kr. 90,00 Kostnaður á rúmm. hefir því orðið um kr. 0,79 + leigugjald fyr- ir gröfuna. Gengið var frá gröfunni til vetrarstöðu 6. og 7. nóvember. SVARFAÐARDALUR (P. & H. 150, nr. 7565). Þriðja grafan, af þesum nýju gröfum, var flutt frá Reykjavík með ÆGI til Dal- víkur, og sett þar í land í góðu veðri fimmtudaginn 23. sept. kl. 2—3 e. h. Flutningsvagn sá er fylgdi gröfunum var einnig fluttur norður. Þessi grafa var tek- in nokkru meira í sundur, vegna flutnings- ins norður, heldur en hinar vélarnar,. vógu hinir ýmsu hlutar hennar frá 612 til 6,353 kg. Þyngsti hluti gröfunnar var dreginn

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.